Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SHOGUN vann Músíktilraunir árið 2007, fyrir rétt liðlega einu og hálfu ári, með níðþungu rokki sem skildi salinn eftir líkt og hann hefði fengið kjaftshögg eins og blaða- maður Morgunblaðsins komst að orði á sigurkvöldinu. Sveitin hefur haldið uppi reglu- legri spilamennsku síðan þá og síð- asta árið eða svo hefur hún verið að að púsla saman plötu, hægt og bítandi, en hún leit dagsins ljós síð- asta fimmtudag og kallast Charm City Blanda „Við spiluðum talsvert í kjölfar Músíktilrauna en drógum okkur svo í hlé til að geta einbeitt okkur að plötugerðinni,“ segir Jóakim Snær Sigurðarson bassaleikari. „Við höfum verið að vinna í henni þrotlaust síðan og ákváðum að gefa okkur eins mikinn tíma og þyrfti. Hún er tekin upp hjá Einari Lúðvíkssyni í Stúdíó 6110, sem er svona bílskúrsstúdíó. Við vorum tiltölulega reynslulitlir en ég og Gummi (gítarleikari) höfðum reyndar unnið plötu með gömlu hljómsveitinni okkar, Love Taken Away.“ Í tónlist Shogun úir og grúir af stílum; menn hendast úr há- skólarokki í grípandi keyrsluriff og svo í níðþunga hausaskakskafla í einu og sama laginu. Jóakim segir að sigurinn í Músíktilraunum hafi sannfært þá félaga um að þessi „blöndunarbraut“ væri sú rétta. „Sigurinn var gríðarlega hvetj- andi. Það er varlega farið í að blanda öllu svona saman og það getur komið bjánalega út. En við lögðumst yfir þetta af meiri ná- kvæmni eftir sigurinn.“ Í gegnum ofsafengna keyrslu Shogun má vel greina að hljóðfæraleikararnir kunna sitt fag og vel það. Var erf- itt að stilla af rokkandi sveitt grúv og hreinar tækniæfingar? „Það þurfti stundum að stoppa suma menn af,“ segir Jóakim og hlær. „Ég persónulega er t.a.m. mikið fyrir einfaldleikann en að mínu viti tókst okkur vel að feta milliveginn í þessum fræðum.“ Breytingar Shogun er nýkomin úr stuttum túr um landið sem gekk vonum framar að sögn Jóakims og vel gekk að selja nýútkomna plötu eft- ir tónleika. Sveitin kemur fram á Airwaves í næstu viku og fleiri tón- leikar eru framundan, hugsanlega einhverjir erlendis. Sú breyting hefur þá orðið á sveitinni að ný- lega gekk trymbilinn Andri Freyr Þorgeirsson úr sveitinni. Það er Martin Davíð Jensen (Snafu, Fin- negan, Shima) sem leysir hann af hólmi. Þessir sjarmerandi menn …  Öfgarokkssveitin Shogun, sigurvegarar Músíktilrauna 2007, gefur út langþráðan frumburð  Tilraunasigurinn stappaði duglega í hana stálinu og leiddi hana í ævintýralegt stílasamkrull Morgunblaðið/Eggert Shogun Vernharður (gítar), Guðmundur (gítar), Ásgeir (söngur), Jóakim (bassi) og Martin (trommur, leysir Andra Þorgeirsson af hólmi). Tóndæmi má nálgast á www.- myspace.com/shogunice. Sveitin gefur sjálf út en kimi dreifir. SHOGUN sigruðu í fyrra en það var Agent Fresco, um margt áþekk sveit, sem sigraði í ár. Agent Fresco tekur melódíska djassspretti í bland við gallsúrt bylmingsrokk og er um þessar mundir að vinna að fimm laga stuttskífu. Kallast hún Lightbulb Universe og kemur út í nóvember. Samkvæmt Arnóri Dan Arnarsyni söngvara er allt hljóðritunarferlið í þeirra höndum. „Platan verður mikið „unnin“ og lítið um hráan bílskúrshljóm,“ segir hann. „Það er einfaldlega vegna þess að græjunum okkar er fyrirmunað að taka inn hráan hljóm!“ Agent Fresco treður upp í Listasmiðju FB í kvöld ásamt fleiri sveitum. Hún mun þá halda slatta af tónleikum í þessum mánuði og m.a. kemur hún fram á Airwaves. Hvað með sigurvegarana í ár? SÝND Í SMÁRARBÍÓI - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR - B.S., FBL - Þ.Þ., D.V. - S.V., MBL “MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN” -S.M.E., MANNLÍF “REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á ÚRVALSSKEMMTUN” -DÓRI DNA, DV “AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND (EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.” -B.S., FRÉTTABLAÐIÐ 20% afsláttur af miðaverði sé greitt með greiðslukorti Vildarklúbbs GlitnisSÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRARBÍÓI, 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Burn after Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Pineapple Express kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára Step Brothers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Mirrors kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Rafmögnuð Reykjavík kl. 10:15 LEYFÐ -T.S.K., 24 STUNDIR - S.V., MBL - Þ.Þ., DV -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS 650k r. -L.I.B.,TOPP5.IS/FBL - DÓRI DNA, DV -T.S.K., 24 STUNDIR - H.J., MBL 650k r. 650k r. 650k r. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Reykjavík Rotterdam kl. 6 - 8 - 10 B.i.14 ára Pineapple Express kl. 8 - 10 B.i.16 ára Mamma Mia kl. 5:50 LEYFÐ Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Reykjavík Rotterdam kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.i. 14 ára Burn After Reading kl 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Sveitabrúðkaup kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ 650k r. Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn S.V. MBL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.