Fréttablaðið - 21.04.2009, Síða 30

Fréttablaðið - 21.04.2009, Síða 30
Siv Fiðleifsdóttir 1. sæti - Suðvesturkjördæmi Vigdís Hauksdóttir 1. sæti Reykjavík suður Sigurður Ingi Jóhannsson 1. sæti - Suðurkjördæmi Gunnar Bragi Sveinsson 1. sæti - Norðvesturkjördæmi Birkir Jón Jónsson 1. sæti - Norðaustur- kjördæmi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 1. sæti Reykjavík norður Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur sýnt raunverulegt frumkvæði og orðið við kröfum kjósenda um endurnýjun. Með kosningu nýs formanns, nýrrar forystu og mikilli endurnýjun á framboðslistum hefur Framsókn svarað kalli almennings eftir raunverulegum breytingum. Framsókn tók líka frumkvæði í því að skipta út fyrrverandi ríkisstjórn með því að styðja við minnihlutaríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Tilgangur þess var að brjóta upp doða aðgerðarleysis svo koma mætti í veg fyrir frekara efnahagshrun, aukningu atvinnuleysis og gjaldþrotahrinu heimila og fyrirtækja. Kosningarnar 25. apríl eru viðbrögð Framsóknar við áköfum og sanngjörnum kröfum þjóðarinnar um að fá að stokka spilin upp á nýtt. Framsókn er eini flokkurinn sem hefur sýnt frumkvæði í að koma með raunverulegar lausnir sem geta tekið á þeim gríðarlega vanda sem íslenskt efnahagslíf og íslenskar fjölskyldur standa nú frammi fyrir. Með 20% leiðréttingu skulda er strax gripið til aðgerða og blaðinu snúið við. Á laugardaginn færð þú tækifæri til að taka frumkvæði í þínar hendur og velja breytingar. Framsóknarflokkurinn býður skýran valkost – almennar lausnir sem virka og byggja á þeirri einföldu hugmyndafræði að með því að veita Íslendingum sjálfum svigrúm til að vinna sig út úr vandanum, með dugnaði og atorkusemi, verði þjóðinni best borgið. • Leiðréttum skuldir heimilanna • Stöðvum efnahagshrunið • Endurreisum efnahagslífið • Byggjum upp fjölbreytt atvinnulíf • Bjóðum sumarannir fyrir námsmenn • Tryggjum öflugt velferðarkerfi • Semjum nýja stjórnarskrá sem undirstöðu fyrir nýtt Ísland FRUM KVÆÐI FYRIR OKKUR ÖLL FRAMSÓKN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.