Morgunblaðið - 08.10.2008, Side 22

Morgunblaðið - 08.10.2008, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ GuðmundurBirgisson fædd- ist í Reykjavík 17. október árið 1955. Hann lést á heimili sínu 30. september síðastliðinn. For- eldrar hans eru hjónin Birgir Krist- jánsson, f. á Vopna- firði 4.8. 1932 og El- ín Ellertsdóttir, f. í Reykjavík 21.10. 1933. Þau eru bú- sett í Hveragerði. Systkini Guð- mundar eru Helgi, maki Tune Birgisson; Kristján, maki Val- gerður Kristjánsdóttir; Valgeir, maki Valgerður Jóhannesdóttir og Guðmunda H., maki Snorri Snorrason. Guðmundur kvæntist hinn 16. október 1976 Grétu Vigfúsdóttir, f. í Reykjavík 19. nóvember 1952. Foreldrar hennar voru hjónin Vigfús Árnason, f. 23.4. 1925, d. 22.3. 1983 og Inga Jenný Guðjóns- dóttir, f. 15.12. 1925, d. 27.2. 2008. Börn Guðmundar og Grétu eru: 1) Birgir Kristján, f. 31. mars 1978, sambýliskona Jóna Björg Ólafsdóttir, f. 9. maí 1983; dætur þeirra eru Hafdís Björg, f. 12.9. 2003 og Sandra Ósk, f. 1.1. 2005; 2) Inga Vigdís, f. 20. mars 1985, sonur hennar er Birgir Máni, f. 16.5. 2005. Guðmundur ólst upp að mestu í Reykjavík og bjó þar öll sín fullorð- insár. Hann gegndi hinum ýmsu störfum um ævina. Guðmundur naut þess mjög að ferðast, hvort sem var innanlands eða utan. Ófá sumur var dvalið við Meðalfellsvatn þar sem hann eignaðist marga góða vini. Síðari árin dvöldu Guðmundur og Gréta mikið í hjólhýsi sínu í Úthlíð í Biskupstungum. Guðmundur var handlaginn mjög eins og ófáir út- skurðarmunir eftir hann bera glögglega með sér. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Þegar ég kveð hann pabba minn. hinstu kveðju koma fyrst og fremst upp í hugann ljúfar minning- ar. Það var svo gaman að fara að veiða í Meðalfellsvatni. Eitt sinn vildi Árni frændi stjórna bátnum og þið fóruð báðir út í vatnið og sneruð bátnum og klifruðuð upp í. Hestamennskan var líka æðisleg, fórum þar um víðan völl og áttum margar góðar minningar frá þeim tíma. Síðan veikist þú, elsku pabbi, og það hefur nú verið þrautaganga en margt gerst á þeim tíma og er ég þér þakklátur fyrir góða kennslu og upp- eldi til að takast á við lífið – alltaf með svör við öllu og alltaf til í að hjálpa til. Og nú í sumar fannst okkur svo gaman að koma til ykkar mömmu í Úthlíð. Og nutu stelpurnar þess svo mikið að vera með ykkur þar. En föðurland okkar er á himni og frá himni væntum við frelsarans, Drottins Jesú Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama okkar svo að hann fái sömu mynd og dýrðarlíkami hans því að hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig. (F1 3:20-21) Ó, þegar Jesú auglit fæ að sjá, ósk mín og vonir rætast Guði hjá, sem lítið barn mig leiðir hann við hlið og lofar mig að skilja aldrei við. Ó, þegar fæ ég heyrt hans hlýju raust, hjá honum dvelja má ég endalaust. Ó, þegar sjálfur segir Jesús mér, sorgir hvers vegna oft mig beygður er. (Elínborg Guðmundsdóttir.) Minning þín lifir í huga mér, mun ætíð elska þig pabbi. Þinn sonur, Birgir Kr. Guðmundsson. Elsku vinur og mágur. Erfitt er að kveðja svona góðan dreng eins og Guðmundur var, og erfitt að skrifa um hann því hann var frábær í alla staði. Manstu, Gummi minn, þegar ég og systir þín komum í bústaðinn til ykk- ar hjóna og við strákarnir fórum að veiða, eða fórum með veiðistangirnar niður að vatni en fengum ekki nokk- urn einasta fisk og urðum ekki einu sinni varir. Við gátum spjallað og gortað um veiði, hvort sem sögurnar voru sannar eða lognar var þetta yndislegur tími. Við hjónin sváfum í tjaldvagni fyrir utan og ég vaknaði um nóttina og vakti Guðmundu og hélt að það væri kominn jarðskjálfti, en þá varst það bara þú sofandi og hraust. Við gátum skipst á skoðunum um tónlist en þar hafðir þú fastar skoð- anir. Eða þegar við fórum á hestbak og þú dast af baki hélt ég að þú hefðir meitt þig en eins og oft áður reistir þú þig upp og sagðir mér að halda áfram því það væri ekkert sem amaði að þér. Þetta og svo margt fleira geymi ég í hjarta mínu. Jesú er Guð þinn því aldrei skalt gleyma. Hann gengur við hlið þér og leiða þig vill. Þú eilífa lífið átt honum að þakka, hann sigraði dauðann og lífið gaf þér. Guðs son á himni nú vakir þér yfir. Hann gleymir ei bæn þinni hver sem hún er. Líf mitt sé falið þér eilífi faðir. Faðminum þínum ég hvíla vil í. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þökk fyrir allt. Þinn mágur, Snorri Snorra. Svo leggur þú á höfin blá og breið á burt frá mér og óskalöndum þínum, og stjarna hver, er lýsir þína leið, er lítill gneisti, er hrökk af strengjum mínum. Þú skilur eftir minningar hjá mér um marga gleðistund frá liðnum árum, og alltaf mun ég fagna og þjást með þér og þú skalt vera mín – í söng og tárum. Eitt orð, eitt ljóð, eitt kvein frá kvaldri sál er kveðja mín. Ég veit þú fyrirgefur. En seinna gef ég minningunum mál, á meðan allt á himni og jörðu sefur. Þá flýg ég yfir djúpin draumablá, í dimmum skógum sál mín spor þín rekur, Þú gafst mér alla gleði sem ég á. Þú gafst mér sorg, sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson.) Það er erfitt að trúa því að Gummi bróðir hringi ekki oftar til þess að spjalla. Það eru margar minningarnar sem sækja á hugann. Gummi og Gréta stóðu saman eins og klettur og ég gat alltaf leitað til þeirra ef eitthvað var. Við Gummi fórum í margar veiðiferðir saman, núna síðast í ágúst áttum við góðan dag saman. Hann var mættur eld- snemma með kaffi á brúsa og vakti litla bróður sinn og hló að því að ég skyldi ekki vera vaknaður. Við vorum komnir út í á um klukk- an 7 og komum heim um kvöldmat, en engin var nú veiðin. Hann hugsaði alltaf um að hafa nóg nesti meðferðis, en ég hafði ekki áhyggjur af því, ég vissi að Gummi hugsaði alltaf fyrir því. Í vor fóru konurnar okkar með okkur í óvissuferð. Við bræður sátum í aftursætinu og skemmtum okkur konunglega, því þessar elskur rötuðu nú ekki alveg þangað sem þær ætl- uðu með okkur, en Gummi var fljótur að kveikja á því hvert ferðinni var heitið, og gat því vísað þeim veginn. Þetta var mjög góður dagur. Og þær voru margar góðu stundirnar, til dæmis oft þegar Gréta fór í saumó þá kom Gummi í heimsókn og við horfð- um saman á góða mynd. Fyrir okkr- um árum fórum við tveir saman til Noregs að heimsækja stóra bróður og var það mjög fín ferð sem við höfð- um báðir mjög gaman af og rifjuðum oft upp. Að lokum þakka ég Gumma bróður samfylgdina og ég veit að hann er kominn á góðan stað og fylg- ist með okkur. Elsku Gréta, Birgir, Jóna, Inga Vigdís og börn, ég og fjölskylda mín biðjum að Guð veri með ykkur og styrki í sorginni. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Þinn bróðir Valgeir. Dagurinn sem Guðmundur Birg- isson kvaddi þennan heim var fagur og bjartur. Eftir langvarandi rign- ingartíð hafði skyndilega stytt upp og fegurð haustsins naut sín sem aldrei fyrr. Minning okkar um þann góða dreng, sem Guðmundur var, er umvafin sömu birtu og fegurð sem þessi einstaki dagur bar í skauti sér. Með söknuði en jafnframt gleði lít- um við til baka og minnumst liðinna samverustunda. Minningar um ham- ingjuríka og yndislega tíma streyma fram þar sem hlátrasköll og skemmtilegheit voru allsráðandi. Það var bæði í leik og starfi sem fjöl- skyldur okkar nutu samverunnar. Ef framkvæmdir stóðu fyrir dyrum sameinuðum við krafta okkar og lögðumst á eitt um að hjálpa hvert öðru. Við minnumst Guðmundar sér- staklega á þeim stundum því að hann var slík hamhleypa til verka að undr- un sætti. Það sem þó var meir um vert var sá hugur sem verki fylgdi. Að aðstoða, hjálpa og létta undir með hverjum þeim sem þess óskaði var skylda sem Guðmundi var í blóð bor- in. Í því sambandi má hins vegar alls ekki gleyma Grétu því þau hjónin voru sérlega samrýmd og samhent og hlutur hennar til allra góðra verka verður seint ofmetinn. Guðmundur lenti í mjög alvarlegu vinnuslysi fyrir allmörgum árum og þrátt fyrir mikla endurhæfingu varð heilsa hans aldrei söm. Veikindin reyndust honum erfið og drógu smám saman úr honum þann kraft og þá lífsgleði sem einkennt hafði hann fram að því. Í sumar sem leið fóru fjölskyldur okkar ásamt Árna Guðjóni og Hrönn og litlu dóttur þeirra Kristjönu Ólöfu, í ógleymanlegt ferðalag inn að Landmannalaugum. Guðmundur, sem oftar, tók sér forystuhlutverk og leiddi bílalestina af mikilli röggsemi yfir vötn og aðrar ófærur. Það var gaman að sjá hve Guðmundur naut sín vel og í hve góðu ásigkomulagi hann var bæði andlega og líkamlega. Hann hafði þá um nokkurt skeið get- að stundað vinnu og allt virtist vera á uppleið. Okkur finnst því sárt til þess að hugsa að þetta einstaka ferðalag skyldi verða síðasta samverustund fjölskyldnanna. Við biðjum þess og trúum að vel verði tekið á móti Guðmundi handan þessa heims, að sú birta og fegurð sem einkenndi daginn sem hann kvaddi fái að fylgja honum og um- vefja hann og minningu hans um ókomna tíð. Við hjónin vottum öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Guðmundar Birgissonar okkar inni- legustu samúð. Sérstaklega dvelur hugur okkar á þessum tímum sorgar og saknaðar hjá foreldrum hans og nánustu aðstandendum þeim Grétu, Birgi Kristjáni, Jónu og Ingu Vigdísi og litlu barnabörnunum. Knútur og Gyða. Guðmundur Birgisson Mig langar í fáum orðum að minnast góðs félaga til margra ára, Haralds Sigurjónssonar sem lést á lungnadeild Landspítalans í Foss- vogi laugardaginn 20. september eft- ir erfið veikindi. Já, margt kemur upp í hugann, við vorum nágrannar í um fjóra áratugi. Ég kynntist Haraldi og fjölskyldu þegar þau áttu heima í Álfabrekku í Kópavogi. Margar ferðirnar fórum við saman til veiða eða austur til að kíkja á bústaðina okkar. ✝ Haraldur Sig-urjónsson fædd- ist á Eskifirði 7. ágúst 1936. Hann lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 20. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Digra- neskirkju 26. sept- ember. Það var mjög skemmtilegt að um- gangast Halla, en hann var mjög fróður um marga hluti og kunni afburða vel að segja frá og hafði létt- an húmor sem var bara mannbætandi. Það kom stundum fyr- ir þegar ég kom í heimsókn að Haraldur sat og tefldi skák við tengdaföður sinn hann Leif Eiríksson og það var hart tekist á enda mættust þar stálin stinn. Leifur var mjög góður skákmaður og Haraldur líka. Þetta voru oft snarp- ar snerrur sem gaman var að horfa á. Að lokum ætla ég að kveðja góðan félaga með þessum orðum: far þú í friði og guðs blessun þér fylgi. Eftirlifandi eiginkonu og ættingj- um votta ég innilegustu samúð mína. Jakob. Haraldur Sigurjónsson                                       Elsku afi Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Ég hugsa svo fallega um þig, afi minn. Þín Sandra Ósk. Ég elska þig mikið, afi minn. Þín Hafdís Björg. HINSTA KVEÐJA Við kveðjum kæran vin Ásgeir Sverrisson sem lést úr illkynja sjúkdómi eftir skamma sjúkrahúsvist. Kynni okkar af honum hófust árið 1989 þegar VÍS var stofnað með sam- einingu Samvinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands. Geiri hafði starfað hjá Samvinnutryggingum um árabil og tók því á móti okkur í Ár- múlanum þegar við komum til starfa hjá nýju félagi. Það má með sanni segja að Geiri með sitt jákvæða viðhorf og léttu lund hafi auðveldað okkur að takast á við þau verkefni sem fylgdu samein- ingunni. Annríkið var oft mikið og þá var ómetanlegt að hafa hann í hópn- um. Margs er að minnast frá þessum árum, einkum hans léttu lundar og glettni sem hafði góð áhrif á alla sem umgengust hann. Geiri þekkti marga og kunni margar skemmtilegar frá- sagnir af samferðamönnum sínum. Oft létti hann okkur lundina í dagsins önn með skemmtilegri sögu. Geiri var mikill tónlistarmaður og væri fyrirtækið eða bókhaldsdeildin að gera sér glaðan dag var hann Ásgeir Sverrisson ✝ Ásgeir Sverr-isson fæddist í Hvammi í Norður- árdal 9. júní 1928. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Landakoti 27. september síð- astliðinn. Ásgeir var jarð- sunginn frá Lang- holtskirkju 7. októ- ber sl. hrókur alls fagnaðar og oft fengum við að njóta tónlistargáfunn- ar sem hann bjó yfir. Tryggð hans við okkur, fyrrverandi vinnufélaga, var ein- stök. Eftir að hann lét af störfum hjá félaginu heimsótti hann okkur reglulega. Hann sótti eldriborgarakaffið mánaðarlega og leit þá við hjá sínum gömlu vinnufélögum, ekki að- eins í bókhaldsdeild- inni heldur fór hann um húsið og heilsaði upp á þá sem hann þekkti. Síðast kom hann rétt áður en hann lagðist inn á sjúkrahús. Hann var þó ekkert að kvarta heldur hafði glettn- in yfirhöndina. Létta lundin, æðruleysið og um- hyggjan fyrir samferðamönnunum kom líklega best í ljós þegar við heimsóttum hann á Landakot síðla sumars. Þrátt fyrir að hann væri orðinn mikið veikur og ljóst væri hvert stefndi sló hann á létta strengi og spurði frétta af vinnufélögunum. Ást hans og umhyggja fyrir Siggu var einstök og augljóst var að hún var honum allt. Síðustu ár hafa verið þeim hjónum erfið, en Sigga hefur átt við alvarleg veikindi að stríða. Geiri var mjög umhyggjusamur og var henni stoð og stytta í veikindum hennar. Við sendum Siggu og öðrum að- standendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Vinnufélagar í bókhaldi VÍS, Örn, Guðrún og Ingunn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.