Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gæsluvarðhald Lögregla vill halda mönnum lengur til að klára rannsóknir. FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞREFALT lengri tími að meðaltali fer í skýrslutöku af útlendingi, með aðstoð túlks, en Íslendingi, sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Handtekinn mann verður að leiða fyrir dómara innan 24 klukkustunda frá því hann er sviptur frelsi. Lögreglumenn telja að rýmri heimildir væru til bóta, fyrir lögreglu, hinn hand- tekna, dómstóla og fangelsismála- yfirvöld. „Hvern þann sem er handtekinn vegna gruns um refsiverða háttsemi skal án undandráttar leiða fyrir dómara.“ Svo segir í stjórnar- skránni. Ákvæðið hefur lengi verið túlkað á þann veg að ekki megi svipta menn frelsi lengur en í sólar- hring án þess að fara fyrir dómara. Í lögum um meðferð sakamála, sem ganga í gildi 1. janúar nk., verður það lögfest. Í greinargerð með lögunum er m.a. vísað til stjórnarskrárinnar. Tímapressa á lögreglu „Aðeins að setja upp skýrslutöku getur verið mikil skipulagsvinna. Passa þarf upp á að sakborningur, lögmaður og túlkur komi á sama stað, á sama tíma. Þetta getur kost- að allt að tíu símtöl,“ segir lögreglu- fulltrúi hjá fjármunabrotadeild lög- reglu. „Það setur okkur oft í mikla tímapressu og vandræði, þ.e. vegna þeirra takmarkana sem við höfum. Það ættu að vera rýmkunarákvæði fyrir okkur, til jafns við Norðmenn.“ Mikill tími starfsmanna deildar- innar fer í að glíma við erlenda glæpamenn en deildin fæst að mestu leyti við innbrot, þjófnaði og fjársvik. Hann segir oft þörf á meiri tíma og það gæti einnig komið hin- um handtekna vel. Á stundum vanti aðeins nokkrar klukkustundir upp á að rannsókn ljúki en tryggja þurfi nærveru viðkomandi á meðan og því sé oft farið fram á gæsluvarðhald. Frelsi og réttindi manna Sveini Andra Sveinssyni hæsta- réttarlögmanni líst illa á umræðuna. Hann segist ekki sjá hag í þessu fyrir sakborninga og tekur fram að frelsissviptingu án dóms beri að halda í algjöru lágmarki. Hann seg- ir það aðeins hluta af málinu, að lög- regla nái að klára sína rannsókn. „Önnur mál, sem skipta máli, eru til að mynda frelsi og réttindi manna.“ Vilja geta haldið mönnum lengur  Handtekinn mann skal leiða fyrir dómara innan 24 klukkustunda frá því hann er sviptur frelsi  Fjármunabrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins vill rýmri heimildir og til jafns við Norðmenn „VIÐ HÖFUM alltaf brugðist mjög skjótt við ef við sjáum vís- bendingar um neikvæða þróun,“ segir Margrét Gauja Magnús- dóttir, bæjar- fulltrúi og for- maður íþrótta- og tómstundanefnd- ar Hafnarfjarðar, en bæjarfélagið hefur skipað starfshóp til að bregð- ast við fækkun stúlkna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Íþróttaiðkun ungmenna hefur ætíð verið mjög mikil í Hafnarfirði og er það enn í dag. Samkvæmt nið- urstöðum rannsóknar Rannsóknar og greiningar á högum og líðan ungs fólks í Hafnarfirði eru vísbendingar um að stúlkum fari fækkandi í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Eru hafn- firskar stúlkur aðeins undir lands- meðaltali en piltarnir enn nokkuð yf- ir. Tímabundinn kynjakvóti Margrét Gauja segir að starfshóp- urinn hafi jafnréttisstefnu og að- gerðaáætlun Íþróttabandalags Hafnarfjarðar frá 2004 til grundvall- ar við vinnu sína. „Svo munum við vera í virku samstarfi við félagsmið- stöðvarnar í bænum til að reyna virkja stúlkurnar frekar.“ Meðal þess sem kemur fram í stefnunni er að íþróttafélögin skuli gæta þess að ráða jafnhæfa þjálfara fyrir bæði kyn í öllum íþróttagrein- um, að framboð á íþróttagreinum sé jafnt og tímabundinn kynjakvóti í stjórnum félaga. andri@mbl.is Virkja á hafnfirsk- ar stúlkur Færri leggja stund á skipulagðar íþróttir Margrét Gauja Magnúsdóttir ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra mun í dag afhenda Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) listaverkið Saga Þórs eftir Erró að gjöf. Listaverkið, sem er stórt olíu- verk, er gefið sem viðurkenningar- vottur fyrir störf stofnunarinnar og til þess að heiðra listamanninn. Í höfuðstöðvum stofnunarinnar í París er að finna verk eftir marga þekkta listamenn og vekur lista- verkasafnið jafnan mikla athygli. UNESCO fær Erróverk Hvernig er þessum málum háttað í Noregi? Lögreglan í Noregi skal eins fljótt og auðið er færa handtekinn mann fyrir dómara eða í síðasta lagi á þriðja degi eftir frelsisviptingu. Í Danmörku er hins vegar sams konar ákvæði og í lögum um meðferð sakamála, þ.e. að handtekinn mann skuli færa fyrir dómara innan 24 klukkustunda. Á íslenska ákvæðinu eru þó fyr- irvarar, s.s. ef ófærð, veður eða aðr- ar þvílíkar ástæður eru fyrir hendi og ef hinn handtekni er undir áhrifum. S&S Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur í New York bab@mbl.is INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sat í gær morg- unverðarfund á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna í New York, þar sem saman komu kven-þjóðarleiðtogar og -ráðherrar aðildarríkja SÞ. Condo- leeza Rice, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, stýrði fundinum sem var fyrst haldinn í tengslum við allsherj- arþingið árið 2006 og er nú orðinn að föstum lið. Í inngangsorðum sínum sagði Rice meðal annars að hæfileikar kvenna yrðu að nýtast til fullnustu, enda þýddi ekki að helmingur mannauðs þjóða væri geymdur á hliðarlínunni. Stemmningin á fundum var lífleg og hátíðleg og merkilegt að sjá marg- ar valdamestu konur heims sam- ankomnar í einum sal. Vináttan sem ríkir á milli þessara kvenna fór ekki á milli mála, en eins og Ingibjörg Sól- rún lýsti fyrir blaðamanni að fund- inum loknum, þá finna þær til mik- illar samkenndar þrátt fyrir að bakgrunnur þeirra sé ólíkur, bæði menningarlega og pólitískt. Persónulegt andrúmsloft „Við erum allar með svipaða reynslu í farteskinu, reynslu af því að láta til okkar taka og koma okkar málum áfram. Það sem fer auðvitað þvert á menningu og heimshluta er að konur eru almennt ekki þar sem völdin eru og þurfa að hafa talsvert fyrir því að komast þangað. Það er sú reynsla sem við eigum sameiginlega.“ Hvaða þýðingu hefur fundur og tengslanet af þessu tagi? „Við lærum af hinum og miðlum reynslu og þekkingu. Við erum líka að koma hver annarri á framfæri og það skilar sér. Svo búum við til alls- konar samstarfsfleti sem skipta miklu máli.“ Sækja konur í hópi leiðtoga styrk hver í aðra? „Já, við gerum það. Og á svona fundi er annað andrúmsloft og per- sónulegu samskiptin eru öðruvísi og beinni heldur en þegar við erum, eins og venjulega, örfáar í karlahópi. Þeir eru svo miklir vinir og félagar, karl- arnir, þannig að við verðum alltaf að- eins svona á jaðrinum. En þarna er þetta okkar eigin hópur.“ Á fundinum kynntir þú hugmynd sem snýr að því að halda virkum tengslum og samskiptum á milli þess- ara kvenna og gera þær og störf þeirra sýnilegri. „Já, ég lagði til að komið yrði upp vefsvæði um konur í leiðtogastöðum. Þar yrðu tengingar við heimasíður þeirra, upplýsingar um fundi, styrki, ráðstefnur og fleira. Þarna yrðu líka ræður, og sagt verður frá pólitík þeirra og ýmsu því sem þær eru að fást við. Þetta er hugmynd sem við höfum unnið að undanfarnar vikur, í samstarfi við skrifstofu Condoleezzu Rice. Hugmyndinni var vel tekið og við stefnum á að koma þessu á fót í janúar, en utanríkisráðuneytið mun halda heimasíðunni úti.“ Mikilvægt að konur fái aukið hlutverk í friðarviðræðum Ályktun öryggisráðsins númer 1325 um konur, frið og öryggi hefur verið ofarlega í umræðunni um konur og öryggismál. Þú hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að henni sé haldið á lofti og ekki síst fylgt eftir. „Já, það er búið að samþykkja þessa ályktun, sem er mjög mik- ilvægur áfangi. En það skiptir máli að hún sé ekki bara orð á blaði heldur komist raunverulega í framkvæmd. Og þá er mikilvægt að einblína ekki bara á konur sem fórnarlömb í stríði – þó þær séu það svo sannarlega – heldur líka að þær fái aukið hlutverk í friðarviðræðum og uppbyggingu í samfélögum eftir stríðsátök.“ Já, það er gjarnan talað um að kon- ur gegni lykilhlutverki í að halda samfélögum saman og byggja þau upp eftir stríðsátök. „Þær gerðu það til dæmis í Rúanda og einnig í Líberíu. Þar tóku konur málin að mörgu leyti í sínar hendur og lögðu mikið af mörkum í að koma á stöðugleika og friði í þessum löndum. Þær sýndu hvers þær voru megnugar og það hefur skilað þeim árangri í því að komast í valdastöður í sínum lönd- um.“ Morgunblaðið/Birna Anna Fagnaðarfundir Það fór vel á með Ingibjörgu Sólrúnu og Condoleezu Rice á fundinum í New York í gær. Allar með svipaða reynslu í farteskinu  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sótti fund með öðrum kven- leiðtogum heimsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.