Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 42
26 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
9. HVER
VINNUR!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS ESL C2V
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
JASON STATHAM ER MÆTTUR AFTUR Í HLUTVERKI
HINS ÓDREPANLEGA CHEV CHELIOS
22.04.09
> Stjarnan og Fram geta komist í úrslit
Úrslitakeppni N1-deildar kvenna heldur
áfram í kvöld þegar leikir tvö í undan-
úrslitunum fara fram. Í Framhúsinu
taka Framstúlkur á móti Haukum en á
Hlíðarenda fær Valur lið Stjörnunnar
í heimsókn. Fram og Stjarnan unnu
fyrstu leikina í rimmunum og geta því
með sigri í kvöld bókað sig í úrslitin.
Að öðrum kosti verður spilaður
oddaleikur á föstudaginn. Leikir
kvöldsins hefjast klukkan 19.30.
N1-deild karla:
Fram-Haukar 23-26 (12-8)
Mörk Fram: Haraldur Þorvarðarson 8 (9), Rúnar
Kárason 5/3 (14/4), Stefán Baldvin Stefánsson 3
(4), Andri Berg Haraldsson 3 (9), Jóhann Gunnar
Einarsson 2 (7), Guðmundur Hermannsson 1 (1),
Guðjón Finnur Drengsson 1 (5), Brjánn Guðni
Bjarnason (1), Magnús Stefánsson (2)
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 20/1
(46/5 43,8%)
Hraðaupphlaup: 4 (Stefán 3, Haraldur)
Fiskuð víti: 4 (Brjánn 2, Magnús 2)
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Hauka: Gunnar Berg Viktorsson 8/2 (12/2),
Freyr Brynjarsson 5 (6), Andri Stefan 4 (11), Kári
Kristján Kristjánsson 3 (6), Elías Már Halldórsson
3 (7), Sigurbergur Sveinsson 2/2 (10/3), Einar
Örn Jónsson 1 (2/1), Arnar Pétursson (1)
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 24/1 (47/4
51,1%)
Hraðaupphlaup: 7 (Freyr 4, Andri, Elías, Einar)
Fiskuð víti: 6 (Andri 2, Einar 2, Kári 2)
Utan vallar: 8 mínútur
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, leystu erfitt verkefni vel af hendi og
höfðu góð tök á leiknum.
HK-Valur 29-24 (14-11)
Mörk HK (skot): Valdimar Þórsson 10/4 (13/4),
Ragnar Hjaltested 7/1 (9/1), Ólafur Bjarki Ragn-
arsson 5 (13), Einar Ingi Hrafnsson 4 (5), Már
Þórarinsson 1 (4), Gunnar Steinn Jónsson 1 (5),
Ásbjörn Stefánsson 1 (1).
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 21/5 (45/8)
47%.
Hraðaupphl.. 5 (Ragnar 3, Már, Valdimar).
Fiskuð víti: 6 (Ólafur 2, Einar, Valdimar, Ragnar).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Vals (skot): Elvar Friðriksson 6/1 (11/2),
Hjalti Pálmason 4 (6), Ingvar Árnason 4 (6),
Arnór Gunnarsson 3 (7/2), Heimir Örn Árnason
3/2 (8/3), Sigurður Eggertsson 2 (4), Sigfús Páll
Sigfússon 1 (2), Fannar Friðgeirsson 1 (8/1).
Varin skot: Pálmar Pétursson 6 (19/1) 32%,
Ólafur Gíslason 3 (19/4) 16%.
Hraðaupphl.: 6 (Ingvar 2, Sigurður, Fannar, Elvar,
Arnór).
Fiskuð víti: 8 (Fannar 3, Elvar 3, Heimir, Ingvar.)
Utan vallar: 2 mín.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson,
frábærir.
Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að handboltahreyfingin sé
ósátt við RÚV þessa dagana. RÚV hefur svikið gerða samninga
við HSÍ varðandi sjónvarpsútsendingar frá íslenskum hand-
bolta síðustu tvö ár og sýnir ekkert frá undanúrslitunum í ár.
Mörgum fannst þó steininn taka úr í gær þegar staðfest
var að vináttulandsleikur Íslands og Hollands í kvenna-
knattspyrnu yrði sýndur í beinni útsendingu næsta laugar-
dag, á sjálfan kosningadaginn.
„Við vorum beðnir um að vera ekki með neina leiki á
þessum degi þar sem þeir sögðust ekki geta sinnt okkur.
Við gerðum það og því er þetta frekar einkenni-
legt. Það kom okkur líka á óvart að sjá RÚV
sýna frá annarri íþrótt síðasta laugardag,“ sagði
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, og
mátti heyra að hann var allt annað en sáttur
við gang mála. „Hvað á maður annars að
segja um þetta mál? Allur ferilinn í kringum
þetta mál hefur verið harmleikur og þá
sérstaklega er varðar undanúrslitin.“
Einar segir samstarfið við RÚV hafa gengið vel fyrir áramót. „Síðan
kom hrunið og þá vildu þeir fá að róa þetta aðeins. Meiningin
var samt að sýna frá undanúrslitunum og úrslitunum,“ sagði
Einar en RÚV hefur borið því við að geta ekki sýnt frá leikjum
sökum útsendinga tengdra væntanlegum kosningum. Vanda-
málið er þó alls ekki nýtt af nálinni.
„Engin af þeim útsendingarplönum sem við lögðum upp
með fyrir veturinn hafa staðist. Það voru einnig vanefndir
á ákveðnum tímapunkti í fyrra en það má segja að það
hafi verið lagað,“ sagði Einar en hvernig verður
framhaldinu háttað? Mun HSÍ semja áfram
við RÚV um útsendingarrétt á efninu? „Ég hef
ekki umboð til að taka neinar slíkar ákvarðan-
ir. Það kemur ný stjórn hjá HSÍ í vikunni og
það er verkefni þeirra stjórnar að tækla það
mál,“ sagði Einar.
HSÍ hefur brugðist við með því að senda
úrslitakeppni karla beint út á netinu og
hefur það mælst vel fyrir.
ÓÁNÆGJA HJÁ HANDBOLTAFÓLKI: RÚV SÝNIR KNATTSPYRNULEIK ÞEGAR EKKI ÁTTI AÐ VERA HÆGT AÐ SENDA ÚT
Engin útsendingarplön vetrarins hafa staðist
HANDBOLTI HK þarf að verða fyrsta
liðið í vetur til að vinna Val í Voda-
fonehöllinni ætli liðið sér í úrslit
Íslandsmótsins. Það varð ljóst í gær
þegar HK knúði fram oddaleik með
öruggum sigri á Val, 29-24, fyrir
framan troðfullt hús af áhorfend-
um í Digranesi.
HK var sterkara liðið nær allan
leikinn en grunninn að sigrinum
lagði hinn ungi markvörður HK,
Björn Ingi Friðþjófsson, en strák-
urinn fór gjörsamlega á kostum í
leiknum. Varði yfir 20 skot og þar
af heil 5 víti.
„Þetta var líklega minn besti
leikur í meistaraflokki,“ sagði
Björn Ingi brosmildur eftir leik en
hver var lykillinn að þessum góða
leik hans? „Ég var í prófi í morg-
un og ætli það sé ekki einbeiting-
in síðan þar. Ég held ég hafi annars
gert allt vitlaust í undirbúningnum
fyrir leikinn en það er í lagi ef það
virkar svona fínt,“ sagði Björn og
hló dátt.
Það var magnað að sjá strákinn
í vítaköstunum en leikmenn Vals
virtust hreinlega fara á taugum
gegn honum á punktinum. „Ég hafði
á tilfinningunni fyrir hvert víti
að ég myndi verja. Það var mikið
sjálfstraust. Ég ætla að fara með
þetta sjálfstraust í Vodafonehöll-
ina á föstudag þar sem Valur mun
loksins tapa.“
HK réði algjörlega ferðinni í
leiknum og leiddi lengstum næsta
örugglega. Valsmenn tóku einstaka
dauðakippi en þeir voru allt of litl-
ir og allt of stuttir. Mest munaði
um hjá Val að varnarleikurinn var
hreinasta hörmung og markvörðum
liðsins var vorkunn að standa fyrir
aftan hripleka vörnina.
HK-liðið spilaði aftur á móti fant-
avörn nánast allan leikinn og Vals-
menn vissu á köflum ekki sitt rjúk-
andi ráð í sókninni. Þeir gerðu smá
áhlaup um miðjan síðari hálfleik en
Gunnar Magnússon, þjálfari HK,
var klókur. Tók leikhlé á hárréttum
tíma, róaði sitt lið sem tók leikinn
aftur í sínar hendur í kjölfarið og
kláraði hann. „Varnarleikurinn var
mjög lélegur. Í svona úrslitakeppni
verður að vera vörn svo menn fái
mörk úr hraðaupphlaupum og geti
róað sig í sókninni,“ sagði Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.
„HK var einfaldlega betra liðið
í þessum leik. Ég held að menn
hafi verið of mikið með það á bak
við eyrað að við ættum heimaleik
eftir ef þetta klúðraðist. Við höfum
ekki tapað þar og byrjum ekki á því
núna.“ - hbg
Valsmenn áttu aldrei möguleika gegn sterku liði HK í Digranesi í gær:
Björn Ingi tryggði HK oddaleik
STÓRKOSTLEGUR Björn Ingi Friðþjófsson fór hamförum í marki HK í gær og varði
meðal annars fimm vítaköst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Íslandsmeistarar Hauka
eiga enn möguleika á að verja titil
sinn eftir frækin, 23-26, sigur á
Fram í Safamýri í gær í frábær-
um handboltaleik.
Það var gríðarlega hart barist í
leiknum frá fyrstu mínútu og léku
liðin frábærar varnir. Haukar
áttu í bullandi vandræðum í sókn-
arleiknum gegn mjög sterkri vörn
Fram í fyrri hálfleik og skoruðu
aðeins 8 mörk en Fram var fjórum
mörkum yfir í hálfleik, 12-8.
Haukar hófu síðari hálfleikinn
af krafti og jöfnuðu metin, 14-14,
eftir sjö mínútna leik. Fram hélt
þó frumkvæði sínu og voru yfir,
20-18, þegar tíu mínútur voru til
leiksloka.
Þá skoruðu Haukar fimm mörk
í röð og lögðu grunninn að örugg-
um þriggja marka sigri, 23-26, en
Fram skoraði tvö síðustu mörk
leiksins.
„Þetta er uppsafnað. Ég hef ekki
getað skotið á markið síðan í febrú-
ar og það tóku sig upp gömul skot.
Maður er ekki nýr í þessu sporti
og veit hvenær það þarf að spýta
í lófana. Ef maður rís ekki upp í
svona leikjum þá gerir maður það
aldrei.
Við skulum vona að það verði
framhald á þessu en við skulum
ekki búast við því,“ sagði glað-
beittur Gunnar Berg Viktorsson
sem fór á kostum í síðari hálfleik
og dró vagninn hjá Haukum með
sex mörkum eftir hlé og fjölda
stoðsendinga.
„Þetta vinnst á markvörslu og
varnarleik og í dag vorum við
beittari en þeir. Við brotnuðum
í síðasta leik þegar þeir komust
yfir og nú brotna þeir þegar við
komumst yfir, þetta er allt saman
í hausnum á mönnum og ef menn
halda ekki haus í 60 mínútur þá
tapa menn,“ sagði Gunnar Berg.
„Það sem fór með þetta var að
við hleyptum þeim inn í leikinn
strax í byrjun seinni hálfleiks.
Þetta lenti þeirra megin í dag og
þetta eru jöfn lið. Það verður bar-
átta á Ásvöllum í oddaleiknum,“
sagði línumaðurinn Haraldur Þor-
varðarson sem átti mjög góðan leik
í liði Fram.
„Það dreymir alla handbolta-
menn um að spila svona leiki og
ungu strákarnir hérna hafa ekki
upplifað að leika svona leiki áður.
Þetta eru frábærir leikir, góð
skemmtun og það gefa allir allt í
þetta. Frábært að spila fyrir fullu
húsi og ótrúlegt að sjónvarpið
sýni þetta ekki,“ sagði Haraldur
að lokum við Fréttablaðið en þeir
sem komast ekki á völlinn geta séð
leikinn beint á netinu á HSÍ TV
sem verður með báða oddaleikina
í beinni útsendingu. - gmi
Gunnar Berg sýndi gamla takta
Íslandsmeistarar Hauka tryggðu sér oddaleik í rimmunni við Fram í undanúrslitum N1-deildar karla með
góðum útisigri á Fram í Safamýri. Leikurinn var afar harður og litlu mátti muna að upp úr syði.
FÖGNUÐUR Reynsluboltarnir í liði Hauka, Einar Örn Jónsson og Birkir Ívar Guð-
mundsson, sjást hér fagna í Safamýrinni í gær. Haukar unnu frækinn sigur og liðin
þurfa að mætast í oddaleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI