Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Íbúðir til leigu í Barcelona á
Spáni, hagstætt verð, Costa
Brava Playa de Aro, Baliares-
eyjan, Menorca Mahon, Vallado-
lid, www.helenjonsson.ws
Sími 899 5863.
Heilsa
Aloe vera djús
Er náttúrulegur græðari sem læknar
innanfrá. Er í miklum metum hjá fólki
með liðagigt, húðvandamál, melting-
aróreglu, eflir afeitrun lifrarinnar og
er vatnslosandi. Dagmar s. 557 2398.
Húsgögn
Borðstofusett til sölu
Til sölu mjög vel farið Rolf Benz
borðstofuborð 220 x 98 (stækkanlegt
í 340). Einnig 10 stólar, sjá mynd.
Upplýsingar í síma 895-7719.
Húsnæði í boði
Kaupmannahöfn
Stórglæsileg lúxusíbúð til leigu
eða sölu Um er að ræða 100 fm
skráða 86 fm Íbúð á efstu hæð í
nýupppgerðu sögufrægu húsi sem
áður var símstöðvar hús, húsið var
byggt árið 1919, og heitir Godthaabs
Central og stendur við sundlaug
Frederiksberg
Íbúðin er penthouse íbúð öll ný upp
gerð frá grunni árið 2006, hún er
byggð undir súð með 4-6 m lofthæð
og stórum þakgluggum, Íbúðin er á
tveimur hæðum. Allur frágangur á
íbúðinni er til fyrirmyndar haldið var í
upprunalegt byggingarefni t.d. Viðar
bitar og hlaðnir steinveggir, ný lyfta
er í húsinu, húsið allt og umhverfi
þess er stórglæsilegt á allan hátt.
Íbúðin er staðsett í Frederiksberg
einu af flottustu hverfum Kaupman-
nahafnar 2 min gangur í Metro og
Copenhagen Business School auk
fjölda kaffi og veitingahúsa.
Íbúðinni geta fylgt húsgögn auk Bang
& Olufsen Sjónvarp og hljómgræjur.
Einstök eign í hjarta kaupmannahaf-
nar. Áhugasamir hafi samband í
síma 822 8844.
Íbúð - Arnarnesi, Garðabæ.
Falleg 3ja herb. íbúð ca.100 fm við
sjávarsíðuna. Sér inngangur og
bílastæði. Húsb., rafm., tv og hiti
innif. Leigist rólegum og reykl. ein-
stakl. eða pari (barnlausu). Gæludýr
bönnuð. Verð 145 þ. pr. mán. Laus
strax. S: 554 5545 og 867 4822.
Einbýlishús til leigu í Vesturbergi
160 fm, 6 herbergja einbýli til leigu.
Laus 1. nóv. 2008. Verð: 200 þús. +
hiti og rafm. Uppl. 639-7815.
Árbær - kjallari, 4 herb. 95 fm,
laus 1. okt. 3 stór svefnh., stórt og
nýl. eldhús, stórt þvottah. og stór
geymsla, lítil stofa. Hentar vel fyrir 3
einst. sem leigja saman. Stutt í alla
þjónustu, t.d. Bónus, Nóatún, sund-
laug o.fl. Leiga 150 þ. Raf./hiti/hússj.
innif. Uppl. 894-9070.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Námskeið í tréskurði
Fáein pláss laus fyrir byrjendur.
Hannes Flosason,
sími 554 0123 og 863 0031.
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Byggingar
Stálgrindarhús frá Kína
Flytjum inn stálgrindarhús. Allar
stærðir og ýmsir möguleikar. Traustur
aðili. Blikksmiðja Gylfa ehf.,
897-9161. blikkgylfa@internet.is
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum í sumar. Inni og úti.
Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Peysudagar 15% afsláttur
Peysur st. S – XXL, 42-56,
fimmtudag til laugardags.
Sími 588 8050.
Teg. Jasmine - flottur bh. sem veitir
mikinn stuðning fyrir þungan barm í
DD,E,F,FF,G,H skálum á kr. 6.990,-"
Teg. Smoothing - saumlaus, veitir
góðan stuðning, góður undir þunnu
bolina, fæst í D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 5.990,-
Teg. Tamarie - virkilega glæsilegur í
stærri stærðunum, fæst í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.450,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Dömur
Mjög léttir þægilegir inniskór úr leðri
og skinnfóðraðir í miku úrvali.
Stærðir. 36 - 41
Verð frá: 4.985.- til 7.350.--
Misty skór Laugavegi 178
sími 551 2070
opið: mán - fös 10 - 18
lau 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Vélar & tæki
Til sölu MF 575.
Verð 350 þús. MF 135, v. 85 þ. MF 65,
v. 65 þús. Davey Brown v. 75 þús.
Isuzu Trooper v. 1 milljón. Ýmis skipti
koma til greina. Upplýsingar í síma
865 6560.
Bílar
Toyota Avensis ‘02 vvti. Tilboð
840 þ. Ek. 108 þ., beinsk., dráttarkr.
6 hátalarar, fjarstýring í stýri,
smurbók, nýskoðaður, listaverð er
1.030 þ. Sparneytinn og fallegur bíll.
Uppl: 699-3181 / 588-8181.
Einkamál
Stefnumót.is
"Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í
makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant-
ar þig dansfélaga? Ferðafélaga?
Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu
þér vandaðan vef til að kynnast fólki
á þínum forsendum. Stefnumót.is
Vertu ævinlega velkomin/n.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Lagersala Lagersala í Leður &
List um helgina - allt á að seljast,
20-70% afsláttur! Leður, roð, skinn,
YKK rennilásar ofl ofl. Opið 10-17.
Leður & List, Frakkastíg 7, s. 5781808
www.leduroglist.is
Listafólk - hönnuðir - einyrkjar
Nokkur herbergi- vinnustofur - skrif-
stofur, um 20 m2 í snyrtilegu húsnæði
í Hafnarfirði. Sameiginl. kaffistofa.
Verð 20 - 27.000 Uppl. í síma 898
7820
Hafnarfjörður - 40 fm - laust
Til leigu 40 fm skrifstofa eða vinnu-
stofa á 1. hæð í snyrtilegu húsnæði.
Verð kr. 52.000 á mánuði m. rafm. og
hita. Uppl. í síma 898 7820.
Falleg íbúð í hlíðunum.
Frábært hverfi, flott íbúð, góður
garður, stutt í skóla og leikskóla. Sér
inngangur. Nýbúið að gera íbúðina
upp. Leigist á 140 þús á mánuði, ein-
ungis langtímaleiga. S:896-3546
RISAÚTSALA-
ALLT Á AÐ SELJAST
Laugardaginn 27.09.08 verður hal-
dinn risaútsala frá 12-16 að
Eldshöfða 17. Í boði verða stólar,
sófar og legubekkir. Nú er rétti tíminn
til að gera reyfarakaup.Ekki klikka á
þessu. Sími 841 0265
Verslun
Atvinnuhúsnæði
Þeir tínast í burtu
einn og einn, sveitung-
arnir mínir gömlu. Nú
var röðin komin að honum Hannesi
okkar á Kúlu og þar með er hans lífs-
bók lokað. Hannes var búinn að vera á
ellideild og sjúkradeild Héraðssjúkra-
hússins á Blönduósi í rúm 15 ár og
hefur því eflaust verið ferðbúinn þeg-
ar kallið kom. Ég er búinn að þekkja
Hannes svo lengi sem ég man eftir
mér því hann var einn af þeim góðu
nágrönnum sem svo oft komu við á
Grund þegar farið var um veginn.
Hann var þessi gamli trausti vinur
okkar allra á Grund, alltaf sá sami,
ekki eitt í dag og annað á morgun.
Hannes Guðmundsson
✝ Hannes Guð-mundsson fædd-
ist á Hafgríms-
stöðum í Skagafirði
3. apríl 1925. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Blönduóss
10. september síð-
astliðinn og var út-
för hans gerð frá
Svínavatnskirkju
19. september.
Hann hafði alltaf tíma
til að stansa, því auðvit-
að þurfti margt að
spjalla, kaffi drukkið og
mikið tekið í nefið.
Hannes var mjög
hjálpsamur maður, allt-
af boðinn og búinn til að
hjálpa nágrönnum sín-
um þegar á þurfti að
halda og veit ég að oft
var leitað til hans frá
mörgum bæjum í sveit-
inni. Hann var glettinn
og skemmtilegur í til-
svörum og veit ég að
sumar setningar, sem hann laumaði út
úr sér, lifa alltaf í minni fjölskyldu og
víðar og eru oft notaðar á góðum
stundum; ekki gleymi ég heldur hlátr-
inum hans þegar vel lá á honum, hann
var ósvikinn. Hannes var þannig mað-
ur að mér finnst eitthvað svo gaman
og notalegt að minnast hans og hugsa
til gömlu daganna þegar hann var að
koma og glettast við okkur krakkana
því hann var skemmtilega stríðinn og
man ég t.d. enn hvað hann hló innilega
þegar hann gaf mér einu sinni í nefið
því ég hélt auðvitað að það hlyti að
vera gott þar sem ég var búinn að
horfa á Hannes taka í nefið í mörg ár
en svo varð raunin önnur þegar það
var prófað. Eftir þetta bauð hann mér
oft í nefið og hló mikið þegar hann fékk
svör mín sem ekki voru beint jákvæð.
Stundum kom Hannes með mömmu
sína í heimsókn og var hún þá allan
daginn hjá okkur og man ég vel hvað
mér fannst gaman að hlusta á hana
segja frá ýmsum löngu liðnum atburð-
um sem gerðust í Blöndudalnum henn-
ar. Hún sagði svo vel frá og lifði sig al-
veg inn í löngu liðna atburði. Hannes
hafði mikinn áhuga á ungmennafélags-
málum og íþróttaiðkun í sveitinni. Stóð
hann fyrir íþróttaæfingum meðal unga
fólksins. Hannes var mjög vel gefinn
og stálminnugur, víðlesinn og fróður
og er því hálfgerð synd að hann skyldi
ekki ganga menntaveginn því þar hefði
hann notið sín vel. En Hannes bjó á
Auðkúlu allan sinn búskap til ársins
1993 þegar hann fór á ellideild Héraðs-
sjúkrahússins á Blönduósi.
Við hjónin komumst því miður ekki
að jarðarförinni en hugurinn verður
þar. Við vottum aðstandendum Hann-
esar samúð og við vitum að nú líður
Hannesi vel því hann hefur átt góða
heimkomu og vel hefur verið tekið á
móti honum af gömlu sveitungunum
sem farnir eru á undan honum.
Ragnhildur Þórðardóttir.
Elsku afi.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
( V. Briem.)
Þorlákur Breiðfjörð
Guðjónsson
✝ Þorlákur Breið-fjörð Guðjónsson
fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð 15.
ágúst 1930. Hann lést
á hjúkrunarheimil-
inu Sóltúni 8. sept-
ember síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju 17.
september.
Elsku afi.
Nú ertu farinn til
Guðs og hittir afa
Þórð þar, við vitum að
þið ætlið að vaka yfir
okkur saman. Með
miklum söknuði
kveðjum við bræður
þig.
Þínir,
Viktor Ingi og
Stefán Máni
Ólafssynir.
Far þú í friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði
Guð þér nú fylgi
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(Vald. Briem.)
Guð blessi minninguna um góðan
dreng og fósturbróður. Hvíl þú í
friði.
Oddfríður B. Magnúsdóttir.