Fréttablaðið - 21.04.2009, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. apríl 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 33 Velta: 126 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
313 -1,58% 649 -1,98%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +0,89%
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALU. -5,2%
MAREL -4,59%
ÖSSUR -1,95%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 173,50 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,13 +0,89% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 120,00 -1,64% ... Icelandair Group 5,00
+0,00% ... Marel Food Systems 52,00 -4,59% ... Össur 90,70 -1,95%
Bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið
Oracle hefur gert bindandi tilboð í
hugbúnaðarfyrirtækið Sun Micro-
systems.
Tilboðið hljóðar upp á 5,6 millj-
arða Bandaríkjadala, jafnvirði
um 725 milljarða króna. Reiknað
er með því að kaupin gangi í gegn
í sumar.
Bandaríska fréttastofan CNN
segir Sun Microsystems vera eftir-
sóttan bita, en stjórn fyrirtækis-
ins ýtti tilboði upp á sjö milljarða
dala frá IBM út af borðinu fyrr í
mánuðinum.
Hluthafar Sun Microsystems og
samkeppnisyfirvöld eiga eftir að
gefa grænt ljós á tilboðið.
- jab
Tölvurisar í
eina sæng
Bank of America, umsvifamesti
banki Bandaríkjanna, hagnaðist
um 4,2 milljarða dala, jafnvirði
544 milljarða íslenskra króna, á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
Til samanburðar nam hagnaður-
inn 1,2 milljörðum dala á sama
tíma í fyrra.
Megnið af hagnaðinum kemur
úr ranni fasteignalánafyrirtæk-
isins Countrywide, sem bankinn
tók yfir í fyrra, og Merrill Lynch,
fjárfestingarbankans sem Bank of
America keypti um áramótin.
Kenneth Lewis, forstjóri bank-
ans, segir góða afkomu nýtast vel
við afar erfiðar aðstæður á fjár-
málamörkuðum.
Bankinn hefur fengið 45 millj-
arða Bandaríkjadala úr neyðar-
sjóði hins opinbera vestan hafs
fyrir fjármálafyrirtæki í vanda
stödd. Það jafngildir rúmum sex
prósentum af fjármagni sjóðsins.
- jab
Koma sterkir
inn í nýja árið
KENNETH LEWIS
Ný útlán Íbúðalánasjóðs á árinu verða átta
til tíu milljörðum lægri en áður hafði verið
ráð fyrir gert, samkvæmt endurskoðaðri
áætlun sjóðsins.
Gert er ráð fyrir að ný útlán nemi 41 til 47
milljörðum króna. Þar af verði leiguíbúða-
lán 12 til 14 milljarðar, en það er um tveggja
milljarða lækkun frá fyrri áætlun, sam-
kvæmt tilkynningu Íbúðalánasjóðs.
Sjóðurinn gerir ráð fyrir að gefa út íbúða-
bréf fyrir 33 til 38 milljarða á árinu til að
fjármagna ný útlán, en það er lækkun um
þrjá til sex milljarða frá fyrri tölum.
Þá áætlar Íbúðalánasjóður að greiðslur til
lánardrottna nemi á bilinu 59 til 65 milljörð-
um króna á árinu, sem sé lækkun um tvo
milljarða frá fyrri áætlun.
„Töluverð óvissa ríkir um útlána- og
útgáfuáætlanir í ljósi breyttra aðstæðna á
fjármála- og fasteignamarkaði. Nákvæm-
ar tölur um áætluð útlán og útgáfu íbúða-
bréfa er því ekki hægt að gefa upp,“ segir í
tilkynningu sjóðsins og áréttað að áætlun-
in sé endurskoðuð ársfjórðungslega og oftar
gerist þess þörf. - óká
Ný útlán 41 til 47 milljarðar
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Myndin er frá undirritun
samkomulags stjórnvalda og lánveitenda fasteigna-
veðlána um samræmingu aðgerða vegna greiðsluerf-
iðleika lántakenda fyrr í mánuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ESB snýst um vinnu
og velferð
Það þarf að vera algjört forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar að hefja aðildarviðræður við
Evrópusambandið. Okkur ber skylda til að láta reyna á þennan möguleika til að tryggja íslenskum
fjölskyldum og fyrirtækjum sömu kjör og best gerast í Evrópu. Viðræður eru mikilvægt skref.
Að þeim loknum hefur þjóðin svo síðasta orðið í atkvæðagreiðslu um niðurstöðuna.
Evrópusambandið er náið samstarf 27 fullvalda ríkja um eflingu
raunverulegra lífsgæða og hugsjóna lýðræðis og jafnréttis. Við teljum
að Íslendingar eigi fullt erindi í þetta samstarf því það mun tryggja að
endurreisnin á Íslandi verði á traustum grunni.
www.xs.is
Við erum sammála helstu samtökum launafólks og atvinnurekenda um kosti aðildar að ESB:
Hraðari endurreisn
Lægri vextir
Afnám verðtryggingar
Stöðugur gjaldmiðill
Meira frelsi til náms erlendis
Afnám gjaldeyrishafta
Fjölbreyttari atvinnusköpun
Fullt forræði þjóðarinnar yfir auðlindum
Öflugri velferðarþjónusta
Hagfræðideild Landsbankans
spáir því að verðbólga lækki um
4,1 prósent á milli mánaða og
verði 11,1 prósent í apríl. Verð-
bólga mældist 15,2 prósent í síð-
asta mánuði.
Deildin segir í fréttabréfi sínu
muna um að húsnæðisverð hafi
lækkað hratt, en fasteignaliðurinn
myndar þriðjung af verðbólgumæl-
ingunum. Þá fellur verðbólgumæl-
ing frá apríl í fyrra út úr ársverð-
bólgumælingunni nú. Hún mældist
3,4 prósent innan mánaðar fyrir
ári en hagfræðideildinni reiknast
til að hún verði 0,3 prósent nú.
Deildin spáir því að verðbólga
haldi áfram að minnka hratt og
fari undir tíu prósent í maí. Gangi
það eftir hefur verðbólga ekki
verið minni síðan í mars í fyrra.
- jab
LÍ spáir 11,1
prósents
verðbólgu
LANDSBANKINN Lægra fasteignaverð
er liður í því að verðbólga dregst hratt
saman. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL