Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ HaraldurSigurjónsson fæddist á Eskifirði 7. ágúst 1936. Hann lést á lungnadeild Land- spítalans í Foss- vogi 20. september 2008. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Hjelm frá Vágur í Suðurey í Færeyjum, f. 11.11. 1905, d. 8.12. 1975, og Sigurjón Guð- mundsson frá Eskifirði, f. 14.7. 1905, d. 2.11. 1948. Systkini Haraldar eru: Gunnar, Matt- hildur, Guðmundur, Ásthildur og Brynhildur. Haraldur kvæntist 7.5. 1958 Rannveigu Lovísu Leifsdóttur frá Raufarhöfn, f. 8.8. 1936. For- eldrar hennar eru hjónin Svein- björg Lúðvíka Lund frá Raufar- höfn, f. 86. 1910, d. 15.8. 1977, og Leifur Eiríksson frá Rifi á Melrakkasléttu, f. 3.6. 1907. Leifur dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði, systkini Rannveigar eru Eysteinn, Ingibjörg og Eiríkur Þór. Fyrir átti Bryndís Ástu, f. 25.12. 1976. Sambýlis- maður hennar er Andrew McCormack, börn þeirra eru a) Anna Katrín og b) Stefan Trent. 4)Íris Elva, f. 22.5. 1963. Synir hennar eru a) Björn Arnar, f. 1.6. 1987. Unnusta hans er Ing- unn Björk Þorgeirsdóttir, b) Atli Freyr, f. 28.5. 1989. Sambýlis- maður hans er Halldór Guð- mundsson, c) Örn Elvar, f. 18.9. 1994, d) Bjarnþór, f. 10.5. 2002, 5) Elín Björg, f. 12.9. 1969. Maki Sveinn Ragnar Jónsson, f. 15.11. 1965. Börn þeirra eru a) Viktor f. 12.7. 1993, b) Egill Snær, f. 22.12. 2000, c) Eva María, f. 31.12. 2005, fyrir átti Sveinn soninn Jón Heiðar, f. 7.2. 1989. Haraldur var til sjós sem ungur maður. Hann vann í Vélsmiðju Eysteins Leifssonar, hjá Ístaki vann hann frá 1966-1972, eftir það starfaði hann hjá Vélsmiðj- unni Þrym. Frá árinu 1979 vann hann samfellt til ársins 2003 hjá Ísal, en þá lét hann af störfum vegna veikinda. Haraldur flutt- ist í Kópavog árið 1950 og bjó þar alla tíð, lengst af á Álfhóls- vegi 24a en fyrir ári fluttu þau hjónin í Gullsmára 9. Útför Haraldar fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Erlingur. Börn Rannveigar og Har- aldar eru:1) Svein- björg, f. 7.10. 1958. Maki Guðlaugur Kristinsson, f. 9.9. 1956. Börn þeirra a) Kristinn Haraldur, f. 20.9. 1979. Sam- býliskona hans er Halla Björk Einars- dóttir. Börn þeirra eru Brynjar Máni og Kristey Una, b) Pétur Ingi, f. 3.3. 1982. Sambýliskona hans er Guðrún Edda Hauks- dóttir. Börn þeirra eru Mikaela Nótt og Ismael Breki, c) Katrín f. 4.8. 1989. Unnusti hennar er Ögri Kristinsson. 2) Jóhanna Helga Haraldsdóttir. f. 1.10. 1959, var gift Þjóðólfi Gunn- arssyni. f. 6.6. 1956, þau skildu. Synir hennar eru a) Haraldur Ingi, f. 12.1. 1982, b) Daði Þór, f. 16.9. 1986, c) Gunnar Þórir, f. 12.2. 1990. 3) Eiríkur Ingi, f. 17.11. 1960. Maki Bryndís Reyn- isdóttir, f. 25.12. 1958. Barn þeirra er a) Rannveig Lovísa, f. 31.10. 1980. Hennar sonur er Elsku pabbi minn. Þetta er allt svo erfitt núna og óraunverulegt. Það er svo margt sem kemur upp í hugann nú þegar þú ert farinn frá okkur elsku pabbi, en ég veit að þú ert hjá okkur öllum. Það er svo erf- itt að þurfa að kveðja þig. Allt er svo tómlegt án þín. Allar sögurnar sem þú sagðir okkur krökkunum þegar við vorum lítil hljóma í höfðinu á mér. Þú varst hafsjór af fróðleik. Þú vissir allt – kunnir allt og gast allt. Þú varst hetja og ert það enn. Þú barðist eins og hetja fram á síðustu mínútu og sagðist ætla að snúa á læknavís- indin. Þú sagðir að maður ætti aldrei að gefast upp fyrr en í fulla hnefana og það ætla ég að muna. En pabbi minn, það hlýtur ein- hver tilgangur að vera með öllu þessu. Var að hugsa hvort það þyrfti kannski að fara að gróður- setja hinum megin eða hvort tækjabúnaðurinn væri farinn að gefa sig. Það var nú lítið mál fyrir þig að hanna eina vél og smíða hana. Þú fórst bara í bílskúrinn og verkið var klárað. Þótt þú sért farinn þá á ég alltaf minningarnar sem ekki verða tekn- ar frá mér. Takk fyrir allt pabbi minn sem þú varst mér og strákunum mín- um. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Blessuð sé minning þín elsku pabbi. Þín dóttir, Jóhanna Helga. Ég á erfitt með að sætta mig við þá tilhugsun að þú sért farinn frá okkur, elsku pabbi. Farinn að eilífu og komir aldrei aftur. Hugurinn er reikull og erfitt að hugsa skýrt. En það sem hjálpar mér að takast á við sorgina eru hinar óteljandi góðu, yndislegu og skemmtilegu minningar sem ég á um þig, elsku pabbi. Þú varst hafsjór af fróðleik, alltaf að spá og spekúlera, segja sögur af skemmtilegum atburðum frá liðnum tímum og til dagsins í dag. Það er ekki öllum gefið að sjá fyndnar hliðar hversdagsleikans eins og var þér eðlislegur eigin- leiki. Það er svo margt sem ég vil þakka þér, það sem þú hefur kennt mér hefur verið gott veganesti í líf- inu. Elsku pabbi, þú munt alltaf lifa í minningum mínum og systkinanna, því hluti af þér lifir í okkur öllum. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir) Þín dóttir Íris Elfa. Elsku tengdapabbi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku tengdamamma, missir þinn er mikill. Sendi ég þér, Eika mínum, Leifi afa, fjölskyldu og ást- vinum innilegar samúðarkveðjur. Megi algóður Guð styrkja ykkur í sorginni. Hvíl þú í friði, elsku tengdapabbi. Þín tengdadóttir, Bryndís. Elsku afi minn. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur sagt mér og kennt mér í gegnum tíðina. Þær voru ófáar sögurnar sem þú sagðir okkur og við áttum alltaf góðar stundir saman. Það var alltaf skemmtilegt að koma í heimsókn í sveitina til ykk- ar ömmu og sjá allt sem þú hafðir framkvæmt þar. Ég held að það hafi engum dottið í hug að útbúa svona vél fyrir gróðursetningu eins og þú gerðir, en plönturnar voru komnar í 18 þúsund sem þú gróð- ursettir uppfrá svo hún hefur sjálf- sagt hjálpað þér helling. Þú kennd- ir mér vinnusemi enda varstu alltaf að, frá morgni til kvölds, eitthvað að bardúsa. Þú sagðir alltaf að það væri betra að vera fæddur snillingur en lærður hálfviti og þú varst svo sannarlega fæddur snillingur. Saknaðarkveðjur og hlakka til að hitta þig hinum megin. Pétur Ingi Guðlaugsson. Elsku afi minn. Ekki bjóst ég við því að þessi stund væri runnin upp og þurfa að kveðja þig svona fljótt afi minn. Ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman í Tungunum og heima hjá ykkur ömmu. Þær eru ógleymanlegar fyrir mér; gróðursetningin, smíða- vinnan og veiðin, þetta var svo góð- ur og skemmtilegur tími sem við áttum saman og allar sögurnar. Okkur vantaði aldrei neitt um- ræðuefni, náðum alltaf svo vel sam- an. Enda með sömu áhugamálin mörg hver. Þetta vil ég þakka þér fyrir elsku afi minn og vinur. Megi Guð senda ömmu minni styrk á þessum erfiða tíma. Þinn vinur og nafni, Kristinn Haraldur. Elsku langafi Halli. Nú ertu hjá Guði. Ég spurði mömmu hvort þú gætir talað við Guð og hún sagði já. Það fannst mér gott að heyra. Ég sagði við mömmu og pabba að þú mættir örugglega eiga hundana hennar ömmu Lúllu og hans afa Gulla, af því að þeir eru líka hjá Guði. Þá hefur þú einhvern að leika við. Ég man þegar við vorum í sumarbústaðnum hjá þér og lang- ömmu. Þú varst stundum að stríða mér og tókst úr þér tennurnar, það var það skrítnasta sem ég hafði séð. Pabbi sagði að ég hefði hætt með snuddu þegar ég var í sveit- inni ykkar, þá var ég tveggja og hálfs. Þér fannst nóg komið með snudduna og sagðir: „Mikaela, viltu ekki henda snuddunni þinni í ruslið, prinsessur eru ekki með snuð!