Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 18
 21. apríl 2009 2 Í hverju grammi af alkóhóli eru um sjö hitaeiningar. Í einum stórum bjór (450- 500 ml) eru um 200 hitaeiningar. Í rauð- vínsglasi (125 ml) eru 85 hitaeiningar, í glasi af sætu hvítvíni eru 118 hitaeiningar. Í einu skoti (25 ml) af vodka og gini eru 50 hitaeiningar. Í skoti af Bailey‘s eru um 80 hita- einingar. www.weightlossresources.co.uk ÍSLENSKU VIGTARRÁÐGJAFARNIR eru hluti af Dönsku vigt- arráðgjöfunum sem er alþjóðakeðja ráðgjafa sem eru sérfræðingar með mikla faglega reynslu og bjóða upp á kennslu í að „grenna sig án þess að sleppa úr einni einustu máltíð“. www.vigtarradgjafarnir.is Veitingastaðinn Á grænni grein stofnaði Ingibjörg Agnarsdóttir ásamt dætrum sínum, Hildi Evu og Heiðu Lind, í júní árið 2007. „Ég var að vinna á veitingastaðnum Á næstu grösum sem var í húsnæð- inu áður. Þegar ákveðið var að loka staðnum sagði ég í einhverju bríaríi að ég nennti ekki að leita mér að vinnu og úr varð að ég keypti stað- inn,“ segir Ingibjörg glaðlega og bætir við að önnur dætra hennar hafi meðal annars frestað skrifum á mastersritgerð um hálft ár til að geta unnið með móður sinni. Á veitingastað Ingibjargar er boðið upp á fjóra til fimm heita grænmetisrétti á dag auk nokk- urra salata. Ingibjörg eldar alla réttina sjálf frá grunni en sjaldn- ast notast hún við uppskriftir við eldamennskuna. „Ég nota aðal- lega tilfinningu við matargerð og er hálfpartinn á móti uppskrift- um,“ segir Ingibjörg og vill meina að með því að rýna í slíkan texta gleymi fólk oft að nota heilann og tilfinninguna. Tveir réttir hafa þó fylgt Ingi- björgu frá því hún gerðist græn- metisæta fyrir tuttugu árum. „Það eru lasagna og grænmetis- buff. Þeir eru enn mjög vinsælir og eru til hjá mér alla daga,” segir Ingibjörg, sem vinnur ein á veit- ingastaðnum í dag en fær dyggan stuðning frá fjölskyldunni þegar með þarf. Opið er Á grænni grein alla virka daga frá 11 til 19.15. Nánari upplýs- ingar má nálgast á www.agraenni- grein.is solveig@frettabladid.is Tilfinningin ræð- ur í eldhúsinu Ingibjörg Agnarsdóttir á og rekur veitingastaðinn Á grænni grein í Bláu húsunum við Faxafen. Þar býður hún daglega upp á nokkrar tegundir grænmetisrétta sem hún eldar sjálf frá grunni. 0,5 til 1 dl olía 4 hvítlauksrif hálfur laukur Brúnað á pönnu. 1 knippi af brokkolí 4 meðalstórar gulrætur hálfur til einn kúrbítur 2-3 msk. ferskur basill 2-3 msk. ferskt timjan 1 msk. oregano 1 msk. grænmetiskraftur án MSG 1 stór krukka af hálf- maukuðum tómötum (ca 1 kíló) 5 msk. tómatpúrra Látið malla saman í hálftíma á litlum hita. 500 g kotasæla 6 speltpastaplötur Setjið í eldfast mót þar sem skipst er á að setja lög af grænmeti, kotasælu og spelt- pasta. Miðað er við tvær umferðir. Endað á grænmeti. Best er að láta réttinn standa í nokkurn tíma til að mýkja pastaplöturnar. Setjið réttinn í ofn í 30 til 45 mínútur við 180 gráðu hita. (Ef rétturinn er ekki látinn standa verður að baka hann í klukkutíma). Ostur er settur yfir rétt í lokin. Ingibjörg Agnarsdóttir matreiðir girnilega grænmetisrétti fyrir gesti sína á veitinga- staðnum Á grænni grein við Suðurlandsbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÞÁTTASTJÓRNANDINN JEREMY PAXMAN HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ LEGGJA SITT AF MÖRKUM Í BARÁTTUNNI VIÐ PARKINSONSJÚKDÓMINN. Jeremy Paxman, þáttastjórnandi BBC Newsnight, hefur ákveðið að gefa heila sinn til Parkinsonrann- sókna eftir lát sitt. Paxman er einn af nokkrum þjóðþekktum persónum í Bretlandi sem hafa kosið að leggja baráttunni við sjúkdóminn lið með þessum hætti. Er það hluti af átaki sem Parkinsonfélagið í Bretlandi stendur fyrir þessa dagana og er markmið- ið að hvetja fólk til að gerast heilagjafar. Rannsóknir á sjúkdómnum byggja á slíkum heilagjöfum en aðeins þúsund manns í Bretlandi hafa skráð sig á lista yfir heilagjafa og er ætlunin að tvö- falda þann fjölda fyrir árslok. Kannanir sýna að yfir sextíu prósent manna eru tilbúnir til að gefa hjarta eða nýru eftir lát sitt en aðeins sjö prósent geta fellt sig við þá hugmynd að gefa heila sinn. Gefur heila til rannsókna Jeremy Paxman ætlar að gefa heila sinn eftir lát sitt. GRÆNMETISLASAGNA með kotasælu og speltpasta FYRIR 6 TIL 8 Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Kennsla í tækjasal 5 daga vikunnar telpurS onuK rStaðurinn - Ræktin Spennandi vortilboð! Opna kerfið Þinn tími er kominn! ● Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki ● Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun ● Pallatími, samsett spor, mikil brennsla ● Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu, lóð, stangir, teygjur ● Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur ● RopeYoga ● Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð ● MRL - Magi, rass og læri ● Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar ● Einkaþjálfun NÝTT! Stutt og strangt Þjálfun í tækjasal 5x í viku í 2 vikur • Mest 5 í hóp Tímar í boði: 7:15, 12:00, 17:00 og 18:00 Verð aðeins kr 10.000 • Ath. Skráning alltaf í gangi S&S stutt ogstrangt Velkomin í okkar hóp! Barnagæsla - Leikland JSB www.eirberg.is • 569 3100 Stórhöfða 25 Ný sending af sundfatnaði komin

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.