Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 4

Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 4
4 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR SAMGÖNGUR Ekki er rétt að eig- endum hafi ekki verið kynntar þær reglur sem gilda um skoðun ökutækja, segir í tilkynningu frá Umferðarstofu. Í Fréttablaðinu á laugardag var rætt við eiganda bíls með einka- númeri sem sagði bifreiðaeigend- ur leidda í gildru með því að miða við tölustafi í einkanúmeri frekar en fastanúmeri bíla. Í tilkynningu Umferðarstofu segir að Samgönguráðuneytið hafi sent út kynningu til eigenda ökutækja í janúar. Þar hafi fólk verið hvatt til þess að leita sér upplýsinga á vef Umferðarstofu, enda ekki hægt að koma öllum upplýsingum fyrir í bréfinu. - bj Eigendur ökutækja varaðir við: Kynntu breyt- ingar í janúar BORGARAHREYFINGIN (O) 1. Gunnar Sigurðsson 2. Lilja Skaftadóttir 3. Guðmundur Andri Skúlason 4. Ingibjörg Snorradóttir Hagalín FRAMSÓKNARFLOKKURINN (B) 1. Gunnar Bragi Sveinsson 2. Guðmundur Steingrímsson 3. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson 4. Elín R. Líndal FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN (F) 1. Guðjón Arnar Kristjánsson 2. Sigurjón Þórðarson 3. Ragnheiður Ólafsdóttir 4. Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson NORÐVESTURKJÖRDÆMI LÝÐRÆÐISHREYFINGIN (P) 1. Jón Pétur Líndal 2. Alongkron Visesrat 3. Arnór Snorri Gíslason 4. Bjarki Birgisson SAMFYLKING (S) 1. Guðbjartur Hannesson 2. Ólína Þorvarðardóttir 3. Anna Lára Jónsdóttir 4. Þórður Már Jónsson SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR (D) 1. Ásbjörn Óttarsson 2. Einar K. Guðfinnsson 3. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir 4. Birna Lárusdóttir VINSTRI GRÆN (V) 1. Jón Bjarnason 2. Lilja Rafney Magnúsdóttir 3. Ásmundur Einar Daðason 4. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir 4,75 3,14 4,04 3,98 3,56 3,93 3,16 4,22 íslenskur ríkisborgari Í dag verða undirskriftirnar afhentar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Á undirskriftalistanum eru einstaklingar sem hafa fengið nóg af bruðlinu og vilja að peningarnir séu nýttir í þágu þeirra sem greiða í sjóðina. Yfir 21.000 manns hafa skrifað undir. Alþingiskosningar fara fram næstkomandi laugardag – nýtum atkvæðin okkar. Undirskriftirnar afhentar í Stjórnarráðinu í dag kl. 10:50 2009 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 Kosningar 2007 15,2% (1 þingm.) 25,7% (3 þingm.) 4,0% (0 þingm.) 2,2% (0 þingm.) 2,0% (0 þingm.) 25,5% (2 þingm.) 25,1% (2 þingm.) Fylgi stjórnmálaflokkanna í NV-kjördæmi Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins 20. apríl (Fylgi í % og kjördæmakjörnir þingmenn) Málefni í mikilvægisröð Svarendur gáfu málaflokkum einkunn frá 1 til 5, þar sem 1 er mjög léttvægt en 5 mjög mikilvægt. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 20° 18° 20° 19° 16° 20° 22° 21° 14° 14° 22° 19° 16° 27° 13° 21° 21° 11° Á MORGUN 8-15 m/s hvassast á Vest- fjörðum SUMARDAGURINN FYRSTI 5-15 m/s hvassast V-til 4 6 8 7 10 7 10 8 6 6 2 5 4 4 5 5 5 7 5 8 7 5 3 3 6 109 1 7 8 88 NÝ LÆGÐ Á MORGUN Horfur morgundags- ins eru lítt spennandi. Myndarleg lægð með ausandi slagveðurs- rigningu tekur land á sunnanverðu landinu fyrir hádegi á morgun. Úrkomusvæðið geng- ur síðan yfi r megin- hluta landsins þegar líður á morgundaginn. Ágæt hlýindi verða á morgun en síðan fer heldur kólnandi. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur Á lista Fréttablaðsins á laugardaginn yfir auð hús í miðbæ Reykjavíkur voru nefnd þrjú hús sem ekki standa auð. Búið er að endurgera Grettisgötu 20c og flytja inn, búið er í húsinu á Laugavegi 49a og á Hverfisgötu 41 er einungis auð ein stúdíóíbúð en annar hluti hússins er í leigu. Í umfjöllun um frumsýningu á heim- ildarmyndinni Me and Bobby Fischer var ranghermt að Weird-girls hafi staðið fyrir skákgjörningi. Rétt er að þær heita Karolina, Máv og Karolina og eru ekki neinn hópur. LEIÐRÉTTING DÓMSMÁL Karlmaður sem lúbarði sambýliskonu sína og sló lögreglu- þjón í andlitið hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi, þar af níu mán- uði skilorðsbundna, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn réðst að konunni á heimili þeirra í október síðastliðn- um, sló hana hnefahöggi í andlit- ið þar sem hún lá í rúmi, tók hana því næst upp, kastaði henni í gólfið og sló hana í hnakkann. Hann hélt áfram að veitast að konunni inni á baðherbergi, kastaði henni í gólfið, sparkaði nokkrum sinnum í bakið á henni og steig ofan á hana. Konan marðist illa víðs vegar um líkamann við árásina og hlaut skurð á baki og