“ Ég hlýddi að sjálfsögðu honum afa mínum og gekk beint að ruslafötunni og henti snuðinu og þar með var það komið. Ég var hætt með snuddu, mömmu og pabba til mikillar gleði. Mér finnst skrítið að þú getir ekki farið í sum- arbústaðinn aftur, en ég veit líka að þú getur fylgst með okkur af himnum. Ég á góðar minningar um þig sem ég geymi alltaf. Hvíl í friði langi minn. Þín Mikaela Nótt Pétursdóttir. Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, er gleðin skín á vonarhýrri brá? Eins og á vori laufi skrýðist lundur, lifnar og glæðist hugarkætin þá. Og meðan þrúgna gullnu tárin glóa og guðaveigar lífga sálaryl, þá er það víst að bestu blómin gróa í brjóstum, sem að geta fundið til. Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi, því táradöggvar falla stundum skjótt, og vinir berast burt á tímans straumi, og blómin fölna á einni hélunótt. Því er oss best að forðast raup og reiði og rjúfa hvergi tryggð né vinarkoss, en ef vér sjáum sólskinsblett í heiði að setjast allir þar og gleðja oss. (Jónas Hallgrímsson.) Þannig var það að koma í heim- sókn til kærs mágs og svila og systur minnar í gróðurvin þeirra uppi í Biskupstungum. Í dag kveðj- um við Halla mág og svila, sem við söknum svo sárlega. Við erum svo glöð yfir að hafa heimsótt þau oftar en áður í sumar í sumarbústaðinn þeirra og að vera þar nú síðast þegar við vorum þar er veikindi hans gerðu lokaárásina. Við áttum saman skemmtilegt kvöld, borðuð- um það sem ég held að þeim svilum hafi líkað best og spekúleruðum og spáðum í lífið. Nú hálfum mánuði síðar er hann allur og minnumst við þessara yndislegu stunda, sem við nutum í sumarbústaðnum Skyggnissteini í gegnum árin. Því- líkur skógur, sem hann var búinn að rækta. Græðlingar voru teknir á haustin og síðan settir niður og ekkert gefið eftir, smíðuð tæki og tól til að auðvelda gróðursetningu, allt lék í höndunum á Halla, því hann vissi nákvæmlega hvað til þurfti og þetta var hans líf og yndi. Þarna undi hann sér og þarna var þeirra sumargleði við að taka á móti vinum og kunningjum og njóta sólskinsblettsins. Þegar þess- ar fáu línur eru skrifaðar renna í gegnum huga okkar allar liðnar stundir í nærveru Halla, sem er svo dýrmætt að eiga og geyma, og það yljar að hafa átt góðan mág og svila, sem alltaf var svo gaman að tala við og var ætíð hress, skemmtilegur og hreinskiptinn. Við vildum geta haft þig miklu lengur hjá okkur, elsku Halli, en nú ert þú kominn á spennandi slóð- ir, því eitthvað bíður hinum megin við tjaldið. Elsku systir og mágkona, Lúlla, Jóhanna, Eiki, Íris og Elín og fjöl- skyldur, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Ingibjörg og Jón. Hann Halli bróðir er látinn. Á þessari stundu er margt sem kemur upp í hugann. Minninga- brotin streyma fram svo skýr og greinileg, en að koma þeim á blað er ekki eins auðvelt og ætla mætti. Kæri bróðir, þú varst okkur svo ósköp góður þegar við vorum litlar stelpur heima í Kópavoginum, fyrir það erum við þér ævinlega þakk- látar. Þú mótaðir okkur á vissan hátt með glettni þinni og spaug- semi. Þú áttir það til að stríða okk- ur, eins og eldri bræður gjarnan gera, en gast þó alltaf hlustað, huggað og gefið góð ráð þegar á reyndi. Glaðværð og skemmtilegur húm- or voru áberandi þættir í fasi þínu alla tíð. Þær stundir sem þú áttir með okkur og fjölskyldum okkar einkenndust af léttleika og skemmtilegum umræðum. Okkur eru sérstaklega minnisstæðar þær fjölmörgu nætur sem þú gistir á heimilum okkar þegar þú, náttúru- barnið mikla, fórst á þínar árlegu gæsaveiðar. Þú laumaðist þá út fyrir allar aldir, komst klyfjaður gæsum nokkrum tímum síðar og tókst þér góðan tíma til að drekka kaffi og maula heimabakað bakk- elsi, sem þér þótti nú ekki slæmt að fá. „Mikið ansi er þetta góð jóla- kaka hjá þér gæska,“ varð þér oft að orði. Þú varst vinnusamur og góður til margra verka, fjölhæfur og útsjón- arsamur. Það má í raun segja að þú hafir verið uppfinningamaður og verkfræðingur af Guðs náð. Í gegnum tíðina hannaðir þú og bjóst til ýmis tæki og tól, ýmist úr litlu eða einhverju allt öðru en það síðan varð. Í þínum höndum gat til dæmis gömul sláttuvél orðið að sáningsvél ef því var að skipta. Það besta var að þú hafðir tröllatrú á eigin verkum og hugmyndum. Elsku bróðir, það er komið að kveðjustund – vertu sæll gæskur og takk fyrir allt. Við systur vott- um Rannsý og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð og biðjum Guð almáttugan að blessa þau og styrkja í sorg sinni. Ásthildur og Brynhildur (Ásta og Inda). Með nokkrum orðum langar mig að minnast Haraldar Sigurjónsson- ar. Við kynntumst fyrir átján árum er Sveinn sonur minn og Elín dótt- ir Haraldar felldu hugi saman. Fljótlega kom í ljós að við höfðum unnið saman í Búrfellsvirkjun, einnig að við vorum með sameig- inlegt áhugamál, skotveiðar, og fórum við síðar í nokkrar skemtil- egar veiðiferðir saman. Haraldur var einstaklega fróður, handlaginn og hugmyndaríkur, það sást best á því sem hann hafði fyrir stafni heima fyrir – og í Haukadal þar sem hann stundaði skógrækt af mikilli elju bæði fyrir og eftir að hafa lokið störfum hjá Álverinu í Straumsvík. Fjölskyldumaður var Haraldur góður og var gaman að koma við í kaffi og spjalla um heima og geima við þau Rannveigu og Harald, en þau hlúðu vel að börnum og barnabörnum. Á þess- ari stundu, eftir langvinnan sjúk- dóm er Haraldur kveður þennan heim sem enginn fer lifandi úr, vil ég biðja góðan Guð að blessa minn- ingu hans. Ég kveð Harald með mikilli virðingu og þakklæti um leið og ég sendi Rannveigu, börn- um og barnabörnum innilegustu samúðarkveðjur. Jón B. Sveinsson. Haraldi kynntist ég fyrst þegar hann kvæntist Rannveigu systur minni og þau komu til Raufarhafn- ar í upphafi hjónabandsins sem varði vel og lengi, því síðastliðið vor áttu þau gullbrúðkaupsafmæli. Börn þeirra urðu fimm og afkom- endur Rönnsu og Halla orðnir margir. Leiðir okkar Halla lágu ekki bara saman vegna mægða heldur líka í vinnu, á árum áður í vinnu hjá Vélsmiðju Eysteins Leifssonar og síðar í fjölmörg ár í Steypuskála ÍSAL þar sem Halli vann við álsteypu og önnur fram- leiðslustörf henni tengd þar til hann fór í flýtt starfslok 67 ára að aldri. Halla var margt til lista lagt. Hann var laginn við smíðar bæði á tré og járn, hafði gaman af því að mála og teikna, las býsn af bókum og var vel heima í ólíklegustu hlut- um. Hann var mikið náttúrubarn, hafði ánægju af ræktun, bæði skrautjurta og trjáa. Ber sumarbú- staður þeirra Rönnsu og Halla að Skyggnissteini austan Geysis í Haukadal þessum áhugamálum hans vel merki þar sem hvert handtak var yfirvegað og hver spýta yfirfarin áður en hún var fest. Það sama gilti um græðling- ana sem ræktaðir voru og settir niður í berangurinn en þeir skýla nú bústaðnum sem öflug tré. Fyrsta húsnæði sem Rannsa og Halli eignuðust var í Smálöndum, síðan í Álfabrekku, þá á Álfhóls- vegi og síðast í Gullsmára. Á alla þessa staði hefur verið gott að koma í kaffi og spjall sem oftast hófst á ,,hvað segirðu gæskur“ eða ,,hvað segirðu gæskan“ eftir því hvort okkar hjóna birtist fyrr. Þetta ávarp hans var honum svo eðlislægt að meðal vinnufélagar hjá ÍSAL var hann oft kallaður ,,Gæskurinn“ enda ákveðin upp- hefð í slíkri nafnbót – enda vel kominn að henni vegna jákvæðis og drenglyndis. Margs væri að minnast en hér linnir máli. Við Addý biðjum Rönnsu systur, Lúllu, Jóhönnu, Ei- ríki, Írisi, Elínu og fjölskyldum þeirra allrar blessunar og vottum þeim samúð. Far heill, mágur. Erlingur Viðar. Haraldur Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.