Fréttablaðið - 21.04.2009, Qupperneq 20
2
Samkvæmt vef Vinnumálstofnunar
eru nú um 18 þúsund manns án
atvinnu, ýmist að öllu leyti eða að
hluta á atvinnuleysisbótum á móti
hlutastarfi. Atvinnuleysi hefur aukist
frá því í október sl. úr 1,9% í 8,9% í
mars og horfur á að atvinnuleysi í apríl
geti orðið enn meira eða allt að 9,3%.
Athygli vekur að flestir í hópi atvinnu-
lausra eru í aldurshópnum frá 20-35
ára og væntanlega verður sú staða enn
verri í sumar þegar skólafólkið kemur
út á vinnumarkaðinn. Gert er ráð fyrir
að allt að fjögur þúsund háskólanemar
muni verða án atvinnu í sumarleyfinu.
Staðan í íslensku atvinnu- og efna-
hagslífi er ekki björt um þessar mundir
og óhætt er að segja horfur séu ekki
heldur góðar að óbreyttu.
Samdrátturinn er dýr
Ef litið er til ríkisfjármálanna hefur
þetta aukna atvinnuleysi verulegar af-
leiðingar í för með sér. Þannig er útlit
fyrir að Atvinnuleysistryggingasjóður
verði uppurinn um miðjan nóvember
nk. og 3,5 milljarða króna þurfi að
óbreyttu úr ríkissjóði til að sjóður-
inn geti staðið undir skuldbindingum
sínum.
Í fjárlögum þessa árs var gert ráð
fyrir að halli ríkisjóðs yrði 153 millj-
arðar króna. Greiðslur úr Atvinnu-
leysistryggingasjóði hafa hins vegar
aukist hratt og verða líklega um 25,3
milljarðar króna á árinu. Að auki verða
tekjur ríkissjóðs minni en búist var við
vegna minni tekna af tekju- og veltu-
sköttum. Áætlað er að tekjurnar verði
um 420 milljarðar króna en útgjöldin
580 milljarðar króna. Þetta hefur í för
með sér að halli ríkissjóðs verður u.þ.b.
170 milljarðar króna.
Fyrir liggur að minnihlutastjórnin
hefur stuðlað að ríkisútgjöldum um-
fram heimildir í fjárlögum ársins. Talið
er að draga þurfi úr halla ríkissjóðs á
næsta ári um 35-55 milljarða sem næst
vart nema með auknum tekjum hins
opinbera, minna atvinnuleysi, sparnaði
í ríkisútgjöldum eða skattahækkunum.
Samkvæmt samkomulaginu við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa stjórn-
völd tvö ár til að draga úr hallanum og
ná jafnvægi í ríkisfjármálum.
Þessu vilja sumir flokkar ná fyrst
og fremst með hækkun skatta og
lækkun launa, ásamt niðurskurði í
öðrum ríkisútgjöldum. Þetta þýðir
með öðrum orðum að það á að svelta
þjóðina út úr vandanum. Veltuskattar
ríkissjóðs munu dragast verulega
saman vegna minnkandi neyslu, auk
þess sem hættan á að fólk geti ekki
staðið í skilum með afborganir lána
eykst verulega. Afleiðingar þess að
hækka skatta, lækka tekjur og skera
niður í öðrum ríkisútgjöldum verða
líklega þveröfugar.
Raunhæfar lausnir
Framsóknarflokkurinn vill hins
vegar fara aðra leið til að forðast
það efnahagshrun sem fyrirsjáan-
legt er. Framsóknarmenn vilja 20%
leiðréttingu skulda. Með þessu vill
Framsóknarflokkurinn m.a. stuðla að
því að fleiri geti staðið við skuldbind-
ingar sínar en úrræði stjórnarflokkanna
gera ráð fyrir og koma verslun og
viðskiptum af stað á ný. Með því móti
eflist atvinnulíf að nýju og skatttekjur
ríkissjóðs aukast á ný.
Framsóknarflokkurinn vill jafn-
framt að farið verði yfir öll ríkisútgjöld
með það að markmiði að draga úr
halla ríkissjóðs. Framsóknarflokkurinn
tekur ekki undir hugmyndir sem fram
hafa komið í skattamálum um auknar
álögur á almenning, ekki síst þá sem
hafa millitekjur. Lögð er áhersla á
meiri aga í ríkisrekstrinum, en fram-
ganga núverandi stjórnarflokka í
ríkisfjármálum gefur ekki tilefni til
að ætla að þeim sé treystandi til þess
að ná þeim markmiðum sem fram
koma í efnahagsáætlun stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Notaß 18 liða efnahagstillögur
sínar til þess að bregðast við fjár-
hagsvanda íslenskra heimila og
fyrirtækja, www.framsokn.is.
20% leiðréttinguß á höfuðstól
lána sem varð til vegna verðbólgu
og verðtryggingar. Færa þar með
afskriftir erlendra kröfuhafa
til íslenskra skuldara en ekki
íslensku bankanna.
Leggja áherslu á meiriß fjölbreytni
atvinnulífs með því að bæta
rekstrarumhverfi minni fyrirtækja,
fjölskyldurekstrar og einyrkja.
ESB viðræður með tilliti til ß
sjávarútvegs og landbúnaðar
lagðar í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Vextir lækkaðirß sem allra fyrst.
Rannsókn á orsökum og ábyrgðß
á efnahagshruninu verði unnin
af krafti og skilvirkni.
Heimildir tilß þjóðaratkvæða-
greiðslu verði auknar og oftar
leitað beint til þjóðarinnar.
Efla og hlúa að matvælafram-ß
leiðslu þjóðarinnar í landbúnaði
og sjávarútvegi sem bæði skapa
gjaldeyristekjur og spara gjaldey-
ri. Fæðuöryggi er Íslendingum
brýnt hagsmunamál.
Framsókn vill...
FRAMSÓKN VILL AÐRAR LEIÐIR 20% leiðrétting skulda stuðlar að öflugra atvinnulífi og
auknum skatttekjum ríkissjóðs.
Atvinnuleysi verður ekki
útrýmt með auknum sköttum
Framsóknarmenn vilja stuðla að ábyrgum ríkisrekstri. Atvinnuleysi hefur alvarleg áhrif á ríkissjóð.
Ef þú hringir í þetta númer
gjaldfærast sjálfkrafa 2000,- kr.
á símareikning þinn.
Gleðilegt sumar
About Fish
Íslandi ehf.
Allar konur innilega
velkomnar og takið
vinkonurnar með!
framsokn.is
Miðvikudaginn 22. apríl kl. 20:30 í Borgartúni 28
FRAMSÓKN
Framsóknarkonur í Reykjavík
KONU
KVÖLD FYRIROKKURALLAR
Vigdís Hauksdóttir
1. sæti Reykjavík suður
Salvör Gissurardóttir
4. sæti Reykjavík suður Ásta Rut Jónasdóttir
2. sæti Reykjavík norður Guðrún Valdimarsdóttir
3. sæti Reykjavík suður
Fanný Gunnarsdóttir
4. sæti Reykjavík norður
Lifandi tónlist
Glæsileg tískusýning
Íslensk hönnun
Léttar veitingar
Óvæntur glaðningur
VEISLUSTJÓRI VERÐUR JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR