Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 19
Forgangsmál næstu missera er að auka atvinnu í landinu. Það verður með engu móti unað við það atvinnuleysi sem nú er. Í fyrsta lagi kippir það fótunum undan afkomu fjölskyldna og einstak- linga og getur valdið þeim sálrænum erfiðleikum. Þessum persónulega þætti má aldrei gleyma. Í öðru lagi er öflug atvinnustarfsemi undirstaða þess að ríkissjóður og þar með þjóðfélagið geti staðið í skilum við lánardrottna sína og jafnframt staðið undir velferðarkerfinu. Það liggur í augum uppi að millj- arðarnir sem greiddir eru í atvinnu- leysisbætur væru betur komnir í velferðarkerfi landsmanna eða til að standa undir skuldagreiðslum. Atvinnuleysið leikur ríkissjóð grátt bæði tekju- og útgjaldamegin. Sem betur fer standa undirstöður atvinnulífsins enn. Hins vegar getur sú staða verið tvísýn ef ekkert verður að gert. Hin alþjóðlega kreppa leiðir til samdráttar á mörgum sviðum og hefur áhrif hvort sem er í sjávarútvegi, orku- frekum iðnaði eða í þjónustustarfsemi almennt. Á slíkum tímum er sérstak- lega áríðandi að hafa augun opin fyrir hvers konar möguleikum til þess að efla atvinnuvegina og ganga fordómalaust að því verkefni. Skynsamlegt er að huga sérstaklega að þeim atvinnugreinum sem þegar starfa og efla þær og styrkja til þess að nýta nýja möguleika. Vaxtalækkun, réttlátt samkeppnisumhverfi Fyrsta og mikilvægasta forsendan fyrir eflingu atvinnulífsins er að vextir lækki. Með núverandi vaxtakjörum verður engin framþróun. Þetta verða allir að skilja. Þar að auki verður að búa svo um hnútana að bankarnir geti veitt eðlilega lánafyrirgreiðslu. Í öðru lagi verður að tryggja rétt- látt samkeppnisumhverfi og gegnsætt. Þetta á meðal annars við um skatt- lagningu atvinnufyrirtækja. Það er forgangsverkefni að lækka vexti og endurskoða peningastefnuna. Jafnframt verður að tímasetja afnám gjaldeyrishafta. Hrinda verður í fram- kvæmd tillögum Framsóknarflokksins um 20% skuldaleiðréttingu. Einnig er brýn nauðsyn að tryggja fjármögnun útflutnings frá Íslandi. Atvinnumál ungs fólks Atvinnuleysi ungs fólks er sérstakt áhyggjuefni. Hægt er að bregðast við því með margvíslegum aðgerðum: að efla nýsköpunarsjóð námsmanna. ß að háskólarnir opni dyrnar fyrir ß stúdenta sem eru í sjálfsnámi, að skrifa lokaritgerðir, eða þeim sem eru í rannsóknum eða stofnun fyrirtækja. að bjóða upp á lánshæf sumarverk-ß efni og auka aðstoð við stúdenta til þess að ljúka lokaverkefnum sínum. að gera kennurum kleift að ráða ß fleiri aðstoðarmenn úr hópi stúdenta og koma á verkefnatorgi fyrirtækja og háskóla þar sem nemendur fái tækifæri til þess að vinna verkefni fyrir fyrirtækin. Fjölmargar hugmyndir hafa komið upp um atvinnuuppbyggingu á liðnum árum. Verkefnin blasa við, ef um- gjörðin er í lagi. Nýtum þá möguleika sem eru fyrir hendi Íslenskt viðskiptaumhverfi telst nokkuð hagstætt hvað snertir skatta, regluverk og tæknistig. Þrátt fyrir það er í flestum tilvikum mjög erfitt að laða erlenda fjárfesta til landsins ef engin hliðstæð starfsemi er fyrir hendi hér á landi. Sérstaklega ber að skoða þau svæði sem hafa búið við neikvæðan hagvöxt á undanförnum árum. Til úrbóta í þeim efnum þarf að víkka út möguleika til ívilnana til fyrir- tækja sem koma með nýja þekkingu til landsins og uppfylla skilyrði sem lúta að umhverfisþáttum, atvinnusköpun og tæknistigi. Þessum fyrirtækjum þarf að bjóða samninga sem fela í sér skattafrestun í ákveðinn tíma, festa afskriftarhlutföll og veita stuðning við þjálfun starfsfólks. Þá er mikilvægt að þeir stjórnendur sem hingað koma við uppbyggingu slíkra tækifæra fái einnig skattafrestun í tiltekinn tíma. Samkvæmt EES-samningnum mega Íslendingar styrkja atvinnustarf- semi í dreifbýli, þ.e. landsbyggðarkjör- dæmunum þremur, sem nemur ákveðnu hlutfalli af fjárfestingarkostnaði. Styrkir til stórra fyrirtækja geta að hámarki numið 15% af fjárfestingar- kostnaði, veitt er svigrúm til þess að hækka styrk um 10% þegar um meðalstór fyrirtæki er að ræða og um 20% til lítilla fyrirtækja. Þetta hefur ekki verið nýtt nema að litlu leyti fram til þessa en í atvinnuleysi líku því sem nú blasir við hljóta menn að leita allra leiða til að koma hjólum atvinnu- lífsins í gang að nýju. Mikilvægt er að við slíkar ákvarðanir verði horft til þess hvers konar starfsemi menn vilja laða hingað til lands. Eðlilegt er t.d. að horfa til starfsemi sem greiðir góð laun fyrir það vel menntaða fólk sem býr hér á landi, fremur en horfa eingöngu til fjölda starfa. Áhrif erlendrar fjárfestingar felast ekki aðeins í störfum og flæði fjármagns til landsins heldur ekki síður aukinni nýsköpun, þekkingu og viðskiptatengslum, auk aukinna skatt- tekna. Fordómar og sinnuleysi mega ekki ráða för þegar atvinnuuppbygging á í hlut. Atvinnuleysi er ein mesta ógæfa sem heimilin geta orðið fyrir. Atvinnu- leysi hefur áhrif á afkomu fólks, velferð og heilsu. Þrátt fyrir erfiðleikana sem nú blasa við í íslensku atvinnulífi er það ekki valkostur að leggja hendur í skaut og bíða eftir að birti til á ný. Tækifærin blasa við og þau á að nýta. Íslendingar búa nú þegar við sterka innviði sem felast í háu menntunarstigi þjóðarinnar, sveigjanlegu vinnuafli, lágum fyrirtækjasköttum, góðri verk- menningu og tækniþekkingu, víðtæku neti fríverslunarsamninga, nægu landrými og nálægð við mikilvæga markaði. Þessi tækifæri á að nýta. Snúa þarf vörn í framsókn. Alþingiskosningar 2009 Þriðjudagur 21. apríl 2009 Framsóknarflokkurinn ATVINNULEYSI VERÐUR EKKI ÚTRÝMT MEÐ AUKNUM SKÖTTUM FRÉTT 2 FÉKK VONINA AFTUR Sigurður Ingi treystir á átján liða tillögur Framsóknar SUÐURKJÖRDÆMI 6 SKJALDBORG UM SKULDIRNAR Guðmundur Steingrímsson: Fólk í ötrum fasteignalána ORÐ Í TÍMA TÖLUÐ 4 BLÖSKRAR SLEIFARLAGIÐ Sigmundur Davíð: Almenningur njóti afskriftanna REYKJAVÍK NORÐUR 5 SÓLIN SEST YFIR BYGGINGAMARKAÐINUM Framsóknarflokkurinn setur uppbyggingu atvinnulífs í forgang. MYND/RAKEL ERNA SKARPHÉÐINSDÓTTIR, CREATIVE COMMONS ATTRIBUTION Atvinnuleysi ógæfa heimilanna Fyrirtæki verða að fá að dafna við heilbrigð og eðlileg rekstrarskilyrði. Þannig verður atvinnuleysi minnkað og hagur heimilanna tryggður.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.