Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 23

Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 23
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON, formaður Framsóknarflokksins. MYND/GUNNAR GUNNARSSON Þriðjudagur 21. apríl 2009 – Framsóknarflokkurinn – Alþingiskosningar 2009 REYKJAVÍK Kæri Reykvíkingur! Það er þegar orðið ljóst að við lifum á sögule- gum tímum. Kosningarnar á laugardaginn verða einnig sögulegar. Niðurstaðan segir til um hvort eða hvernig við vinnum okkur út úr efnahags- þrengingum og einnig hvers konar samfélag verður mótað á Íslandi til framtíðar. Stefna Framsóknarflokksins byggist á endur- reisn heimila og atvinnulífs, enda hefur flokkur- inn alla tíð látið sig atvinnumál og atvinnuupp- byggingu miklu varða og það á einnig við fyrir þessar kosningar. Peningar verða ekki til hjá ríkinu, þeir koma frá verðmætasköpun fyrirtækja. Í okkar huga er engum blöðum um það að fletta að atvinna er upphaf og endir þess að hér þrífist gott samfélag. Verðmætasköpunin verður til hjá fyrirtækjum, sem geta haldið uppi atvinnu fyrir fólkið, sem síðan leiðir til þess að velferðarsamfélagið veldur hlutverki sínu. Ríkið á að setja reglurnar fyrir fyrirtækin, en ekki að vera fyrirtækið. Það er engum blöðum um það að fletta að minnkandi umsvif í þjóðfélaginu bitna með beinum hætti á getu ríkisins til að styðja við bak þegna sinna. Framsókn leggur því áherslu á að auka veltuna í þjóðfélaginu sem allra fyrst. Það gerum við meðal annars með skuldaleiðréttingu heimila og fyrirtækja upp á 20 af hundraði. Mikið hefur verið rætt og ritað um leiðréttinguna, en hún er ein af 18 samhangandi tillögum til bjargar heimilum og atvinnulífinu í landinu. Kostnaður vegna leiðarinnar lendir ekki á íslenskum skattgreiðendum, fullyrðingar um annað eru rangar. Útlendir bankar sem lánuðu þeim íslensku eru fyrir löngu búnir að átta sig á því að þeir fá ekki greitt að fullu til baka og hafa þegar afskrifað stóran hluta lána sinna. Það er einnig verið að afskrifa lánin við yfirfærslu þeirra frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Framsókn telur eðlilegt að þessar afskriftir verði látnar ganga til heimila og fyrirtækja landsins. Ekki allar, heldur 20 prósent. Með því yrðu lán- takendur í sömu sporum og þeir voru fyrir hrun. Lántakendur eiga ekki að bera allan skaðann af hruni bankanna. Það er ekki bara ósanngjarnt, það er líka afar skaðlegt. Með því að lækka lánin fær fólk meira fé milli handanna og getur því haldið uppi meiri neyslu. Meiri neysla leiðir til þess að fleiri fyrirtæki haldast í rekstri og færri missa vinnuna. Við þetta aukast tekjur ríkisins. Ekki með hærri sköttum, heldur meiri umsvifum í þjóðfélaginu. Það er einnig mat okkar framsóknarmanna að þessi leið sé mun líklegri til þess að hvetja fólk til dáða á hinum erfiðu tímum sem eru óhjákvæmilega fram undan. Aðgerðir okkar snúast um að stöðva hrunið. Framsóknarflokkurinn hefur einn hefð- bundinna stjórnmálaflokka gert upp við fortíðina og svarað kalli þjóðarinnar um endurnýjun. Framsóknarflokkurinn er að hefja nýja framtíð; framtíð sem byggist á góðum gildum og nýju fólki sem setur réttlæti á oddinn og byggir á nýjum lausnum. Framsókn telur eðlilegt að afskriftirnar verði látnar ganga til heimila og fyrirtækja landsins. Ekki allar, heldur 20 prósent. Með því yrðu lántakendur í sömu sporum og þeir voru fyrir hrun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.