Fréttablaðið - 21.04.2009, Page 29
7
Dags. Reykjavíkurkjördæmi Suðvesturkjördæmi Suðurkjördæmi Norðausturkjördæmi Norðvesturkjördæmi
22. apríl 2009
21. apríl 2009
Borgarafundur á RÚV
Reykjavík suður
Konukvöld kl. 20
Róleg stemning í kaup-
félagsbústaðnum í boði FUF
Kvennakvöld á Akureyri
Bændafundur í Eyjafjarðarsveit
og ungliðapartí á Egilsstöðum
Fundir á Hvammstanga og á
Akranesi
Hádegisfundur á Hvanneyri
24. apríl 2009 Leiðtogaumræður á RÚV Leiðtogaumræður á RÚV Leiðtogaumræður á RÚV Leiðtogaumræður á RÚV Leiðtogaumræður á RÚV
23. apríl 2009
25. apríl 2009
Sumarhátíð
Alþingiskosningar 2009
Kosningavaka á Hótel Borg
Vöfflukaffi í Kópavogi milli kl.
14 og 17
Alþingiskosningar 2009
Kosningavaka í Kópavogi
Brunch í Grindavík frá kl. 11-13
Alþingiskosningar 2009
Kosningavökur á Selfossi og í
Reykjanesbæ.
Kvennakvöld á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2009
Kosningavaka á Akureyri og
Húsavík
Alþingiskosningar 2009
Kosningavaka í Borgarnesi
Dagskrá fram að kosningum
Það er mikið um að vera hjá framsóknarmönnum um land allt fram að kosningum. Sjá nánar á www.framsokn.is/kjordaemi.
Að hlúa að þjóð er brýnt verkefni í
kjölfar efnahagshrunsins. Við höfum
horft á velstæð fyrirtæki blæða út á
undanförnum mánuðum. Dýrt fjár-
magn og óvissa letur atvinnurekendur
til að efla framleiðslu og krafturinn
þverr með hverjum mánuðinum sem
líður án þess að gripið sé til aðgerða.
En nú verðum við að fara breyta
vandamálum í verkefni svo hægt sé
að bretta upp á ermarnar og fara að
vinna. Það skiptir miklu máli að hjól
atvinnulífsins fari að snúast af krafti
og fyrirtækjum verði skapaður grund-
völlur til að starfa.
Í NV-kjördæmi eru mörg smá en
sterk fyrirtæki sem þarf að styðja við
bakið á. Við skulum ekki gleyma að
þar hefur orðið til þekking og reynsla
af margra ára eða áratuga þróunarstarfi.
Skiptir gríðarlega miklu máli að hún
tapist ekki með aðgerðaleysi stjórnvalda
og sinnuleysi. Þessi fyrirtæki hafa
mörg hver skapað sér framleiðslu-
grundvöll og nýtt sér sérstöðu þess
svæðis sem þau eru rekin á og tekist
með aðdáunarverðum dugnaði að koma
undir sig fótunum þrátt fyrir að hafa
verið utan við þensluumhverfi annarra
landssvæða. Fyrirtækin hafa þurft að
laga sig að misjöfnum aðstæðum svo
sem erfiðum samgöngum, óöryggi í
raforkuflutningi og gríðarlega miklum
aðstöðumun hvað varðar kostnað á
flutningi aðfanga.
Framsóknarflokkurinn hefur bent á
það hversu mikilvægt það er að ráðast í
sérstakt átak til að bæta samgöngur og
fjarskipti og að flýta þurfi mannafls-
frekum framkvæmdum. Þetta myndi
ekki aðeins skapa atvinnu heldur er svo
löngu komin röðin að mörgum sam-
göngumannvirkjum í þessu kjördæmi
sem nauðsynleg eru til að fyrirtæki og
nútíma samfélög fái að njóta sín með
eðlilegum hætti.
Að hlúa að þjóð
Akranes 431 2050 Sunnubraut 21
Akureyri 462 1665 Hólabraut 13
Borgarnes 894 1266 Vinakaffi, Hrafnakletti 1b
Blöndós 696 8402 Húnabraut 32
Djúpivogur 849 3417 Langabúð
Egilsstaðir 471 2586 Austrasalnum
Fáskrúðsfirði 895 1532 Búðarvegi 13 (Viðarsbúð)
Garðabær 565 6061 Kirkjulundi 19
Grindavík 893 1416 Framsóknarhúsinu
Grundarfjörður 894 4076 Framsóknarhúsinu
Hafnarfjörður 862 0966 Dalshrauni 5
Húsavík 861 1765 Kiwanishúsinu við Garðarsbraut
Hvammstanga 848 0007 Kjallara félagsheimilisins
Hveragerði 893 3176 Reykjamörk 2
Hvolsvöllur 692 9030 Gamla Essoskálanum
Höfn í Hornafirði 893 9308 Hafnarbraut 2
Ísafjörður 456 3690 Pollgötu 4
Kópavogur 555 3096 - 555 3097 Digranesvegi 12
Ólafsvík 894 1334 - 893 4718 Framsóknarhúsinu
Mosfellsbær 862 2442 Háholti 14
Neskaupstaður 860 3509 Hafnarbraut 4, 2. hæð (Brenna)
Reyðarfjörður 474 1624 Kaffistofu Skinneyjar
Reykjanesbær 421 1070 Framsóknarhúsinu Hafnargötu 62
Reykjavík 551 6011 Borgartúni 28
Sauðárkrókur 453 5374 Suðurgötu 3
Selfoss 482 2547 - 482 2416 Eyrarvegi 15
Siglufirði 467 1880 Suðurgötu 4, 3. hæð
Stöðvarfjörður 860 3509 Fjarðarbraut 40 (Steðji)
Vík í Mýrdal 864 2919 Hótel Vík
Kosningaskrifstofur
HALLA SIGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR skipar
5. sæti á lista Framsóknarflokksins í NV-
kjördæmi.
Ungir framsóknarmenn á Hornafirði
endurvöktu Félag ungra framsóknar-
manna í Austur-Skaftafellsýslu með
pompi og prakt í gamla kaupfélags-
bústaðnum. Meðal þeirra sem sóttu
fundinn voru frambjóðendurnir
Sigurður Ingi Jóhannsson, Einar Freyr
Elínarson og Bryndís Gunnlaugsdóttir,
sem er einnig formaður SUF.
Ungir framsóknarmenn berjast fyrir
öðrum málefnum en þeir eldri. Má
þar nefna aukna atvinnumöguleika
fyrir ungt fólk á sumrin, sumarannir í
háskólum, niðurfellingu skólagjalda
við opinbera háskóla, fleiri stúdenta-
íbúðir og fleira.
Áherslur ungra
Mæting á fund ungra framsóknarmanna í
A Skaftafellssýslu fór fram úr björtustu
vonum. Rúmlega 70 manns litu inn.
BJÖRGUNARAÐGERÐIR Það var opið hús hjá Björgunarsveit Kópavogs á laugardaginn. Siv
Friðleifsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Kraganum, spreytti sig á bor sem notaður er
við björgunaraðgerðir.
Gestur Valgarðsson, sem skipar 3. sæti
Framsóknarflokksins í Suðvestur-
kjördæmi, segir að Íslendingar séu
samkeppnishæfir á þekkingar-
markaðnum og í því felist sóknarfæri
sem verður að nýta. „Eftir efnahags-
hrunið fór Framsóknarflokkurinn í
gegnum endurnýjun sem almenningur
kallaði eftir, í dag státum við því af
styrk í nýju fólki og skýrri sýn í at-
vinnu- og efnahagsmálum sem er mest
aðkallandi í þessum kosningum.“
Gestur minnist einnig á hugsanlega
útkomu kosningana. „Hættan er að
hér myndist sérkennilegt stjórnar-
far sem einkennist af öfgum til
vinstri eða hægri. Ég vil meina að
Framsóknarflokkurinn sé akkeri
skynseminnar sem þörf er á í hverri
ríkisstjórn.“
Um skilaboð til kjósenda sagði hann:
„Ég hvet hvern og einn til þess að velta
fyrir sér hlutunum í stærra samhengi.
Framsóknarflokkurinn hefur lagt
fram 18 liða tillögur um leiðir út úr
kreppunni sem æ fleira fólk úr ólíkum
fylkingum sér að eru raunhæfar. Það
er því mikilvægt að við fáum atkvæði
kjósenda til þess að þessar lausnir
komist að.“
Nýtt fólk og skýr sýn
GESTUR VALGARÐSSON (TIL HÆGRI) ræðir við kjósendur í Smáralind um helgina.