Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 13
FRÉTTIR
...www.rannis.is/visindavaka
Þátttakendur á Vísindavöku 2008
Háskóli Íslands • ReykjavíkurAkademían • Hafrannsóknastofnunin • Össur hf. • Nimblegen • Listaháskóli Íslands • Matís • Háskólinn á Bifröst
Hjartavernd • Hexia, Síminn og Nuance • Hafmynd • Jardin Botanique - Strasbourg France • Landbúnaðarháskóli Íslands • KINE
Laxfiskar • Veðurstofa Íslands • ÍSOR - Íslenskar orkurannsóknir • Nýsköpunarmiðstöð Íslands • Náttúrufræðistofnun Íslands
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness • Háskólinn í Reykjavík • MIRRA • Háskólinn á Akureyri RHA - Rannsókna-
og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri • RES - Orkuskólinn • Rannís
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
Allir velkom
nir!Láttu sjá
þig
SENDIRÁÐ Bandaríkjanna hefur
fært Alþjóðamálastofnun Háskóla
Íslands bókagjöf um Alþjóðamál.
Þetta er í þriðja sinn sem stofnunin
tekur við bókagjöf frá sendiráðinu,
en vorið 2006 gaf sendiráðið stofn-
uninni tæplega tvö hundruð bækur
um alþjóðamál og öryggis- og varn-
armál. Að þessu sinni var umfjöll-
unarefnið hins vegar kosningarnar
í Bandaríkjunum.
Gjöf Neil Klopfenstein afhenti gjöf-
ina í tíma hjá Steini Jóhannssyni.
Ólafur Harðarson þakkaði fyrir.
Bókagjöf
sendiráðsins
BÆJARRÁÐ Kópavogs samþykkti í
gær einum rómi eftirfarandi álykt-
unartillögu:
„Bæjarráð Kópavogs mótmælir
harðlega ákvörðun stjórnar Orku-
veitu Reykjavíkur um 10% hækkun
á heitavatnsgjaldi. Hækkunin er
sem olía á verðbólgubál og kemur
því á versta tíma. Þá skjóti það
skökku við að hækkunin skuli rök-
studd með vísan til fjárfestinga
Orkuveitunnar en það geti vart
hafa verið ætlunin að þær myndu
leiða til slíkra verðhækkana hjá al-
menningi. Bæjarráð Kópavogs
skorar á eigendur Orkuveitunnar,
þar sem Reykjavíkurborg fer með
langstærstan eignarhlut, að endur-
skoða ákvörðunina.“
Kópavogur
mótmælir
hækkun OR
NÝTT hjóla- og göngustígakort af
Reykjavík er komið út. Kortið sýnir
alla aðalstíga, malarstíga og tengi-
stíga á höfuðborgarsvæðinu. Upp-
lýsingaskilti og áfangastaðir fyrir
hjólreiðamenn eru einnig merktir.
Stígar eru númeraðir og vegalengd
sýnd. Kortið fæst gefins í Ráðhúsi
Reykjavíkur, upplýsingastofunni í
Geysishúsinu og í þjónustuverinu í
Borgartúni 10-12.
Hjólastígakort
HAPPDRÆTTI Blindrafélagsins
fer nú von bráðar af stað. Fyrir
lok september fá öll fyrirtæki og
heimili á landinu sendan happ-
drættismiða í pósti. Dregið verður
í happdrættinu 14. nóvember nk.
Það er von félagsins að landsmenn
taki happdrættinu vel og kaupi
miða til styrktar starfseminni
enda hefur félagið að mestu leyti
byggt starfsemi sína á frjálsum
framlögum.
Styðja blinda
STJÓRN bæjar-
málafélags
Frjálslynda
flokksins í Kópa-
vogi lýsir yfir
eindregnum
stuðningi og
trausti á störf
Guðjóns Arnars
Kristjánssonar,
formanns flokks-
ins. Guðjón hafi
alltaf starfað af heilindum að mál-
efnum flokksins og er hann hvattur
til áframhaldandi forystu.
Vilja Guðjón
sem formann
Guðjón Arnar
Kristjánsson
STUTT
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STJÓRNENDUR Blönduósbæjar
eru þokkalega ánægðir með fund sem
þeir áttu í gær með forsvarsmönnum
Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar
en til hans var boðað vegna fyrirhug-
aðrar lokunar mjólkurbúsins á
Blönduósi. Þegar þau áform spurðust
út í vikunni brugðust heimamenn
hart við og gagnrýndu m.a. að hafa
ekki verið upplýstir áður um þessi
áform. Kúabændur á svæðinu eru eft-
ir sem áður ósáttir við lokun búsins.
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri
á Blönduósi, segist vera sáttur við
þau svör sem MS-menn gáfu, þeir
Magnús Ólafsson forstjóri og Egill
Sigurðsson stjórnarformaður.
Ákveðið hafi verið að bæjaryfirvöld
myndu starfa með Auðhumlu, móð-
urfélagi MS, að sköpun atvinnutæki-
færa á Blönduósi eftir að starfsemi
mjólkurbúsins verður lögð niður um
áramót. Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hyggst Auðhumla flytja
inn í húsnæði mjólkurbúsins starf-
semi fyrirtækisins SERO, sem hefur
verið á Skagaströnd við sérhæfða
framleiðslu á bragðefnum úr sjávar-
afurðum.
„Farið var yfir stöðuna og við upp-
lýstir um að þetta væri gert í hagræð-
ingarskyni. Með lokun mjólkurbúsins
nær Auðhumla fram 60 milljóna
króna sparnaði. Núna munum við
snúa bökum saman og styðja þá starf-
semi sem ráðgerð er í þessu húsnæði.
Störfin gætu jafnvel orðið fleiri en
fyrir lokun mjólkurbúsins,“ segir
Arnar Þór.
Komið annað hljóð í strokkinn
Auðhumla og MS heita fleiri störfum á Blönduósi eftir lokun mjólkurbúsins
Blönduós Svo gæti farið að störfum
fjölgaði þótt mjólkurbúið legðist af.