sprungur í handarbeinum auk þess sem hún fingurbrotnaði. Manninum er gert að greiða henni 600 þúsund krónur í miskabætur. Þá er maðurinn dæmdur fyrir að ráðast á lögregluþjón eftir að hann var handtekinn fyrir að valda umferðarslysi undir áhrifum áfeng- is. Hann kýldi lögregluþjóninn í kjálkann og reyndi síðan að skalla annan lögregluþjón í andlitið en sá náði að víkja sér undan. Maðurinn játaði skýlaust öll brot sín og var tekið tillit til þess þegar ákveðið var hvort skilorðsbinda mætti refsinguna. Auk fangelsisvistarinnar og miskabótanna sem manninum er gert að greiða er hann sviptur öku- rétti í þrjú ár. - sh Maður dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að ráðast á konu sína og lögregluþjón: Gekk í skrokk á konunni sinni ■ Maðurinn gengur hrottalega í skrokk á þáverandi sambýliskonu sinni. ■ Hálfum öðrum mánuði síðar ekur hann mjög drukkinn og lendir í slysi. ■ Á lögreglustöðinni ræðst hann á tvo lögreglumenn. ■ Maðurinn er dæmdur í tólf mán- aða fangelsi. ■ Níu mánuðir eru skilorðsbundnir. ■ Maðurinn þarf að greiða konunni 600 þúsund krónur í miskabætur. KJARNI MÁLSINS Skallaði mann á Draugabar Þrítugur maður hefur verið dæmdur til að greiða sjötíu þúsund króna sekt í ríkissjóð fyrir líkamsárás. Hann skall- aði annan mann á Draugabarnum á Stokkseyri í ágúst í fyrra. DÓMSTÓLAR Svíar vilja evruna Ný skoðanakönnun sýnir að 47 prósent Svía eru hlynntir því að taka upp evru. 45 prósent myndu hafna evrunni. Í fyrri skoðanakönnunum hafa fleiri verið á móti evru en með. SVÍÞJÓÐ SLYS Af þeim tólf sem létu lífið í umferðarslysi í fyrra voru ellefu í bílum en einn á bifhjóli. Fjórir þeirra sem voru í bílum voru ekki í bílbelt- um. Fimm létu lífið í þéttbýli en sjö í dreifbýli. Þetta kemur fram í Slysa- skýrslu Umferðarstofu 2008. Óvenjuhátt hlutfall þeirra sem lét- ust voru 60 ára eða eldri. Sama gildir um hlutfallslegan fjölda þessa aldurs- hóps í alvarlegum slysum. Hann fór úr tæplega þréttán prósentum árið 2007 í um fimmtung í fyrra. Slys með miklum meiðslum voru 97 í þéttbýli en 67 í dreifbýli. Enginn þeirra sem lést var yngri en 17 ára. - ghs Banaslys í umferðinni: Fjórir af ellefu ekki í beltum Efnahagsmál Evrópumál Fiskveiðimál Menntamál Samgöngumál Skattamál Umhverfismál Velferðarmál SKOÐANAKÖNNUN Ekki er marktæk- ur munur á fylgi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2. 25,7 prósent styðja Sjálfstæðisflokkinn og fengi hann því þrjá kjördæmakjörna þing- menn. 25,5 prósent styðja Samfylk- ingu og 25,1 prósent styðja Vinstri græn. Hvor flokkur um sig fengi tvo kjördæmakjörna þingmenn. Fylgi Framsóknarflokks í kjör- dæminu er 15,2 prósent og fengi flokkurinn einn kjördæmakjörinn mann. 4,0 prósent styðja Frjáls- lynda flokkinn, 2,2 prósent styðja Borgarahreyfinguna og 2,0 prósent styðja Lýðræðishreyfinguna. Eng- inn þessara þriggja flokka fengi kjördæmakjörinn mann í Norð- vesturkjördæmi. Svarendur voru beðnir um að gefa átta málaflokkum einkunn á bilinu 1 til 5, þar sem 1 er mjög létt- vægt, en 5 mjög mikilvægt þegar kemur að því hvernig viðkomandi mun kjósa á laugardag og tóku 94,2 prósent svarenda afstöðu til spurn- ingarinnar. Flestir töldu efnahags- málin mikilvægust, þá velferðar- mál og fiskveiðimál. Umhverfismál og Evrópumál þóttu léttvægust. Ekkert málefni fékk þó einkunn undir þremur, sem er hvorki mikil- vægt né léttvægt. Ekkert átta mál- efnanna þótti því léttvægt. Ef svörin eru borin saman við sams konar spurningu fyrir kosn- ingarnar 2007 hefur mikilvægi efnhags-, fiskveiði-, og Evrópu- mála aukist. Mikilvægi velferðar- mennta-, samgöngu-, skatta-, og umhverfismála hefur hins vegar minnkað. Hringt var í 600 manns í kjör- dæminu og skiptust svarendur jafnt eftir kyni. Spurt var; Hvaða flokk myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Óákveðnir voru spurðir, hvaða flokk er líkleg- ast að þú myndir kjósa? Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurð- ir; Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? 75,8 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. svanborg@frettabladid.is Þrír nánast jafnstórir flokkar Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Vinstri græn hafa allir um 25 prósent fylgi í Norðvesturkjördæmi, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Rúm 15 prósent styðja Framsóknarflokkinn. GENGIÐ 20.04.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 206,0065 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 129,03 129,65 187,88 188,8 167,17 168,11 22,438 22,57 19,012 19,124 15,048 15,136 1,3071 1,3147 191,03 192,17 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.