Morgunblaðið - 08.10.2008, Side 23

Morgunblaðið - 08.10.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 23 Elsku Gummi bróðir. Mér finnst svo skrítið að hafa þig ekki lengur hjá mér. Ég á svo margar minningar og langar að rifja upp nokkrar. Þeg- ar við fórum í Þrastaskóg keyrandi á Bronco-bílnum, ég, þú og Karen. Við villtumst því stundum var keyrt dá- lítið greitt, þannig að þú gast engan veginn fylgst með því hvar þú varst. En þá kom talstöðin þín að góðum notum. Þú kallaðir á Grétu og Gyðu sem voru á öðrum bíl þannig að við komumst á leiðarenda og áttum svo saman góða viku. Og þegar þið Gréta buðuð okkur krökkunum heim til ykkar í Krummahóla í bíó með poppi og kók. Ekki má gleyma því að þú varst oft að leiðbeina mér í lífinu og stóðst alltaf við bakið á mér. Svo átt- um við saman yndislega helgi í sumar með fólkinu okkar. Þakka þér fyrir að hafa fylgt mér og mínum öll þessi ár. Hann vissi um veginn til himins gegnum frelsarans slóð. Hann kunni bæði sálma og bænir sögur og ljóð samt fór hann aldrei veginn hvernig sem á því stóð. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þín systir, Guðmunda. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Við kynntumst Guðmundi fyrir rúmum fimm árum. Það er þungbært að hugsa til þess að hann sé dáinn og samverustundirnar verði ekki fleiri. Við hefðum viljað hitta hann mun oft- ar en við gerðum og nú er of seint að bæta úr því. Við hittum Guðmund síðast í júní. Það er okkur mjög minnisstæð stund þegar hann leiddi Grétu sína út á dansgólfið og sveiflaði henni um allt gólfið í flottum dansi. Þau brostu all- an hringinn og virtust ástfangin upp fyrir haus. Helst minntu þau okkur á menntaskólapar sem var að stíga sín fyrstu skref saman. Ekki óraði okkur fyrir því að þetta væri í síðasta sinn sem við ættum góðar stundir með Guðmundi. Við yljum okkur nú á köldum haustdögum við minningarn- ar um þennan mæta mann sem Guð- mundur var. Við minnumst m.a. stundanna í Miðhúsaskógi og á Þing- völlum. Eina helgina á Þingvöllum fengum við óvænta heimsókn í tjaldið okkar. Úti var hávaðarok og rigning. Allir voru flúnir heim vegna óveðurs- ins. Þar voru hjúin úr Vesturberginu mætt, jafnþrjósk og við að láta ekki veðrið aftra sér frá góðri útilegu og mögulegri veiði. Gréta hefur æ síðan grínast með að öruggara sé að vera á öðru landshorni en við í sumarfríi, þá væri kannski möguleiki á sól og sum- aryl. Þessi kvöldstund á Þingvöllum er um margt eftirminnileg fyrir utan veðrið og vonlausa veiðiferð. Við sötruðum kaffi og Baileys til að halda á okkur hita og hlógum mikið yfir skemmtilegum sögum Guðmundar frá veiðivarðarárum hans og einnig yngri árum þegar hann túraði um landið með Bubba og fleirum. Því þykir okkur við hæfi að kveðja Guð- mund með texta eftir hann. Megi all- ar vættir heimsins vernda ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímamótum elsku Gréta, Inga Vigdís, Birgir, Jóna, barnabörn og aðrir aðstand- endur. Okkur langar að koma á framfæri að opnaður hefur verið styrktar- reikningur til stuðnings Grétu og fjölskyldu hennar. Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmerið er 0101- 26-55352, kt. 191152-2639. Hvíl í friði Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir og Ívar Torfason. Þegar ég var lítil stelpa og vildi ekki fara heim frá afa og ömmu eftir fjölskylduboð var brugðið á það ráð að láta Guðmund klæða mig. Ég bar nefnilega óttablandna virðingu fyrir honum og sat alveg kyrr á meðan hann klæddi mig. Ég vil ekki segja að ég hafi verið hrædd við hann þar sem hann reyndist mér alltaf svo góður. Þessar minningar á ég ekki sjálf, mín fyrsta minning um Guðmund er þeg- ar ég er hjá honum og Grétu í Krummahólunum að horfa á sjón- varpið og ég mátti sitja í húsbónda- stólnum og best fannst mér að sitja í fanginu á Guðmundi. Á þessum árum gekk hann mér að vissu leyti í föð- urstað, enda bjó pabbi minn þá langt í burtu og gerir reyndar enn. En það eru margar minningar sem streyma fram frá barnæsku og fram á ung- lingsár, ferðalög alla leið vestur á firði og í sumarbústaði, já ég fór ým- islegt með Grétu og Guðmundi. En eins og oft vill verða þá fjarlægist fólk þegar það fullorðnast, og þannig var það með samband mitt við Guð- mund. Við nutum þess samt alltaf að hittast og spjalla saman, ekki alltaf sammála en það gerir hlutina nú bara aðeins skemmtilegri. Samband okkar Guðmundar var reyndar alltaf þannig að það voru engar kvaðir gerðar, aldrei kvartað yfir að við hitt- umst ekki nógu oft eða þess háttar, bara notið þess að hittast þegar tæki- færi voru til. Guðmundur og Gréta, Gréta og Guðmundur, þar sem annað þeirra var þar var hitt, en samt á svo óþvingaðan hátt. Þau voru fyrir- myndarhjón enda búin að eiga langt og farsælt hjónaband. Eins og hjá öllum skiptast á skin og skúrir en alltaf stóðu þau saman. Gréta frænka mín hefur misst mikið, líkt og móðir hennar, amma mín, stendur hún frammi fyrir því að vera orðin ekkja alltof ung, alltof snemma. Megi al- góður guð styrkja hana í framtíðinni. Einnig bið ég guð að styrkja foreldra Guðmundar, systkini hans og ekki síst börnin hans Birgi Kristján og Ingu Vigdísi, tengdadótturina Jónu, og barnabörnin, sem voru honum svo kær. Karen Jenný. Elsku frændi okkar. Við viljum þakka þér allar stundirnar sem þú hefur gefið okkur og munum varð- veita þær í hjarta okkar. Sef um daga, dreymir um nætur dreymir um það sem áður var. Kafa svefninn, kanna hugann kannski finn ég eitthvað þar sem hjálpað gæti mér að muna og minnast þín í hjarta mér. Nóttin langa lág svo hvíslar leiðist þér að vaka með mér? (Bubbi Morthens.) Þínar frænkur, Birgitta, Helga og Anna María. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR AÐALHEIÐAR ARNFINNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða, fyrir góða umönnun. Ragnar Hallvarðsson, Guðrún Hallvarðsdóttir, Jón Sævar Hallvarðsson, Jóhanna Arnbergsdóttir, Halla Guðrún Hallvarðsdóttir, Ásgeir Samúelsson, Arnfinnur Hallvarðsson, Guðrún Berta Guðsteinsdóttir, Einvarður Hallvarðsson og ömmubörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður, afa, langafa og langalangafa, SVEINS HRÓBJARTS MAGNÚSSONAR, Kleifahrauni 3, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir góða umönnun og hlýhug. Sigríður Steinsdóttir, synir og aðrir aðstandendur. ✝ SVAVAR FANNDAL TORFASON meistari í rafvélavirkjun, Grenilundi 12, Garðabæ, sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 28. september, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju föstudaginn 10. október kl. 13.00. Sólbjört Gestsdóttir, Hólmfríður Fanndal Svavarsdóttir, Ingólfur Arnarson, Sigríður Guðjónsdóttir, Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Rósa Arnardóttir, Jón Vilhjálmsson og fjölskyldur. Birgir var eigin- maður Kolbrúnar Theódórsdóttir frænku minnar en hún er elsta barn Huldu Kjerúlf föðursystir minnar og Theódórs Johansen frá Færeyjum. Það mun hafa verið 1965 sem ég kynntist Bigga fyrst, há- vöxnum og myndarlegum manni og héldust þau kynni æ síðan og bar aldrei neinn skugga þar á. Að vísu var dálítið langt á milli okkar í kíló- metrum talið en það kom ekki í veg fyrir að vinskapurinn dafnaði, því okkur var ekki lagið að telja mikið kílómetra ef ferðahugurinn greip okkur og alltaf var pláss til að gista hjá Bigga og Kollu og skipti engu hvað klukkan var, hvaða árstími var né hvað ferðalangarnir voru margir, hvort sem það var í Skarðshlíð, Ein- holti eða Huldugili því þar bjuggu samhent hjón og rausnarskapurinn var í fyrirrúmi. Fyrir það ber að þakka og sú skuld verður aldrei greidd að fullu. Samband þeirra hjóna við Austur- land var sérstakt, oft var komið við í Brekkugerði, farið að veiða og skoða náttúruna, heimsækja frændfólk og ræða málin. Fyrir fáum vikum voru þau hjón á ferðalagi hér fyrir aust- an, komu við hjá okkur hjónum, stoppuðu góða stund og snæddu kvöldverð. Birgir var lasinn en bar Birgir Valdemarsson ✝ Birgir Valde-marsson fæddist á Akureyri 27. apríl 1941. Hann andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri 22. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram í kyrrþey. sig vel, minntist að- eins á að ekki væri nógu rösklega unnið á heilbrigðisstofunum og var orðinn lang- þreyttur á að bíða eft- ir niðurstöðum úr rannsóknum, einarður að vanda og þótti illt að geta ekki gert góð- um mat betri skil. Ekki grunaði mig þá að þetta yrði okkar síðasti fundur því Ak- ureyrarferð var fyrir- huguð hjá okkur hjón- unum, en þegar þar að kom var sú ferð farin til að kveðja þennan ágæta mann. Ég hef átt því láni að fagna um dagana að kynnast mörg- um ágætum Akureyringum og einn þeirra var Birgir Valdimarsson fremstur meðal jafningja. Við útförina varð mér hugsað til þess að ég minntist þess ekki að hafa nokkurn tíman heyrt neitt ann- að en gott um þennan ágæta dreng. Það var kalt í veðri en sólskin, þriðjudaginn 3. september síðastlið- inn og fallegt á Akureyri þegar Birgir var kvaddur hinstu kveðju frá Höfðakapellu. Útgöngulagið var Hreðavatnsvalsinn sem var vel við hæfi og hef ég ekki heyrt það ágæta lag betur flutt í annan tíma, eftir stóð minningin um heilsteyptan og góðan dreng. Við hjónin sendum Kollu og henn- ar fólki samúðarkveðjur og vonum að framtíðin verði gjöful á áfram- haldandi vináttu okkar í milli og ég veit að þess óskar líka Þórey systir mín, Dodda og Siggi, Alda og Svenni, Vassi og Sigga og öll hin. Megi guð blessa þig og þína. Sölvi Kjerúlf. Elsku besta amma, þá er komið að leiðar- lokum hjá þér og við verðum að skilja um hríð en þú hefur skilið okk- ur eftir með fullt af yndislegum minningum sem við getum nú leitað huggunar í. Þú varst alltaf svo þolinmóð við okkur og góð og nenntir endalaust að leika við okkur eða spila. Þú kenndir okkur svo mikið af ljóðum og okkur fannst óskaplega gaman að hlusta á sögur af álfum, huldufólki og tröll- um. Og góðar eru nú líka minningarn- ar um allar fjallgöngurnar sem við þrjár fórum í og þú fræddir okkur um fjöll og blóm og sagðir okkur sög- ur úr firðinum okkar. Við söknum þín sárt elsku amma en það er huggun í að vita að núna ✝ Sigríður Ingi-björg Eyjólfs- dóttir fæddist á Bjargi í Borgarfirði eystra hinn 30. júlí 1921. Hún lést á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 17. sept- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bakka- gerðiskirkju 25. september. líður þér vel og þúr ert komin aftur heim í fjörðinn fagra. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndar- dómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Ýrr og Sif. Sigríður Ingibjörg Eyjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.