Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 31
AFMÆLI
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu
200-600 fm verslunarhúsnæði miðsvæðis í
Reykjavík. Farið verður með allar upplýsingar
sem trúnaðarmál.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. eða í
box@mbl.is merktar: ,,Miðsvæðis - 21916”.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja miðvikudaginn 1. október 2008, kl. 10:00
á skrifstofu embættisins að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, sem
hér segir, á eftirfarandi eignum:
Ytri-Þóreyjarnúpur (144-484), Húnaþingi vestra, þingl. eig. Þórey ehf.,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
23. september 2008.
Bjarni Stefánsson, sýslumaður.
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum -
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.
Borun um 300 m djúprar holu fyrir hitaveitu
Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum,
sveitarfélaginu Ölfusi.
Lagning 66 kV jarðstrengs milli Ísafjarðar og
Bolungarvíkur.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er
einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is.
Ákvarðanir Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
27. október 2008.
Skipulagsstofnun
Félagslíf
I.O.O.F. 12 189092681/2 Rk.I.O.O.F. 1 1899268 Rk.
Táknmálsdýragarður
Í tilefni af degi heyrnarlausra á morgun
laugardag, gefst gestum Húsdýragarðsins
kostur á að læra nöfn dýranna í garðinum á
táknmáli frá kl. 10-12.
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 6308
www.or.is/udtbod
Óskað er eftir tilboðum í:
Tryggingar fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í
tryggingar.
Útboðið tekur til lögboðinna og frjálsra trygginga
Orkuveitu Reykjavíkur í samræmi við útboðsgögn.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á
vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is - Um OR
útboð/auglýst útboð, frá og með fimmtudeginum
25. September 2008. Frá sama tíma er einnig
unnt að kaupa þau hjá þjónustufulltrúum á
1. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík. Verð er kr. 5.000.
Útboðið er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.
Tilboð verða opnuð á sama stað í fundarsal á
3. hæð, vesturhúsi, fimtudaginn13. nóvember
2008 kl. 10:00.
OR/08/ 22 25.09.2008
Aðalfundur félagsins
Foreldrajafnrétti
Hagsmunasamtökin Foreldrajafnrétti boða til
aðalfundar þann 13. október n.k. kl 20:00.
Fundurinn verður haldinn í Árskógum 4 Reykjavik.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þeir sem vilja bjóða sig fram til stjórnarstarfa
vinsamlegast hafið samband í 6918644 eða
stjorn@foreldrajafnretti.is innan þriggja daga
fyrir stjórnarfund.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Tilboð/Útboð
EYJAMÆRIN Erla
Vídó er áttræð í dag.
Hennar ær og kýr hafa
verið að verja og sækja
hag þeirra lægst laun-
uðu og þeirra sem
minna mega sín, verja
og sækja líflegt sam-
félag og skoðanaskipti
án þess að mylja moðið,
verja og sækja stefnu
Sjálfstæðisflokksins af
heilagri sannfæringu.
Þessi harðskeytta
Eyjakona var meira en
liðtæk í handboltanum
á sínum tíma, skothörð
og varnarjaxl í senn, fiskverkakona
um langt árabil og sóknarmaður
Sjálfstæðisflokksins alla tíð. Erla er
fræg fyrir hispurslausar skoðanir og
gagnrýni ef henni sýndist. Hún hefur
aldrei hikað við að segja mönnum til
syndanna ef þörf kitlaði og þá dugðu
engin smá fallbyssuskot, en því er
ekki að neita að þetta
kann stundum að hafa
verið eilítið pólitískt
litað. Erla hefur alltaf
verið sjálfstæðismaður
fram í fingurgóma og
heldur lengra. Þannig
vildi til að móðir mín
var á sömu bylgju-
lengd, enda voru þær
miklar vinkonur.
Stundum minntu þess-
ar glæsilegu konur
fremur á skriðdreka-
sveit en elegant konur
með sóma og sann. Það
var stundum magnað
að fylgjast með þeim á pólitískum
fundum þar sem þær sátu eins og
svalakallarnir í Prúðuleikurunum og
fylgdust með því sem fram fór og
misstu ekki af neinu, hvergi í allri ei-
lífðinni, og lögðu orð í belg af eldmóði
og hugsjónablússi.
Erla Eiríksdóttir hefur hrygginn
úr ævinni verið kennd við manninn
sinn, Sigga Vídó, Sigurgeir heitinn
Ólafsson, skipstjóra, aflakló, íþrótta-
mann og einstæðan perrsónuleika
með hágæða töfrum. Börnin og ætt-
menni öll bera þennan búkett í sér.
Siggi Vídó var lengi markmaður
Eyjanna í boltanum og varði flestar
vítaspyrnur, kattliðugur og fimur.
Erla er eins og sígrænu jurtirnar, í
fullum skrúða allt árið og þegar
kosningar detta inn er ekkert sem
getur stöðvað leikgleðina og tilþrifin.
Þá verður málfar hennar að baráttu-
ljóðum og hún hleypur við fót. Einu
sinni var hún í hávaðarifrildi á póli-
tískum fundi þar sem henni þótti
óvægilega vegið að þeim sem þetta
ritar. Pabbi hennar hafði látist
nokkrum dögum áður og ein fund-
arkona vildi votta henni samúð. „Ég
má ekkert vera að því að tala um
það,“ svaraði Erla með hnykk, „ég er
að rífast út af honum Adda.“
Erla hefur alla tíð gefið lífinu lit og
skemmtilegheit og hún er pólitískt
krydd af Guðs náð, vonandi lengi
lengi enn.
Árni Johnsen.
Erla Eiríksdóttir Vídó
Deildakeppnin
í sjónmáli
Deildakeppnin verður spiluð 25.
og 26. október og 15. og 16. nóvem-
ber. Eins og sl. ár verður spilað í
tveim deildum. Spilað verður frá
klukkan 11 á laugardögum og frá
klukkan 10 á sunnudögum. Spilarar
eru hvattir til þess að vera með í
þessari skemmtilegu keppni og von-
ast BSÍ eftir góðri þátttöku.
Núverandi sigurvegari fyrstu
deildar er sveit Karls Sigurhjartar.
Keppnisgjald er 28.000 krónur á
sveit. Skráning í keppnina er á vef
BSÍ, bridge.is eða í síma BSÍ 587
9360.
Vetrarstarf BA hafið
Starfsemi Bridsfélags Akureyrar
þennan veturinn hefst með tveggja
kvölda Startmóti Sjóvár en það er
tvímenningur með þátttöku 13 para.
Þetta fór skemmtilega fram en sum-
ir voru greinilega eilítið ryðgaðir
svona í lok sumars.
Staða efstu para eftir fyrra kvöld-
ið:
Jón Sverrisson – Gissur Jónasson 60,8%
Björn Þorlákss. – Örlygur Örlygss. 60,0%
Ævar Ármannsson – Árni Bjarnas. 58,8%
Björgvin Gunn. – Gissur Gissurars. 55,8%
Pétur Gíslason – Pétur Guðjónsson 54,6%
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 23. september var
spilað á 18 borðum. Meðalskor var
312. Úrslit urðu þessi í N/S
Magnús Oddsson – Oliver Kristófersson 410
Bjarnar Ingimars. – Friðrik Hermanns. 358
Jón Hallgrímsson – Bjarni Þórarinsson 353
Björn Karlsson – Jens Karlsson 348
A/V
Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 409
Knútur Björnsson – Elín Björnsdóttir 363
Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd. 348
Anton Jónsson – Ingimundur Jónsson 344
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
@ Fréttirá SMS