Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 36

Fréttablaðið - 21.04.2009, Side 36
20 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þegar maður var yngri og átti það til að fara á svig við reglur foreldr-anna beitti maður stundum því ágæta bragði að benda á einhvern annan og tala fjálglega um hversu slæmur hann væri. Þetta var gert í þeirri veiku von að sú aðferð myndi nægja til að fegra manns eigin syndir. Þetta herbragð heppnaðist í flestum tilvikum ekki enda alveg sama hversu vondir aðrir eru, þeirra verk fegra ekki manns eigin gjörðir. Stjórnmálamenn virðast þroskast seint upp úr þessum barnalegu undanbrögðum. Því þegar einhver bendir á spill- ingu í herbúðum þeirra er við- kvæðið oft að fara að tala um meiri spillingu einhverra ann- arra og reyna þannig að beina kastljósinu frá sjálfum sér í stað þess að horfast í augu við galla sína og bresti. Þetta gerir þeirra yfirsjónir þó ekk- ert minni fyrir vikið. Sá mæti maður, Jesús Kristur, hélt stutta tölu yfir lærisveinum sínum í Lúkasarguð- spjalli þegar þeir áttu erfitt með að sætta sig við umburðarlyndi meistarans gagn- vart hórum og öðrum syndurum. „Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns?“ spurði hann. „En tekur ekki eftir bjálkanum í auga sjálfs þín?“ Og hann hélt áfram. „Hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð þó eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsn- ari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.“ Ágætis heilræði fyrir hina nýju þingmenn. Heilræði fyrir nýja þingmenn NOKKUR ORÐ Freyr Gígja Gunnarsson Ekki klúðra þessu... Ekki klúðra þessu... Bleyjuskipti. Þú skiptir á þessum Vigni og ég skipti á hinum Vigni. Birgitta! Við vorum saman í þrjú ár! Mjög ástfangin! En svo fékk ég nóg og vildi fá meira frelsi! Þetta lítur út eins og þú hafir límt höf- uðið þitt inn á aðra mynd.... Nei, nei, nei! Komdu með þetta! Víst! Þetta er svona týpísk mynd sem fylgir rammanum þegar þú kaupir hann! Nei! Sjáðu hvað fíllinn gerir! Ég þarf að þola það að hlusta á enda- lausa síbylju frá móður minni. Það er þá þess vegna sem ég næ engu sam- bandi með símanum hérna! Það vinnur mig enginn í störukeppni! Nei hver déskotinn!!! Hvaða ruglaða foreldri skírir tvíburana sína sama nafni? Lárus! Bína er vinkona mín. Ég sætti mig ekki við að þú kallir hana ruglaða! Fyrir- gefðu. Kallaðu hana kolruglaða eins og allir gera. 9. HVER VINNUR! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS ESL UBV Á NÚMERIÐ 1900 ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! 149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Magnaður spennutryllir frá framleiðandanum Michael Bay. FRUMSÝND 22.4.2009

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.