Morgunblaðið - 08.10.2008, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Bankakreppan
Eftir Bjarna Ólafsson og
Höllu Gunnarsdóttur
TILGANGURINN með mögulegu
láni frá Rússum er ekki að ráðast í
framkvæmdir eða lánastarfsemi hér
heima fyrir heldur að styrkja gjald-
eyrisvaraforðann. Þetta kom fram í
máli Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra á Alþingi í gær.
Hafnar verða viðræður við Rússa
innan fárra daga um allt að fjögurra
milljarða evra lán til íslenska ríkis-
ins, andvirði um 620 milljarða króna.
Á blaðamannafundi í Iðnó í gær
sagði Geir að Ísland hefði allt þetta
ár leitað hófanna hjá vinaþjóðum um
gjaldeyrisskiptasamninga, en án ár-
angurs. „Þá þurftum við að leita að
nýjum vinum, sagði Geir.“ Ljóst er
að í orðum Geirs fólst gagnrýni á
bandaríska seðlabankann, en hann
hafði fyrr í haust gert gjaldeyris-
skiptasamninga við seðlabanka Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar, en
hafði ekki talið ástæðu til að gera
slíkan samning við Íslendinga.
Rússneski sendiherrann hringdi í
Davíð Oddsson, formann banka-
stjórnar Seðlabanka Íslands, í gær-
morgun og impraði á möguleikanum
á 4 milljarða evra láni til íslenska rík-
isins. Kom þetta fram í viðtali við
Davíð í Kastljósi Sjónvarpsins í gær.
Sagði Davíð að fjármálaráðherra
Rússa hefði sagt að viðræðurnar
yrðu teknar með jákvæðu hugarfari
og að Pútín hafi heimilað að þær
færu fram. Sagðist Davíð bjartsýnn
á að samningar næðust. Líkt og for-
sætisráðherra gaf Davíð til kynna
óánægju með hefðbundnar vina-
þjóðir Íslendinga. „Þeir vita einnig
að þetta er vinarbragð í erfiðleikum
og menn taka eftir því hér á landi af
því að maður hefði haldið að ein-
hverjir aðrir í okkar heimshluta
myndu frekar sjá skyldur sínar eða
vinsemd við okkur en þeir.“
Rússalánið fari ekki í
opinberar framkvæmdir
Í HNOTSKURN
»Yfirlýsingar vegna máls-ins voru misvísandi í gær
og snemma í gær sagði Seðla-
bankinn lánið í höfn.
»Svo kom fram í rúss-neskum fjölmiðlum að svo
væri ekki.
» Í kjölfarið var sagt aðákveðið hefði verið að
hefja viðræður við Rússa.
TÍÐINDIN í þjóðfélaginu hafa verið þess eðlis und-
anfarna daga að allir leggja við hlustir þegar nýjar
fregnir berast. Tæknin býður sem betur fer upp á það
að mikilvægar fréttir geta náð allra eyrum nánast sam-
stundis, án þess að standa þurfi upp frá kaffibollanum,
eins og þessir menn treystu á í gærmorgun þegar þeir
hlustuðu á blaðamannafund Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra í beinni útsendingu í farsímunum sínum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alls staðar lagðar við hlustir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ENN ríkir mikil óvissa um raunveru-
legt gengi íslensku krónunnar gagn-
vart öðrum gjaldmiðlum. Talsmenn
fyrirtækja í innflutningi, sem Morg-
unblaðið talaði við, segja að þeir
haldi að sér höndum við núverandi
aðstæður, enda sé ekki nokkur leið
að vita hvað erlendur gjaldeyrir
muni kosta.
Seðlabanki Íslands ákvað í gær að
eiga viðskipti á millibankamarkaði
með gjaldeyri á föstu gengi, sem tók
mið af gengisvísitölunni í 175 stigum
og gengi evru í 131 krónu. Megnið af
gjaldeyrisviðskiptum dagsins var
hins vegar á mun veikara gengi eða
um og yfir 200 krónur á evru. Á er-
lendum mörkuðum mun gengi evru
hafa tímabundið farið allt upp í 350
krónur. Hér heima var skráð gengi
evrunnar um 150 krónur í bönkunum
og á vefsíðu Valitor, sem sér um
VISA-þjónustu hér á landi, var gengi
evru skráð 226 krónur í gær.
Frekari útfærslu þörf
Svo virðist sem gjaldeyrisvara-
forði Seðlabankans hafi ekki staðið
undir þeirri fastgengisstefnu sem
bankinn kynnti í gær og því hafi farið
sem fór. Væri gjaldeyrisvarasjóður-
inn nógu sterkur ætti loforð Seðla-
bankans um viðskipti á áðurnefndu
föstu gengi að festa raunverulegt
gengi krónunnar nærri hinu fasta
gengi.
Til skýringar mætti koma með
stutt dæmi þar sem annar banki vill
eiga viðskipti með evrur á genginu
150 krónur. Þá gæti fólk farið í Seðla-
bankann, keypt evrur á 131 krónu og
selt hinum bankanum á 150 krónur.
Áhættulaus gróði næmi þar 19 krón-
um á hverja evru. Því myndi hinn
ónefndi banki fljótlega færa gengi
evrunnar hjá sér nær gengi Seðla-
bankans. Þetta dæmi gengur hins
vegar ekki upp ef Seðlabankinn get-
ur ekki staðið við loforð sitt um fast
gengi krónunnar eða vill það ekki.
Ljóst er að frekari útfærslu fast-
gengisstefnunnar er þörf og að
stækka þarf gjaldeyrisvarasjóðinn,
eins og reyndar stendur til að gera
með því að fá lán hjá Rússum.
Bankinn hefur upplýst að nánar
verði greint frá fyrirkomulagi geng-
ismála á allra næstu dögum.
Velta má hins vegar fyrir sér hvort
rétt hafi verið hjá Seðlabankanum að
fara út í aðgerðir sem þessar án þess
að ganga úr skugga um að hann gæti
staðið við fast gengi krónunnar. Þá
þarf líka svör við því hvað Seðlabank-
inn ætlar að standa lengi við tilboð
sitt um fast gengi gjaldmiðla, því
vart á að viðhalda því til frambúðar.
Gengi krónu
ennþá óljóst
Fastgengisstefna Seðlabankans dugði
ekki í gær til að koma böndum á gengið
VIÐBRÖGÐ
smárra hluthafa í
Glitni og Lands-
bankanum, sem
margir hafa tapað
milljónum á und-
anförnum dögum,
eru mismunandi,
en ljóst að
óánægja er mikil.
Margir í þessum
hópi eru sjálfir
starfsmenn bankanna, sem fjárfestu
í trú á eigin vinnustað.
Eins og bófar
Vilhjálmur Bjarnason, formaður
félags fjárfesta og sparifjáreigenda,
segir sögulega reynslu af fjármála-
fyrirtækjum hafa verið nokkuð góða
þegar bankarnir voru einkavæddir.
Þá hafi fólk verið hvatt til að kaupa í
þeim og talað um dreift eignarhald.
Margir hafi þá keypt hlutabréf sem
voru í boði. Nú blasi hins vegar önn-
ur mynd við.
Vilhjálmur var sjálfur hluthafi í
Glitni og Landsbankanum, m.a. með
varasjóð sem ætlaður var börnunum
hans. „Það er sárt að finna það að
þetta brenni upp á einni nóttu, vegna
þess að menn hafa hagað sér eins og
gangsterar,“ segir Vilhjálmur.
Fyrirgreiðsla
frá bankanum
Annar hluthafi sem rætt var við
vildi ekki koma fram undir nafni þar
sem makinn vinnur hjá Glitni. Hann
kvað þau hjónin hafa tapað 2,5 millj-
ónum, um þriðjungi þess lausafjár
sem heimilið átti. Heimilið standi
óhaggað, en hann sé feginn því að
vera ekki mjög skuldsettur á heild-
ina litið. Hann segir ekki hafa verið
þrýst á um kaupin af yfirmönnum,
en þau hafi verið gerð smátt og
smátt, oft með fyrirgreiðslu frá
bankanum, svo sem lánum. „Ég ætla
ekki að taka þetta nærri mér, en ef-
laust eru margir sem bera harm sinn
í hljóði út af þessu.“ onundur@mbl.is
Fleiri en þeir stóru
sem tapa eignum
Vilhjálmur
Bjarnason
ÁGÆTLEGA gekk að þjónusta al-
menna viðskiptavini í bönkum í gær.
Hægt var að taka innstæður út af
venjulegum tékka- og sparireikn-
ingum, en hins vegar var erlendur
gjaldeyrir skammtaður upp að vissu
marki. Að sögn talsmanna bank-
anna voru þó mjög fá tilfelli þar sem
þurfti að takmarka gjaldeyrisút-
tektir. Almennt var miðað við há-
mark að andvirði 250.000 króna, því
hvert og eitt útibú liggur ekki á
ótakmörkuðu magni gjaldeyris frá
degi til dags. Fullyrt er að unnið
verði að því að útvega útibúum
meiri gjaldeyri á morgun, svo ekki
þurfi að færa þessar takmarkanir
neðar.
Áfram var lokað fyrir viðskipti í
öllum sjóðum bankanna, en í Glitni
var lokað fyrir viðskipti í öllum sjóð-
um nema ríkisskuldabréfasjóðum og
erlendum sjóðum. Mjög mikið var að
gera í útibúum Landsbankans í gær-
morgun, fram til klukkan ellefu,
þegar blaðamannafundur forsætis-
og viðskiptaráðherra hófst í Iðnó.
onundur@mbl.is
Skömmtuðu
gjaldeyrinn
Íslensk stjórnvöld afþökkuðu fjár-
hagslega aðstoð frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum (IMF) við lausn
bankakreppunnar hér, að því er
Reuters-fréttastofan hafði eftir
ónafngreindum embættismanni
eins G7-ríkjanna, samtaka sjö
stærstu hagkerfa heims, í gær.
Sagði hann Japana hafa lagt til
að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að-
stoðaði Íslendinga. Íslendingar
vildu hins vegar ekki biðja sjóðinn
um peninga, enda vildu þeir ekki
að það spyrðist út að landið þyrfti
á slíkri fjárhagsaðstoð að halda.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
vék að samskiptunum við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn í viðtali við Kast-
ljósið í gær, þar sem hann sagði
fimm sérfræðinga bankans nú
veita seðlabankanum aðstoð og
ráðgjöf.
Minnti hann á að ofangreind
fjárhagsaðstoð IMF væri skilyrt og
að með því að þiggja hana myndu
stjórnvöld tímabundið afsala sér
stjórn eigin peningamála. Þetta
væri aðstoð til handa gjaldþrota
ríkjum og Ísland væri ekki gjald-
þrota. baldura@mbl.is
Afþökkuðu fé frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum