Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
F ó l k m e ð f ó l k i
Okkur á Svæðiskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjvík vantar fólk til afleysinga í sumar.
Hér gefast tækifæri til fjölbreyttra og innihaldsríkra starfa, sem felast í samstarfi og aðstoð
við einstaklinga með fötlun, í daglegu lífi þeirra og störfum.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, góðan vinnuanda og sveigjanleika.
Störf með fötluðu fólki geta breytt hugsanlega heimsynd þinni og lífssýn.
Við leitum að fólki sem m.a. hefur:
góða samskiptahæfni
þjónustulund
jákvæð viðhorf
góða, almenna menntun
Hjá SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun
Nánari upplýsingar veita Guðný Anna Arnþórsdóttir,
sími 533-1388, gudnya@ssr.is
og Guðjón Jóhannsson, sími 533-1388, gudjonj@ssr.is
Launakjör eru samkvæmt samningum ríkisins
og viðkomandi stéttarfélags
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofunni og á netinu, www.ssr.is
Umsóknir berist á SSR, Síðumúla 39,
merktar „sumarafleysing“ fyrir 10. júní 2008
Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár
Verkefnisstjóri
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða verk-
efnisstjóra til starfa vegna móttöku flóttafólks á
Akranesi.
Um er að ræða 100% stöðu til eins árs.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að
takast á við það skemmtilega en jafnframt
krefjandi verkefni að undirbúa og sinna
móttöku flóttamanna sem væntanlegir eru á
Akranes í haust. Um er að ræða 25-30 manna
hóp kvenna og barna frá Palestínu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking eða reynsla af málefnum
flóttamanna æskileg.
Góð tungumálakunnátta.
Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Reynsla af fjármálastjórnun.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Búseta á Akranesi æskileg.
Umsóknir óskast sendar á Bæjarskrifstofur
Akraneskaupstaðar, Stillholt 16-18, 300
Akranes.
Umsóknarfrestur er til 18. júní nk.
Upplýsingar veitir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Akraneskaupstaðar í síma 433 1000.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri Dómhildur Árnadóttir í síma 4215400 eða á netfangið
domhildur@samkaup.is. Umsóknarfrestur er til 9. júní og umsóknir berist á sama netfang.
Verslunarstjóri
Starfssvið:
Ábyrgð á rekstri verslunarinnar
Dagleg stjórnun og starfsmannahald
Samskipti við viðskiptavini
Birgðahald og önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
Reynsla af verslunarstörfum skilyrði
Frumkvæði og metnaður í starfi
Góð framkoma og rík þjónustulund
Reynsla af stjórnun og rekstri.
Nettó opnar nýja og glæsilega verslun í Hverafold
Nettó óskar eftir að ráða verslunarstjóra til að stýra nýrri
verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
SPÁ hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir
harðri lendingu en reiknar þó með
því að í ár verði áfram ágætis hag-
vöxtur, að því er kemur fram á vef-
síðu samtakanna.
Í fréttatilkynningu samtakanna
segir að hagkerfið muni síðan leita
nýs jafnvægis þar sem krónan er
veik, vaxtastig hátt og verðbólga
mikil.
„Verðbólgan mældist tæp 12% í
apríl og horfur eru á að hún aukist
ennfrekar þegar líður á árið. Hún
hjaðnar nokkuð undir lok ársins en
verður þó mikil út spátímabilið.
Eftir mjög gott atvinnuástand síð-
astliðin ár eru nú blikur á lofti og
má búast við að atvinnuleysi vaxi
hratt með haustinu.“
Helstu niðurstöður hagspár
Snörp aðlögun hagkerfisins er
framundan og tveggja ára sam-
dráttur hefur verið í landsfram-
leiðslu, segir í tilkynningunni.
„Heimilin munu draga úr neyslu
á næstu þremur árum. Ástæður
eru minnkandi kaupmáttur, vax-
andi greiðslubyrði lána og versn-
andi aðgengi að lánsfé.
Fjárfestingar dragast saman á
næstu árum. Mestur verður sam-
drátturinn í fjárfestingum atvinnu-
veganna en einnig dregur verulega
úr fjárfestingum í íbúðarhúsnæði.
Fjárfestingar á vegum hins opin-
bera aukast hins vegar, einkum á
yfirstandandi ári.“
Þá telur ASÍ að innflutningur
muni dragast saman á spátímanum
samhliða minnkandi einkaneyslu
og fjárfestingum. Útflutningur
muni aftur á móti aukast á tíma-
bilinu, vegna aukins álútflutnings.
Á tímanum minnki viðskiptahallinn
heldur en verði þó áfram mikill.
Eftir mjög gott atvinnuástand
síðastliðin ár eru nú blikur á lofti
og má búast við að atvinnuleysi
vaxi hratt með haustinu, segir í spá
hagdeildar ASÍ.
„Dregið hefur úr fjölgun starfa
og víða hefur verið tilkynnt um
uppsagnir. Enn eru ekki komin
fram nein skýr merki um að er-
lendum starfsmönnum muni
fækka.
Útlit er fyrir að forsendur ný-
gerðra kjarasamninga muni bresta
þegar kemur að endurskoðun í
febrúar á næsta ári. Líkur eru á að
kaupmáttur launa og ráðstöfunar-
tekna dragist saman á næstu ár-
um.“
„Þrátt fyrir mikið peningalegt
aðhald síðustu misserin eru stýri-
vextir Seðlabankans nú fyrst farnir
að bíta. Ástæðan er þrengra að-
gengi að erlendu lánsfé. Gera má
ráð fyrir að stýrivextir verði áfram
háir,“ segir m.a. í spá hagdeildar
ASÍ.
ASÍ spáir harðri lendingu
Morgunblaðið/Frikki
Ill spá Spá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir harðri lendingu hagkerfisins.