Morgunblaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
S
Þú færð 5 %
endurgreitt
í BorgarbíóSími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Burn After Reading kl 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Babylon A.D. kl 8 - 10 B.i. 16 ára
Pineapple Express kl 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Brideshead Revisited kl 10:30 B.i. 12 ára
- Ó.H.T., RÁS 2
- 24 STUNDIR
- B.S., FBL
- Þ.Þ., D.V.
- S.V., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓI
Burn After Reading kl. 8 - 10 B.i.16ára
Lukku Láki kl. 2 LEYFÐ
Pineapple Express kl. 8 - 10 B.i.16ára
Journey To The Cent... kl. 6 ATH. EKKI SÝND Í 3D LEYFÐ
ATH. EKKI SÝND Í 3D
Í BORGARBÍÓI -S.V., MBL
-T.S.K., 24 STUNDIR-V.J.V.,TOPP5.IS/FBL
650 kr. fyrir fullorðna
- 550 kr. fyrir börn
Frábæra teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna með íslensku tali
Mögnuð mynd byggð
á samnefndr bók eftir
Evelyn Waugh
um forboðna ást.
ÖLLUM FREISTINGUM
FYLGJA AFLEIÐINGAR
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Sveitabrúðkaup kl. 5:45 LEYFÐ
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
Lukku Láki kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
FRAMTÍÐAR SPENNUTRYLLIR
Í ANDA BLADE RUNNER
GÁFUR ERU OFMETNAR
KOLSVÖRT KÓMEDÍA FRÁ JOEL OG ETHAN COEN.
ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRUM “NO COUNTRY FOR OLD MEN” OG “BIG LEBOWSKI”
“MEISTARAVERK. Coen
bræður aldrei betri.”
Larry King
BEINT Á TOPPINN Í USA!
ILLIR ANDAR
HERJA Á FJÖLS-
KYLDU HANS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
HÖRKU HASAR
Lýstu eigin útliti.
Ótrúlegur dagamunur.
Hvaðan ertu?
Þingholtunum.
Hvað er díalektísk efnishyggja?
(spyr seinasti aðalsmaður, Georg
Bjarnfreðarson)
Kemur upp um mann að hafa ekki
þann akademíska bakgrunn sem
Georg býr að. Hefði átt að fara í Há-
skólann.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um
sjálfa þig?
Hvað mér finnst huggulegt að prjóna
og hlusta á útvarpið eða vesenast í
garðinum mínum. Þarf sumsé ekki
að kvíða elliheimilinu. Mun eiginlega
ekki þurfa að breyta neinu í háttum.
Uppáhaldskvikmynd?
Fer algerlega eftir stemningu og
dagsformi. T.d. Adams æbler e. And-
ers Thomas Jensen eða þýska mynd-
in Das Leben der Anderen.
Leikhús eða kvikmyndir?
Hvort tveggja bætir og auðgar líf
manns þegar vel tekst til. Yfirþyrm-
andi leiðinlegt þegar illa tekst til.
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú
yrðir stór?
Leikkona, ótrúlega lítil hug-
myndaauðgi.
Hversu oft kom það fyrir að kynþokki
Helga Björns fipaði þig við tökur á
þáttunum?
Þegar sexapílið var að sliga hann og
fipa mig, reyndi ég að rifja upp að
hann lék Ólaf Kárason Ljósvíking,
kynlausasta mann bókmenntanna.
Þannig rétt náði ég að merja daginn.
Hvenær varstu hamingjusömust?
Er meira og minna hamingjusöm í
mínum hvunndegi.
Hvenær varstu reiðust?
Reiðist oft og skjótt. Róast þó fljótt.
Hver er morðinginn?
Ég gruna Guðna (persónu Steins Ár-
manns).
Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi
þína?
Stendur til að gera mynd?
Ef þú værir glæpamaður, hvers konar
glæpamaður værir þú?
Vildi óska ég hefði kunnáttu í efna-
hagsbrotamál. Eða bara háttsett í
banka.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hvað heldurðu að Jón Hreggviðsson
væri að gera byggi hann á Íslandi í
dag?
SÓLVEIG ARNARSDÓTTIR
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER LEIKKONA OG ÞYKIR STANDA SIG AFAR VEL Í HLUTVERKI RANN-
SÓKNARLÖGREGLUKONUNNAR KATRÍNAR Í GLÆPAÞÁTTARÖÐINNI SVÖRTUM ENGLUM
Yfirveguð Sólveigu finnst huggulegt að prjóna.
Morgunblaðið/G.Rúnar
EINSTÖK kvikmynd frá Sló-
vakíu sem tekst að koma á
óvart. Hún er skemmtilega
fjölbreytt á átakalausan hátt.
Blindar ástir er leikin heimild-
armynd en einnig með þætti
hreyfi/teiknimynda í fant-
asíuatriði. Allt yfirbragðið er
sérlega fallegt og greinilega
unnið af natni. Það er þó ekki
eingöngu vandað til útlitsins,
heldur einnig framsögunnar.
Juraj Lehotsky segir nokkr-
ar sögur og er myndinni skipt í
kafla eftir helstu persónum.
Áhorfendur kynnast píanó-
leikara og konu hans, ungu
pari í tilhugalífinu þar sem
ýmsir þrándar eru í götu, m.a.
að hann er sígauni, ungri konu
sem bíður komu fyrsta barns
og unglingsstúlku sem leitar
að ástinni á netinu. Það sem
brýtur upp alla túlkun og
myndbyggingu er að mann-
eskjan sem horfir til baka í
myndavélina er blind. Le-
hotsky er ekkert að fela það að
hann vinnur með og mótar
heiminn sem hann er að segja
frá. Enda prívatheimur
blindra eitthvað sem hann
gæti verið ásakaður um að
misnota ef hann nálgaðist
hann á annan hátt. Með þessu
móti fær hann áhorfendur líka
til að íhuga hvað þeir eru að
horfa á og spyrja sig að því
hvort verið sé að horfa á heim-
ildarmynd eða leikna mynd.
Eða einhverja blandaða út-
gáfu! Þetta er frumleg, og
manneskjuleg kvikmynd.
Sýnd í Regnboganum í
kvöld, 1.10 og 3.10.
Anna Sveinbjarnardóttir
Ástin sér ljómandi vel
Einstök Úr Blindum ástum.
Blindar ástir/
Slepé lásky
Leikstjóri: Juraj Lehotsky. Fram-
koma/ leikendur: Peter Kolesár,
Iveta Kopdrová, Miro Daniel,
Elena Manelia, Zuzana Poh-
ánková. Slóvakía. 77 mín. 2008.
bbbbm
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík