Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Menn fá misjafna útreið í Kast-ljósi. Á mánudagskvöld sat Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup- þings, fyrir svörum. Hann var spurður um stöðu bankans og stóð sig að mörgu leyti vel.     Umræðan sner-ist hins veg- ar nánast ein- göngu um bankann, en ekki Sigurð og launa- kjör bankastjór- anna, sem þó eru landsmönnum of- arlega í huga þessa dagana, enda í hróplegu ósamræmi við stöðu bankanna.     Í sumar sat Ólafur F. Magnússonfyrir svörum um það leyti, sem hann hrökklaðist úr stóli borg- arstjóra.     Þá var engin feimni við að spyrjaafar áleitinna og persónulega spurninga. Þá dugði ekki að ræða pólitík.     Þegar Richard S. Fuld, forstjóriLehman Brothers, sem nú er gjaldþrota, kom fyrir eftirlits- og umbótanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á mánudag spurði formaður nefndarinnar, Henry Waxman, hann þráfaldlega hvort hann teldi sanngjarnt að hann hefði fengið tugi milljóna dollara í vas- ann. Hann fékk ekkert svar og Waxman hefur líklega ekki átt von á svörum.     Sigurður Einarsson hefði senni-lega ekki svarað heldur.     En málið er ekki að látið skyldi hjálíða að hjóla í Sigurð Einarsson.     Spurningin er hvers vegna fariðer í manngreinarálit í yf- irheyrslum í Kastljósinu. STAKSTEINAR Sigurður Einarsson Farið í manngreinarálit                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                              12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (           !"  #  !"  #      #          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?   $ $ $ $     $  $                                  *$BC              !     "      #      *! $$ B *! % & '"  & " ( )"  *) <2 <! <2 <! <2 % ("' +  # ,-! ) .  !-                  *    B  $   %         &'  (  )    "& *&  /    +        &&   ,    "        -.)   <    87  /-  %          &   "        0      /0 )11 )"2) !)+  # VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR HÆTT var leit að íslenskri konu í Færeyjum sökum myrkurs í gær- kvöldi, en færeyska lögreglan lýsti eftir henni í gærdag. Leit hófst eftir að bíll, sem konan var með á leigu, fannst mannlaus í Vestmanna. Þá átti konan pantað flug frá Fær- eyjum í fyrradag en mætti ekki. Ekkert hefur til konunnar spurst frá því á laugardag. Lögreglu- og slökkviliðsmenn, leitarhundar, bát- ur og þyrla tóku þátt í leitinni í gær. Að sögn lögreglunnar í Færeyj- um er um að ræða 61 árs gamla konu, sem kom til Færeyja á föstu- dag. Leit hætt vegna myrkurs DAVÍÐ Oddsson seðlabankastjóri hefur á undanförnum vikum átt í ít- arlegum viðræðum við seðlabanka beggja vegna Atlantsála, að því er fram kom í viðtali Kastljóssins í gær. Davíð rakti þar samskiptin við er- lenda seðlabanka og sagðist hafa átt í „mjög margvíslegum viðræðum við seðlabankastjóra stórra landa og reyndar bréfaskiptum líka“. „Ég hef átt í miklum viðræðum við Mervyn King, bankastjóra Eng- landsbanka, [Jean-Claude] Trichet, forseta evrópska seðlabankans, og ég hef [...] marg- oft rætt við Tim Geithner, banka- stjóra seðlabanka Bandaríkjanna í New York, sem er í stjórn banda- ríska seðlabank- ans og sér um slíka hluti. Og núna síðast að þá vor- um við komnir dálítið langt í viðræð- unum og bæði Geithner og [Donald L.] Kohn, sem er einn af forsetum seðlabankans í Washington, voru komnir í málið og það var búið að bera það undir [Ben] Bernanke [seðlabankastjóra Bandaríkjanna],“ sagði Davíð og hélt áfram. Fá ekki sömu fyrirgreiðslu „Svo varð niðurstaðan sú, eftir at- hugun Bandaríkjamanna, að að þessu sinni að þá ætluðu þeir ekki að veita okkur sömu fyrirgreiðslu eins og Dönum, Norðmönnum og Svíum [...] Við útskýrðum það fyrir þeim, eða reyndum það [...] að þeir yrðu að átta sig á því að við værum talin í hópi Norðurlandanna og þess vegna myndi það vekja meiri athygli og verða skaðlegt fyrir okk- ur ef við værum ekki með. En það er ekki víst að þeir hafi alveg áttað sig á því samhenginu, en við höfum átt mjög miklar og ágætar viðræður við þá.“ baldura@mbl.is Viðræður voru langt komnar Seðlabankastjóri margoft rætt stöðuna við yfirmenn í bandaríska seðlabankanum Davíð Oddsson Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÞAÐ sem er ánægjulegt við þessa yfirlýsingu Davíðs er að hann skuli núna telja að lækka skuli vexti, Seðlabankinn hefur nú ekki verið á þeim buxunum lengi,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins Í Kastljósi í gær sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri að haga þurfi kjarasamningum þannig að það skapist ró og að Seðlabankinn geti farið að lækka vexti. „Það er orðið mikilvægt að við getum farið að gera það. Og þar er samvinna við aðila vinnumarkaðarins mikilvæg,“ sagði Davíð. Hann sagði því nauðsynlegt að aðilar vinnumarkaðarins næðu fljótt saman um festu í kjarasamn- ingum um skamma hríð. Andanum náð „Ég tel að menn muni aðeins reyna að ná andanum fyrst eftir at- burði síðustu helgar og svo kemur að því fyrr en síðar að við setjumst nið- ur og ljúkum gerð kjarasamninga,“ segir Vilhjálmur. „Í síðustu tvö skipti sem við unnum að kjarasamn- ingum fannst manni nú á Seðlabank- anum að það væri tilefni til að hækka vexti í kjölfar þeirra samninga, svo það er ánægjulegt ef orðin er stefnu- breyting þar á.“ Hann segir að sam- band hafi ekki verið haft við SA af hálfu Seðlabankans varðandi þessi mál „enda hefur Seðlabankinn alltaf undirstrikað að hann taki vaxta- ákvarðanir alveg sjálfstætt.“ Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir ljóst að lækkun vaxta sé mjög brýn en fleira sé aðkallandi en end- urnýjun kjarasamninga. „Ég hef skilið það svo allavega síðasta sólar- hringinn að það væri neyðarástand sem hefði kallað fram þessi neyðar- lög og þá hlýtur allt að vera undir. Að mínu viti mega þá engar heilagar kýr vera í stöðunni og ég held það sé sitthvað fleira sem þarf að gera í þessu samfélagi en fara í endurskoð- un samninga.“ Stefnubreyting um vexti ánægjuleg Samningar gætu leitt til vaxtalækkunar Vilhjálmur Egilsson Grétar Þorsteinsson VARÐSKIP Landhelgisgæslunnar er á leið til aðstoðar við færeyska togarann Rasmus Effersöe sem er vélarvana 9-10 sjómílur undan A- Grænlandi og um 550 sjómílur norð- ur af Akureyri. Gæslunni barst beiðni um aðstoð á mánudagskvöld og varðskip hélt þegar til aðstoðar úr Reykjavíkurhöfn. Búist er við að það verði komið á staðinn um hádegi á fimmtudag. Að sögn skipverja er veður sem stendur gott á svæðinu, nokkur hafís en veðurspá góð. Áætlað er að varðskipið dragi togarann til Akureyrar. Gæslan á leið til aðstoðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.