Fréttablaðið - 21.04.2009, Page 22

Fréttablaðið - 21.04.2009, Page 22
4 Skjaldborgin um skuldirnar LEIÐARI eftir Birki Jón Jónsson, varaformann Framsóknarflokksins Aðgerðir í stað málalenginga Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ábyrgðarmaður: Sigfús Ingi Sigfússon Hönnun og umbrot: Birgir Þór Harðarson Dreifing: Dreift til allra heimila á landinu Hverfisgötu 33, 101 Reykjavík www.framsokn.is ORÐ Í TÍMA TÖLUÐ Guðmundur Steingrímsson skrifar: H eimilin eru hvert af öðru að fara í greiðsluþrot og átján þúsund manns eru án atvinnu í landinu. Hundruð fyrir- tækja verða gjaldþrota í hverjum mánuði. Innflutninghöft eru við lýði og íslenska krónan er ónýtur gjaldmiðill. Ríkissjóður á við áður óþekktan hallarekstur að stríða vegna skuldastöðu þjóðar- innar og aukinna útgjalda og minnkandi tekna vegna atvinnu- ástandsins í landinu. Meðan þetta ástand ríkir hefur þingið verið upptekið vikum saman við málþóf Sjálfstæðisflokksins, í því skyni að koma í veg fyrir að stjórnlagaþing verði haldið og fulltrúar þjóðarinnar verði kjörnir á það. Einnig er tilgangurinn að koma í veg fyrir ákvæði um þjóðar- atkvæði og eignarhald þjóðarinnar á auðlindum. Sjálfstæðismenn hrósa nú sigri í þessu sérkennilega stríði. Hins vegar hrópar almenningur á aðgerðir í stað málalenginga. Hvernig á að koma hjólum atvinnulífsins til þess að snúast á ný? Án þess að það gerist er tómt mál að tala um endurreisn fjárhags heimilanna eða bærilega afkomu ríkissjóðs. Nú um stundir er atvinnuleysistryggingasjóður stærsti launagreiðandi í landinu og margvísleg fleiri útgjöld fyrir ríkissjóð fylgja þessu ástandi. Föndur við skattlagningu er eins og dropi í hafið til þess að mæta þessu. Stjórnarflokkarnir verða að skilja það að atvinnuuppbygging þolir enga bið. Hvort sem það eru sprotafyrirtæki eða álver á Bakka við Húsavík eða í Helguvík ber að leita allra ráða til þess að styðja við slíka uppbyggingu. Það þolir enga bið að móta nýja peningastefnu. Það þarf að nást niðurstaða um það hvort mögulegt er að stefna að upptöku evru. Það mál skýrist ekki án viðræðna við Evrópusambandið. Ef upp- taka evrunnar er ekki möguleg þarf að leita annarra leiða. Framsóknarmenn hafa lagt fram ítarlegar tillögur í efnahagsmálum, kjarnann í þeim má sjá hér í blaðinu í dag, auk þess sem þær liggja frammi á kosningaskrifstofum flokksins. Kjarninn í þeim er 20% skuldaleiðrétting. Við þurfum á umsvifum að halda til þess að örva atvinnu, auka tekjur bæði ein- staklinga, fyrirtækja og ríkissjóðs. Allt þetta verður að haldast í hendur. Óvenjulegir tímar krefjast óvenjulegra aðgerða og Framsóknarmenn hafa kjark til þess að framkvæma slíkar aðgerðir. Það er brýn nauðsyn að Framsóknar flokkurinn hafi raunveruleg og áþreifanleg völd í íslenskum stjórnmálum eftir kosningar. Við erum fersk og klár í slaginn. Fram til sóknar, framsóknarmenn, í þágu þjóðarinnar. Í kosningabaráttunni sem nú er að ljúka er það einkum eitt sem hefur vakið sérstaka eftirtekt mína og eflaust margra annarra, og það er hversu mjög mörgum stjórnmálamönnum er í nöp við að ljá máls á því að skuldastaða íslenskra heimila og fyrirtækja verði leiðrétt með almennri aðgerð. Þetta er mjög merkilegt. Fyrir liggur að í séríslensku verðtryggðu skulda- fangelsi tóku allir Íslendingar, sem skulda, á sig jafnmikið högg – hlutfalls- lega – þegar banka- og gengishrunið reið yfir þjóðina í október. Vandinn er gríðarlegur. Fyrir liggur einnig að erlendir kröfuhafar munu gera ráð fyrir afskriftum af íslenskum lánum. Á því byggist tillöguflutningur Framsóknar- flokksins. Afskriftir erlendra kröfu- hafa skulu renna til íslenskra skuldara. Enginn kostnaður lendir á ríkinu, eins og fjármálaráðherra og fleiri hafa kosið að misskilja tillöguna. Að því sögðu blasir spurningin við: Hvers vegna vilja aðrir flokkar ekki standa vörð um hagsmuni íslenskra heimila og fyrirtækja í viðræðum við erlenda kröfuhafa? Er þeim meira annt um hagsmuni kröfuhafanna? Af almennum aðgerðum Raunar hefur Framsóknarflokkurinn bent á að hagsmunum kröfuhafa yrði líklega best borgið með almennum afskriftum sem ganga jafnt yfir alla skuldara. Efnahagslífið færi af stað, neysla ykist, sem og fjárfestingar og framkvæmdir. Þetta myndi gera það að verkum að fleiri gætu á endanum staðið í skilum. Það er merkilegt hvað margir stjórn- málamenn íslenskir telja þetta vera undarlega hugmynd og tala jafnvel um töfrabrögð í þessu sambandi. Hér er engin brella á ferð. Almennar aðgerðir til þess að halda hinni stóru vinnandi millistétt á floti – aðgerðir til þess að örva hagkerfið – eru vitaskuld hluti af ákaflega sígildri hagfræði. Dæmin blasa við, þótt við viljum stundum gleyma þeim. Skattkerfið er nærtækast. Þar tíðkast almenn prósentutala, sem miðar að því halda bæði skilvirku hag- kerfi gangandi og skila sem mestum tekjum í ríkissjóð. Hin leiðin, í and- stöðu við hina almennu, væri raunar fjarstæðukennd: Að skatturinn færi hús úr húsi og legði mat á það eftir tilfellum hversu mikið fólk gæti greitt. Það væri, ef svo má að orði komast, alveg rosalega 1507. Hættan sem við blasir Á sama hátt telja Framsóknarmenn það fjarstæðukennt að farið verði í af- skriftir lána hjá sumum en öðrum ekki. Hvað á að ráða því mati? Flestir skilja vel þá hugmyndafræði sem liggur að baki þeirri skoðun að hjálpa eigi einungis þeim sem þurfa hjálp. Slík hugmyndafræði er mjög viðeigandi og einkar mikilvæg í góðæri. Þá er hættan sú að sumir hópar dragist aftur úr. Í kreppu hins vegar, svo ekki sé talað um eftirleik efnahagshruns, þarf að hugsa öðruvísi. Þá þarf að leita allra leiða til þess að hin stóra vinnandi millistétt í landinu sogist ekki niður í svarthol stöðnunar, eignahruns og viðvarandi atvinnuleysis. Ef það gerist verða okkur allar bjargir bannaðar um langa hríð. Og lítum nú á þá mynd sem við blasir, ef lagðar eru saman aðgerðir og tillögur ríkisstjórnarflokkanna í efnahagsmálum undanfarið: Það á að skera niður, hækka skatta, lækka laun og bjóða upp á greiðsluaðlögun fyrir þá sem geta sannað að þeir hafi það mjög slæmt. Þá fá hinir sömu tilsjónarmenn. Allt felur þetta í sér hvata í eina átt: Fleiri fara á bætur (því annars er engin aðstoð), eignir hrynja í verði, fleiri skjóta undan skatti (því fólki hegnist fyrir vinnusemina). Við þetta missir ríkissjóður enn meiri tekjur, enn meiri niðurskurður verður og atvinnu- leysið verður enn meira. Undanskotin undan skatti verða þá enn meiri og svo koll af kolli. Þetta er sú yfirþyrmandi hætta sem við blasir. Þetta er leiðin til stöðnunar. Gagnvart þessari dökku mynd halda Framsóknarmenn á lofti sígildum sannleik: Það verður að örva hagkerfið í jákvæða átt. Skapa þarf fólki svigrúm svo það geti með vinnusemi sinni og dugnaði unnið sig út úr vanda sínum og þjóðarinnar upp á eigin spýtur. Einungis eftir að það hefur gerst, er raunhæft að fara í aðgerðir til þess auka tekjur ríkissjóðs með hærri skatt- prósentu. Hræðslan og tregðan Hræðslan við að ræða í alvöru almenna niðurfellingu skulda á Íslandi sprettur tel ég af tveimur rótum: Annars vegar virðast margir stjórnmálamenn haldnir grunsamlegri og furðulegri vantrú á að Íslendingar geti staðið fyrir máli sínu gagnvart erlendum kröfuhöfum. Af hverju sú vantrú stafar er rann- sóknarefni eitt og sér. Framsóknarmenn standa þó keikir og fullir sjálfstrausts frammi fyrir því viðfangsefni og munu taka á þeim viðræðum af festu fái þeir umboð til. Hins vegar ríkir skilningsleysi á meðal íslenskra stjórnmálamanna og því miður hagfræðinga á gildi almennra, róttækra aðgerða í efnahags- lífinu. Það er einnig rannsóknarefni. Fátt er mikilvægara við stjórn efna- hagsmála en að hafa skilning á slíkum aðgerðum og kunna að ræða þær. Hugsanlegt er að ótti og viðkæmni gagnvart Evrópusambandinu í að- draganda mögulegra aðildarviðræðna geri það að verkum að sum stjórn- málaöfl í landinu vilja helst ekkert gera sem styggir útlendinga. Við skulum þó vona að slíkar tilfinningar ráði ekki för við stjórn efnahagsmála og séu valdar að tregðunni sem hér hefur verið lýst – tregðunni við að taka af festu og áræðni á skuldastöðu þjóðarinnar. Veruleikinn sem við blasir er þó í öllu falli svartur: Á Íslandi rís ekki um þessar mundir hin margboðaða skjaldborg um heimilin, fyrirtækin og framtíð þjóðarinnar, því miður. Hér er að rísa, frammi fyrir augum okkar, skjaldborgin um skuldirnar, hönnuð af íslenskum stjórnmálamönnum, hverju sem sætir. Íslendingar skulu borga upp í topp. Hvað sem það kostar. ENGAR BRELLUR Guðmundur Steingrímsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, vill leysa vanda heimilanna en segir aðra flokka standa vörð um hag kröfuhafanna. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.