Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 21
3
Einn allra yngsti bóndi landsins, Einar
Freyr Elínarson, skipar 6. sætið hjá
Framsókn í Suðurkjördæmi.
Einar segist alltaf hafa haft
brennandi áhuga á pólitík og styður
Framsókn vegna samvinnuhugsjónar-
innar og miðjustefnunnar sem höfði
til skynseminnar. Helstu baráttumál
hans eru stjónlagaþingið og málefni
ungs fólks og hann er mikill jafnrét-
tismaður.
Einar er bóndinn í Sólheimahjáleigu
í Mýrdalshreppi þar sem hann býr
með móður sinni, Elínu Einarsdóttur
kennara, afa sínum og nafna, Einari
Þorsteinssyni, og ömmu, Eyrúnu
Sæmundsdóttur, ásamt tveim bræðrum
sínum. Einar er 18 ára og yngsti fram-
bjóðandinn á Suðurlandi.
Spurður af hverju hann gerðist
bóndi sagðist hann hafa gripið það
báðum höndum þegar tækifærið gafst
til þess að stýra eigin búi. Hann gerir
þó ráð fyrir því að minnka við sig á næ-
stunni þar sem hann stefnir á að klára
stúdentsprófið og fara að því loknu í
búfræðinám á Hvanneyri.
Í vetur tók Einar þátt í að stofna
Félag ungs framsóknarfólks í Vestur-
Skaftafellssýslu. Einar segir að það hafi
verið mikil endurnýjun í starfi ungs
framsóknarfólks í Suðurkjördæmi eftir
bankahrunið og við stofnun FUF-
félaga um kjördæmið hafi þátttaka
farið fram úr björtustu vonum.
Enn á ný fer Jóhanna Sigurðardóttir,
forsætisráðherra, með þá rangfærslu
að Framsóknarflokkurinn hafi skert
barnabætur á tímum uppsveiflu og
góðæris í samfélaginu.
Þessi orð lét forsetisráðherra falla,
eins og svo oft áður, í óundirbúnum
fyrirspurnartíma þann 25. mars s.l.
þegar alþingismaðurinn Birkir J. Jóns-
son spurði um þau loforð fyrri ríkis-
stjórnar sem Jóhanna Sigurðardóttir
átti sæti í sem félagsmálaráðherra, þess
efnis að hefja útgreiðslu barnabóta
mánaðarlega frá 1. apríl s.l.
Fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingarinnar tilkynnti þann
8. desember 2008 um að uppi væru
áform um að hefja mánaðarlegar
greiðslur í stað þess að greiða þær út
fjórum sinnum á ári. Núverandi ríkis-
stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna,
hefur fallið frá þessum mánaðarlegu
greiðslum, en það var ákveðið á þeim
forsendum að mánaðarlegar greiðslur
hefðu komið verr út fyrir fjölskyldur
í landinu og betra sé að viðhalda
gamla kerfinu. Þá kom fram í svari
forsætisráðherra að hún héldi ekki að
þetta breytti mjög miklu fyrir barna-
fjölskyldur, þ.e. að fá barnabæturnar
greiddar út mánaðarlega.
Síðan segir forsætisráðherra í svari
sínu til þingmannsins: „En háttvirtur
þingmaður er alltaf á hálum ís þegar
hann talar um barnabætur vegna þess
að þær voru skertar í tíð Framsóknar-
flokksins á tímum mikillar uppsveiflu
og góðæris í samfélaginu.“
Þessi orð forsætisráðherra eru al-
veg makalaus og ekki í fyrsta skipti
sem Jóhanna Sigurðardóttir reynir
eftir fremsta megni að slá ryki í augu
kjósenda um Framsóknarflokkinn og
barnabætur.
Skoðum fyrst orðin „á tímum
mikillar uppsveiflu og góðæris í sam-
félaginu“, áður en ég ræði barna-
bæturnar sjálfar. Hvenær var þessi
mikla uppsveifla og góðæri? Getum
við verið sammála um að árin 2003-
2007 hafi verið einstaklega góð? Jú,
ég held að flestir geti verið sammála
um það. Þá voru Framsóknarmenn í
ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum
og sennilega sá tími sem Jóhanna
Sigurðardóttir vitnar til. Eðli málsins
samkvæmt lækka tekjutengdar barna-
bætur í uppsveiflu og góðæri þegar
fólk hefur hærri laun. Það er rökrétt
og það segja lögin um barnabætur sem
alþingismenn hafa sett.
Skoðum þá hvernig barnabætur
þróuðust á þessum árum sem vitnað
er í, „á tímum mikillar uppsveiflu og
góðæris í samfélaginu“. Í byrjun þess
kjörtímabils, árið 2003, voru greiddar
36.308 kr. með öllum börnum yngri en
7 ára í formi barnabóta. Í lok kjörtíma-
bilsins eða árið 2007 voru greiddar
56.096 kr. Þannig að barnabætur höfðu
hækkað um kr. 19.788 eða um 54,5%
með öllum börnum yngri en 7 ára á
árunum 2003-2007 í tíð ríkisstjórnar
Framsóknarflokksins. Á sama tíma
hækkaði vísitala neysluverðs, sú vísitala
sem allt snýst um, frá janúar 2003 til
janúar 2007 um 18,89%.
En hvað hefur Samfylkingin, með
Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi
fylkingar, gert í barnabótum? Skoðum
það aðeins. Ríkisstjórn Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks tók við á vor-
dögum 2007. Þá voru barnabætur sem
greiddar voru með öllum börnum yngri
en 7 ára eins og áður segir 56.096 kr.
Nú árið 2009, tveimur árum síðar og
Samfylkingin situr í ríkisstjórn með
Vinstri grænum, eru sömu barnabætur
61.191 kr. með öllum börnum yngri en
7 ára. Það er hækkun um 3.300 kr. eða
um 5,7%. Hvað hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað á þessum tveimur árum
frá janúar 2007 til janúar 2009? Vísi-
talan hefur hækkað um 23,17%.
Við skulum láta staðreyndirnar tala
sínu máli í stað þess að kasta grjóti úr
glerhúsi. X-B fyrir barnafjölskyldur í
landinu.
Sigfús Karlsson skrifar:
Samfylkingin lækkar
barnabætur
Átján ára bóndi í Mýrdalshreppi
Sigfús skipar 4. sæti á lista framsóknar-
manna í norðausturkjördæmi fyrir alþingis-
kosningarar 25. Apríl 2009, og er fjögurra
barna faðir.
Framsóknardætur
Mánudagskvöldið 20. apríl
kl. 21:00 – 23:00 í
Skrúðgarðinum, Akranesi.
Konur, fögnum sumrinu saman og sláum á létta
strengi.
Jón Sigurðsson (fimmhundruðkallinn) kemur
og tekur lagið, óvænt atriði og léttar
veitingar í boði.
Fjölmennum með vinkonum og samstarfskonum
og styrkjum tengslanet kvenna.
Skemmtun fyrir okkur allar!!!
Skemmtikvöld
kvenna
AKSTUR Á KJÖRSTAÐ
Framsóknarflokkurinn býður þér
á höfuðborgarsvæðinu:
540-4300 / 551-6011
hafið samband við
kosningaskrifstofur á
landsbyggðinni (sjá síðu 7)
UNGUR AÐ ÁRUM Einar Freyr Elínarson, 6. á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, er yngsti bóndi landsins eftir því sem næst verður
komist.