Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 28
SUÐURKJÖRDÆMI – 1. SÆTI
6
Í efnahagskreppunni leynast mörg
tækifæri. Tækifæri fyrir þjóð sem hefur
farið mörg skref fram úr sér. Þjóð sem
er harðger, dugleg og framkvæmda-
söm. Íslendingar hafa áður glímt
við erfiðleika í efnahagsmálum en á
tímum sem þessum verðum við öll að
hafa hugfast að við munum losa okkur
úr vandræðunum. Viljastyrkur er allt
sem þarf. Vilji til að velja skynsömustu
leiðina til að leiða þjóðina fram á við
og skapa nýtt, sanngjarnara og rétt-
látara Ísland.
Velferðarkerfinu má ekki
fórna
Við framsóknarmenn höfum alltaf
verið í fararbroddi fyrir efnahags-
umbótum á Íslandi. Atvinna fyrir
alla hefur alltaf verið okkar kjörorð.
Öflugt atvinnulíf er undirstaða
trausts velferðarkerfis. Velferðarkerfis
sem á að vera fyrir alla óháð efnahag,
stöðu og búsetu. Velferðarkerfi þar
sem við hlúum að þeim sem minna
mega sín.
Línurnar í stjórnmálum landsins
eru í mínum huga skýrar. Þegar
kemur að uppbyggingu heilbrigðis-
og félagslega kerfisins eru skýr skil
á milli Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins. Við höfnum
einkavæðingu í velferðarmálum.
Einkavæðing velferðarkerfisins mun
gera það að verkum að útvaldir eiga
greiðari aðgang að heilbrigðis-
þjónustu. Þeim efnaminni býðst
lakari þjónusta. Sumir munu ekki
hafa efni á þjónustunni. Það á að vera
hluti af samneyslu þjóðarinnar. Þegar
Framsóknarflokkurinn skilaði af sér
heilbrigðiskerfinu fyrir tveim árum
gerði OECD úttekt á því. Niður-
staðan var sú að við Íslendingar ætt-
um lofsvert heilbrigðiskerfi. Sam-
fylkingin var reiðubúin í tíð síðustu
ríkisstjórnar að hefja einkavæðingu
heilbrigðisþjónustu landsmanna.
Kjósendur ættu að hafa það í huga
þegar gengið verður til kosninga þann
25. apríl n.k.
Öll börn eiga líka að eiga kost á
menntun burtséð frá efnahag foreldra
þeirra. Menntun er grunnurinn að
framtíð þjóðarinnar.
Skýr munur á okkur og öðrum
flokkum
Það er einnig skýr munur á stefnu
Framsóknar og Sjálfstæðismanna
í atvinnumálum. Við viljum skapa
ramma utan um atvinnulífið, aðstæður
þar sem komið verður í veg fyrir ein-
okun og hringamyndanir. Við höfum
alltaf barist fyrir eflingu Samkeppnis-
eftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins.
Fámenn þjóð þolir ekki einokun. Við
höfum líka bent á það að gildi eins og
samvinna verða að komast aftur upp á
yfirborðið. Samvinnuhugsjónina verð-
ur að endurvekja því að hún er lang-
sterkasta leiðin til snúa óheillaþróun í
hinum dreifðari byggðum við þar sem
virk samkeppni þrífst ekki.
Um leið er skýr munur á stefnu
Framsóknarflokksins og Vinstri
grænna í atvinnumálum. Við tölum
um raunhæfar lausnir. Við viljum sem
minnst afskipti ríkisvaldsins af fyrir-
tækjum. Við viljum styðja heimamenn
í viðleitni þeirra til að byggja upp at-
vinnustarfssemi á þeirra heimasvæði.
Við höfnum forræðishyggju vinstri
manna.
Segum ekki eitt og meinum
annað
Framsóknarflokkurinn er ábyrgur
flokkur sem byggir stefnu sína á hug-
sjónum og gildum. Við breytum
ekki um stefnu þótt á móti blási. Við
segjum ekki eitt en meinum annað.
Við tölum ekki upp í eyrað á fólki
og höldum fram mismunandi stefnu
eftir því hvar við erum staddir heldur
þorum að taka erfiðar ákvarðanir og
standa og falla með þeim. Áttum okkur
á því að framtíð landsins fellst í því að
við höfum full yfirráð yfir auðlindum
landsins. Við viljum taka ákvarðanir
um okkar málefni sjálf. Í því liggur
munurinn á Framsóknarflokknum og
Samfylkingunni.
Framsóknarflokkurinn er skýr val-
kostur í íslenskum stjórnmálum. Við
höfum lagt fram raunhæfar tillögur
í efnahagsmálum og viljum að þjóðin
viti fyrir hvað við stöndum. Það hafa
aðrir flokkar ekki gert.
Höskuldur Þórhallsson skrifar
Ný hugsun – ný framsókn
Höskuldur skipar 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi
1. SÆTI Í SUÐURKJÖRDÆMI Sigurður Ingi Jóhannsson dýralæknir
Án Framsóknarflokksins dýpkar kreppan
Á flokksþinginu í janúar fæddist von hjá Sigurði Inga Jóhannssyni, oddvita Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, um að
stefna flokksins gæti leitt þjóðina út úr þrengingunum.
Hvers vegna fórstu að starfa í pólitík?
Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á þjóðmálum
og sögu. Á uppvaxtarheimili mínu og í fjölskyld-
unni var mjög eðlilegt að ræða um stjórnmál.
Móðir mín og afi höfðu bæði setið í sveitarstjórn.
Reyndar var ég fyrst kosinn persónukosningu
í sveitarstjórn, þ.e. án þess að bjóða mig fram en
þar hef ég setið í 15 ár nú í vor. Ástæða þess að
ég er nú í framboði til Alþingis er að í vetur fór
um mig eins og marga aðra. Ég hafði misst alla
von um að stjórnmálamenn gætu leitt þjóð okkar
út úr vandanum. Á flokksþingi okkar framsóknar-
manna gerðist hins vegar eitthvað. Hjá mér
sem og mörgum öðrum fæddist von. Von um
að við gætum unnið þjóðinni gagn með stefnu
Framsóknarflokksins að leiðarljósi. Ég vildi bjóða
fram krafta mína og reynslu – og hér er ég kom-
inn.
Hverjar eru helstu pólitísku hugsjónir
þínar?
Jafnræði þegnanna og réttlátt samfélag. Ég
treysti á blandað hagkerfi þar sem kraftur
einstaklinga fær að blómstra í samvinnu við bæði
félög og opinbera aðila.
Hver eru stærstu einstöku mál
komandi kosninga?
Stærsta einstaka mál þessara kosninga er tillaga
Framsóknar um 20% leiðréttingu lána heimila
og minni fyrirtækja. Endurreisn heimila og
fyrirtækja ásamt uppbyggingu atvinnulífsins sem
byggja á 18 liða tillögum Framsóknar eru þau mál
sem þjóðin þarfnast. Framsóknarflokkurinn er
eini flokkurinn sem hefur lagt fram heildstæðar
tillögur um það hvernig við snúum kreppunni
við. Án Framsóknarflokksins og framsækinna
hugmynda hans óttast ég að kreppan dýpki og
við lendum í vítahring atvinnu leysis og gjald-
þrota heimila og fyrirtækja.
Hvers vegna ætti fólk að kjósa
Framsókn en ekki einhvern annan
flokk?
Framsóknarflokkurinn er öfgalaus, frjálslyndur
félagshyggjuflokkur, miðjuflokkur sem nær með
skynsemisstefnu að draga vinstri og hægri inn á
miðjuna. Framsókn hefur sett fram tillögur sem
fela í sér skynsamar en róttækar aðgerðir til þess
að endurreisa efnahag þjóðarinnar. X við B er
einfaldlega besta leiðin til að tryggja jafnræði og
réttlæti.
Hver eru helstu áhugamál þín, utan
stjórnmála?
Þau eru fjölmörg, en tímaleysi setur þeim tak-
mörk. Hestamennska ekki síst ferðalög á
sumrin til fjalla, íþróttir, tónlist, kórastarf, sagan
og margt fleira. Auk þess samvera með stór-
fjölskyldunni og vinum.
Hvernig verð þú frítímanum?
Veit varla hvað frítími er. En reyni að slaka á
með fjölskyldunni eða með þátttöku í einhverju
þeirra áhugamála minna sem ég nefndi fyrr.
SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON varð 47 ára í
vikunni. Hann er dýralæknir að mennt og hefur
unnið sem slíkur á Suðurlandi í tæp 20 ár. Hann er
auk þess oddviti Hrunamannahrepps. Sigurður
Ingi er stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni
og lauk námi frá Konunglega dýralæknis- og
landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn
(KVL) 1989. Sigurður Ingi er í sambúð með Elsu
Ingjaldsdóttur og eiga þau 5 börn og dótturson að
auki. Sigurður Ingi er sonur Jóhanns H. Pálssonar
bónda í Dalbæ og Hróðnýjar Sigurðardóttur.
SVIPMYND