Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 B 7
Íslenskukennsla
í Winnipeg
Vakin er athygli á að auglýst hefur verið laus
til umsóknar staða kennara í íslensku við
Manitobaháskóla í Kanada. Sjá auglýsingu á
ensku: http://www.arnastofnun.is/english
Ráðið verður í stöðuna til eins árs frá 1. ágúst
eða 1. september nk. Kennaranum er ætlað að
kenna íslenskt nútímamál. Kennsluskyldan er
18 tímar á viku. Umsækjendur skulu a.m.k. hafa
lokið M.A.-prófi í íslensku eða sambærilegu
prófi og hafa reynslu af kennslu á háskólastigi.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk. Umsóknir með
ferilskrá og fylgigögnum sendist til:
Dr. Mark Joyal,
Department of Classics,
University of Manitoba, Winnipeg,
MB, Canada, R3T 2M8.
Dr. Mark Joyal veitir einnig frekari upplýsingar
um starfið. Tölvufang hans er:
m_joyal@umanitoba.ca
Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum.
Forstöðumaður
kennslu og vísinda
við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staða forstöðumanns deildar kennslu og
vísinda er laus til umsóknar. Um er að ræða
75% starf sem heyrir undir framkvæmdastjóra
lækninga næstu 4 árin. Staðan veitist frá
1. september 2008 eða eftir samkomulagi.
Deild kennslu og vísinda er ætlað að sjá um
skipulag, umsjón og eftirlit með öllu því sem
lýtur að faglegum þáttum í móttöku nema,
handleiðslu kandídata og framhaldsnema,
símenntun, rannsóknum og þróun kennslu- og
vísindastarfsemi. Auk þess að vista erlend
samstarfsverkefni og sjá um samskipti við
háskóla innlenda sem erlenda. Forstöðumanni
deildarinnar er ætlað að samhæfa kennslu og
þróa FSA sem kennslu- og háskólasjúkrahús.
Krafist er prófs í heilbrigðisvísindum og
reynslu af stjórnun og kennslu, æskilegt er að
umsækjendur hafi framhaldsnám sem nýtist í
starfi. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæði í
vinnubrögðum og hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Ingvarsson
framkvæmdastjóri lækninga í síma 463 0100.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní
2008.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu sendar , á þar til gerðum
eyðublöðum sem fást á skrifstofu
sjúkrahússins eða http://www.fsa.is/, til starfs-
mannaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri
Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri eða á netfang
starf@fsa.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Við ráðningar í störf við FSA er tekið mið af
jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA er reyklaus vinnustaður.
Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði straumfræði til starfa við rannsóknir og
gagnaúrvinnslu. Viðkomandi getur hafið störf strax. Í boði er fjölbreytt og krefjandi
framtíðarstarf þar sem unnið er að rannsóknum og mælingum á vatnafari.
Starfið felst m.a. í:
• Umsjón með gerð straumfræðilegra líkana til notkunar m.a. við gerð rennslislykla og
mat á áhrifum íss á vatnshæðar- og rennslisgögn.
• Gerð og gæðaeftirliti rennslislykla, m.a. vegna flóðaathugana og athugana á þurrðum,
svo og við túlkun ístruflana.
• Vatnafræðilegri líkangerð.
• Úrvinnslu mæligagna og skýrslugerð.
Sérfræðingnum er ætlað að taka þátt í að móta stefnu í rannsóknum og mælingum
og vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfið
krefst útivinnu við mælingar og mælikerfisrekstur.
Hæfniskröfur:
• Verkfræðingur, tæknifræðingur eða sambærileg menntun.
• Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði aurburðarrannsókna til starfa við
rannsóknir og gagnaúrvinnslu. Viðkomandi getur hafið störf strax. Í boði er
fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf þar sem unnið er að rannsóknum og mælingum
á aurburði í ám.
Starfið felst m.a. í:
• Mælingum á aurburði í íslenskum ám og úrvinnslu mæligagna.
• Skýrslugerð um mælingar.
• Umsjón með rannsóknum á aurburði.
• Umsjón með gagnagrunnum um aurburð.
Sérfræðingnum er ætlað að taka þátt í að móta stefnu í aurburðarmælingum og
vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfið
krefst útivinnu við mælingar.
Hæfniskröfur:
• Jarðfræðingur með framhaldsgráðu eða sambærileg menntun.
• Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
Vatnamælingar leita að sérfræðingi á sviði reksturs vatnafarsmælikerfa. Viðkomandi
getur hafið störf strax. Í boði er fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf þar sem unnið
er að mælingum á vatnafari með nýjustu tækni. Viðkomandi mun taka þátt í að móta
stefnu í mælingum og vinna með sérfræðingum frá ýmsum sviðum, bæði sjálfstætt
og í hópum. Starfinu fylgir útivinna við mælingar og mælikerfisrekstur.
Starfið felst m.a í:
• Umsjón með rekstri, viðhaldi og uppbyggingu vatnshæðarmæla og mælikláfa.
• Umsjón með mælingavinnu.
• Umsjón með úrvinnslu og endurskoðun gagna, rennslislyklagerð og mati á
áreiðanleika gagna, stuðla að faglegum vinnubrögðum.
• Uppfærsla yfirlits um nauðsynlegar endurbætur á mælakerfinu á hverjum tíma og
tillögugerð um nýjar mælingar eða mæliaðferðir, sem stuðla að auknu rekstraröryggi,
öryggi starfsmanna og aukinni hagræðingu í rekstri kerfisins.
• Fjareftirlit með vatnafari og tengdum umhverfisþáttum.
• Eftirlit með innsetningu og meðhöndlun mæligagna.
• Samstarf um aðrar mælingar á vatnafari og tengdum umhverfisþáttum.
Hæfniskröfur:
• Verkfræðingur, tæknifræðingur eða sambærileg menntun.
• Fagleg vinnubrögð, áhugi og metnaður.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
Við val á umsækjendum verður reynsla af rekstri mælikerfa talinn kostur.
Hlutverk Vatnamælinga er að veita almenningi, fyrirtækjum og hinu opinbera
áreiðanlegar upplýsingar um vatnafar og vatnsbúskap.
Orkustofnun stefnir að því að auka hlutfall kvenna og yngra fólks í starfsliði sínu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veita starfsmannastjóri Orkustofnunar, forstöðumaður
Vatnamælinga og sviðsstjórar Vatnamælinga. Sími Orkustofnunar er 569 6000.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil berist starfsmannastjóra
Orkustofnunar, netfang gd@os.is, eigi síðar en 9. júní 2008. Öllum umsóknum
verður svarað.
Orkumálastjóri
Sérfræðingur á sviði aurburðarrannsókna
Sérfræðingur á sviði straumfræði
Sérfræðingur á sviði vatnamælinga
2 au pair í Edinborg
Tvær fjölskyldur í Edinborg vantar au pair
stúlkur í haust til barnagæslu og léttra heimilis-
starfa til eins árs. Umsækjendur þurfa að vera
ábyrgðarfullar, samviskusamar og umfram allt
barngóðar, 18 ára eða eldri. Þetta er kjörið
tækifæri fyrir vinkonur að fara saman til Skot-
lands. Hafið samband við Hrafnhildi í síma
0044 787 661 7201 eða með tölvupósti til
habbypals@blueyonder.co.uk