Fréttablaðið - 21.04.2009, Qupperneq 2
2 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Fjórir sérsveitar-
menn Ríkislögreglustjóra stukku
um borð í smyglskútuna Sirtaki
OR 2387 þar sem hún sigldi á
fullri ferð frá landinu í fyrra-
kvöld, til að stöðva ferð hennar.
Áður höfðu verið losuð úr henni
rúm 109 kíló af amfetamíni,
kannabisefnum, hassi og e-töfl-
um þar sem hún lá út af Djúpa-
vogi.
Lögregla handtók þrjá menn
aðfaranótt sunnudags. Þeir höfðu
komið á tveimur jeppabifreiðum
til Djúpavogs og voru með gúm-
bát meðferðis. Í honum sóttu þeir
efnin út í skútuna. Einn mann-
anna, Pétur Kúld Pétursson, var
með fíkniefnin í töskum í bíl
sínum þegar hann var handtek-
inn við Höfn í Hornafirði. Menn-
irnir, sem allir hafa komið við
sögu lögreglu áður, eru á þrí-
tugsaldri. Þeir voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til 11. maí. Þeir
eru, auk Péturs, Jónas Árni Lúð-
víksson og Halldór Hlíðar Berg-
mundsson.
Í hlut Landhelgisgæslunnar
kom að staðsetja skútuna á hafi
úti og stöðva för hennar. Flug-
vél Gæslunnar TF-Sýn hafði
verið nær stöðugt á lofti frá því
á sunnudagsmorgun til að leita
skútunnar og finna hana. Vélin
var á síðustu bensíndropunum
þegar varðskipið Týr náði svo
flóttafleyinu á radar. Talsverð
samskipti áttu sér stað um talstöð
milli flóttamannanna og áhafnar
Sýnar. Þau fóru fram á ensku, þar
sem ekki var vitað hverrar þjóðar
mennirnir voru. Þeim var skipað
að stöðva ferð sína og halda til
hafnar á Íslandi eða í Færeyjum.
Þeir þverneituðu skipununum, en
sögðu að menn væru velkomn-
ir um borð til þeirra. Flótta-
mennirnir breyttu oft um stefnu
meðan á eftirförinni stóð. Meðal
annars kváðust þeir fyrst fara til
Færeyja, en síðan til Belgíu til að
skila skútunni. Týr sigldi skútuna
uppi og Gæslumenn og sérsveitin
settu út svokallaðan aðgerðabát
Gæslunnar. Um borð í hann fóru
sérsveitarmenn og stýrimaður
frá Gæslunni. Þeir sigldu yfir
að skútunni og stukku um borð á
henni þrátt fyrir myrkur, slæmt
veður og haugasjó. Hún sigldi þá
fyrir fullu vélarafli um það bil 65
sjómílur frá Færeyjum. Um borð í
henni reyndust vera tveir Íslend-
ingar, Árni Hrafn Ásbjörnsson og
Rúnar Þór Róbertsson, annar um
þrítugt og hinn á fimmtugsaldri,
auk Hollendings á fimmtugsaldri
sem var skipstjóri hennar. Sá síð-
astnefndi hefur komið hingað til
lands áður. Þeir gáfust mótþróa-
laust upp.
jss@frettabladid.is
Verjum velferð, sköpum störf
Velferðarmál eru atvinnumál – stöndum vörð um störf í heilbrigðis-
og menntakerfinu. Sköpum ný störf með mannaflafrekum
framkvæmdum í viðhaldi og endurbótum.
Stefán, á þetta eftir að hleypa
lífi í útförina?
„Ja, er ekki ágætt að lokastundin sé
dálítið litrík?“
Líkkistuverkstæðið Íslandskistur býður
upp á myndskreyttar líkkistur. Stefán
Matthíasson er annar eigenda verkstæð-
isins.
Sérsveitarmenn stukku upp
í smyglskútuna á fullri ferð
Fjórir sérsveitarmenn stukku um borð í smyglskútuna Sirtaki þar sem hún var á fullri ferð norður af Fær-
eyjum. Haugasjór var, kolniðamyrkur og hvassviðri, þegar sérsveitarmennirnir stöðvuðu flóttamennina.
SAMVINNA Fulltrúar embættanna sem
vinna að smyglmálinu, auk lögreglu á
Eskifirði, f.v. Friðrik Smári Björgvinsson
yfirlögregluþjónn, Stefán Eiríksson
lögreglustjóri, Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, og Karl Steinar
Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar.
FÍKNIEFNAHLASSIÐ Fíkniefnin sem reynt var að smygla til landsins í þessari lotu voru
um 109 kíló. Um það bil helmingur er amfetamín en hinn helmingurinn saman-
stendur af maríjúana, hassi og e-töflum.
Rúnar Þór Róbertsson og Jónas Árni
Lúðvíksson voru í júlí 2007 sýknaðir
af ákæru um að hafa flutt inn 3,8
kíló af kókaíni í bíl og fjarlægt gervi-
efni úr bílnum. Það var þá mesta
magn af kókaíni sem lagt hafði
verið hald á hérlendis.
Lögregla hafði fundið efnið í
Benz-bíl við komuna til landsins
og skipt því út fyrir gerviefni. Jónas
fjarlægði síðan gerviefnið úr bílnum
ásamt Rúnari, sem ákærður var fyrir
innflutning efnisins. Þeir voru báðir
sýknaðir.
„Við fyrstu sýn kann framburður
þeirra að virðast ótrúverðugur og
reyfarakenndur á köflum. Það er
mat dómsins að svo sé ekki,“ segir í
niðurstöðu héraðsdóms. „Við blasir
að ekki hefur tekist að upplýsa
málið,“ sagði enn fremur.
Til grundvallar sýknunni yfir
Jónasi lá meðal annars frétt úr DV
þar sem sagt var frá fíkniefnafund-
inum áður en bíllinn var sóttur.
Jónas kvaðst þannig hafa vitað
að í bílnum væru engin fíkniefni
- aðeins gerviefni.
Rúnar Þór stendur nú í skaða-
bótamáli gegn íslenska ríkinu vegna
hálfs árs varðhalds sem hann sætti
við meðferð málsins. Jónas Árni sat
í varðhaldi í fjóra mánuði. - sh
RÚNAR ÞÓR Í SKAÐABÓTAMÁLI VIÐ RÍKIÐ
SAKLAUSIR Rúnar Þór er með sólgler-
augu. Jónas Árni hylur andlit sitt með
ljósriti af frétt DV, grundvallargagni í
málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Tveir sérsveitarmenn
Ríkislögreglustjóra gættu tveggja
manna, Rúnars Þórs Róbertssonar
og Árna Hrafns Ásbjörnssonar, um
borð í varðskipinu Tý í gær og nótt
meðan varðskipið fylgdi smyglskút-
unni Sirtaki OR 2387 í átt að Eski-
firði. Hollendingur, sem var ásamt
hinum ofangreindu um borð í skút-
unni þegar hún var tekin, var um
kyrrt í henni ásamt tveimur sér-
sveitarmönnum og stýrimanni frá
Landhelgisgæslunni.
Segl voru undin upp á smyglskút-
unni í gærdag og siglt fyrir góðum
byr. Vonast var til að það flýtti för
en gert var ráð fyrir að hún kæmi
til Eskifjarðar klukkan átta í morg-
unsárið.
Skútan sem um ræðir er skráð í
Belgíu, í eigu fyrirtækis sem leigir
hana út. Hún er fjörutíu fet að lengd
og ríkulega innréttuð. Henni var
siglt undir hollenskum fána þegar
Landhelgisgæslan og sérsveitar-
mennirnir stöðvuðu hana á sunnu-
dagskvöld. Ekki var ljóst í gær hver
eða hverjir hefðu leigt skútuna eða
hvort hún hefði komist í hendur
mannanna með öðrum hætti. - jss
Smyglskútunni siglt undir seglum til lands í fylgd varðskipsins Týs:
Sérsveitarmenn gættu fanga
SKÚTUNNI FYLGT TIL HAFNAR Varðskipið Týr og skútan Sirtaki eru væntanleg til hafn-
ar á Eskifirði nú í morgunsárið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BJÖRGUN Björgunarsveitarmenn
úr Björgunarfélagi Hornafjarðar
sóttu í gær þrjár konur á Öræfa-
jökul. Konurnar ætluðu að ganga
frá Jökulheimum yfir Vatnajökul
en þurftu að stoppa og kalla eftir
hjálp þegar þær voru komnar lang-
leiðina. Veðrið var þá afleitt og
konurnar við það að fenna í kaf, að
eigin sögn. Þær voru þá örþreyttar.
Konurnar þrjár voru vel búnar
og í símasambandi við Landsbjörg
allan tímann. Upplýsingafulltrúi
Landsbjargar segir það ekki hafa
verið mat manna að þær væru í
hættu. Menn á bílum og vélsleðum
mættu konunum á ellefta tímanum
í gærmorgun. - sh
Þrjár fastar á Öræfajökli:
Voru við það
að snjóa í kaf
JAMAÍKA, AP Ungum manni, vopn-
uðum byssu, tókst að komast
framhjá öryggiseftirliti á flug-
velli við orlofsdvalarstaðinn
Montego Bay á Jamaíku í Karíba-
hafi í gær, og um borð í Boeing
737-þotu kanadíska flugfélagsins
CanJet. Þar hélt hann sex manna
áhöfn vélarinnar fanginni uns
sérsveit lögreglu réðst til inn-
göngu í vélina nær átta tímum
síðar og handtók hann.
Í ljós kom að byssumaðurinn
var tvítugur Jamaíkabúi sem
sagður er eiga við geðsýki að
stríða. Hann kvað hafa farið fram
á að vera flogið til Kúbu. - aa
Flugránstilraun á Jamaíku:
Hélt áhöfninni
í átta tíma
TAUGASTRÍÐ Boeing-þota CanJet á flug-
vellinum við Montego Bay í gær.
MENNTUN Boðið verður upp á 35 námskeið á öllum
fræðasviðum á sumarönn í Háskóla Íslands og nem-
endum gert kleift að þreyta allt að hundrað próf um
haustið. Þetta tilkynntu þær Kristín Ingólfsdóttir
rektor, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og
Hildur Björnsdóttir, formaður stúdentaráðs, í gær.
Skólinn fær til þessa fimmtíu milljóna aukafjár-
veitingu frá menntamálaráðuneytinu. Áður hafði
ríkissjóður hækkað framlag til lánasjóðs náms-
manna um 660 milljónir króna.
„Við erum bara mjög sátt við þetta og stúdentarn-
ir eru sáttir líka,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor
HÍ. Samráð við nemendur hafi verið haft um sumar-
námið, meðal annars um hvaða námskeið ætti að
kenna. Framboðið verður kynnt á næstunni.
Kristín tekur fram að með þessu sé ekki allt sagt,
því einnig verði boðið upp á lesnámskeið og ýmsa
aðstöðu. „Svo vildi ég segja að fyrirtæki og stofnanir
hafa komið með hugmyndir að námskeiðum og boðið
fram kennslukraft, okkur að kostnaðarlausu,“ segir
hún. Það nám bættist við áðurnefnd 35 námskeið.
Fjarnám verði í boði í einhverjum tilfellum. - kóþ
Menntamálaráðuneyti styrkir námsmenn og Háskóla Íslands um 50 milljónir:
Boðið upp á 35 námskeið
KRISTÍN, KATRÍN OG HILDUR Háskólinn fær fimmtíu milljónir
til að standa straum af kostnaði sumarnáms. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL VG fengi 31,2 prósent
atkvæða, Samfylkingin 27, Sjálf-
stæðisflokkurinn 22,9 prósent,
Framsókn 10,6 og Borgarahreyf-
ingin 4,9 prósent, samkvæmt
könnun Rannsóknarmiðstöðvar
Háskólans á Bifröst. Þá fengju
Frjálslyndir 2,2 prósent og Lýð-
ræðishreyfingin 0,2.
Einnig var spurt hvort Guð-
laugur Þór Þórðarson ætti að
víkja af lista sjálfstæðismanna
í Reykjavík. 49,3 prósent eru
hlynnt því, en 21,5 prósent ekki.
Tæp 75 prósent svarenda eru
óánægð með framkvæmd lýðræð-
is á Íslandi, en 92,6 prósent telja
það þó besta stjórnarformið. - kóþ
Könnun Háskólans á Bifröst:
Vinstri græn
með 31 prósent
SPURNING DAGSINS