Fréttablaðið - 21.04.2009, Page 46
30 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. héldu brott, 6. ólæti, 8.
lærir, 9. fuglahljóð, 11. þys, 12. tjón,
14. gróðabrall, 16. skóli, 17. berja, 18.
andi, 20. umhverfis, 21. tangi.
LÓÐRÉTT 1. borg, 3. belti, 4. æfingu,
5. suss, 7. hæringur, 10. samstæða,
13. eldsneyti, 15. ata, 16. skammst.,
19. tveir eins. LAUSN
LÁRÉTT: 2. fóru, 6. at, 8. les, 9. rop,
11. ys, 12. ógagn, 14. brask, 16. ma,
17. slá, 18. önd, 20. um, 21. oddi.
LÓÐRÉTT: 1. faró, 3. ól, 4. reynslu, 5.
uss, 7. togband, 10. par, 13. gas, 15.
káma, 16. möo, 19. dd.
Forsetafrú Íslands, Dorrit Mouss-
aieff, verður næstu þrjá daga í höf-
uðborg arabíska smáríkisins Katar,
Doha, þar sem hún situr ráðstefnu
með fyrrverandi forsætisráðherra-
frú Breta, Cherie Blair, og íþrótta-
hetjunni Carl Lewis auk forseta-
frúa frá Albaníu, Panama, Póllandi
og Hondúras. Dorrit sat þessa ráð-
stefnu einnig í fyrra. Cherie Blair
er mannréttindalögfræðingur að
mennt og hefur barist fyrir aukn-
um rétti barna um allan heim.
Ráðstefnan fjallar um börn með
sérþarfir og stendur í þrjá daga.
Þetta er í fjórða skiptið sem ráð-
stefna af þessu tagi er haldin en
það er eiginkona emírsins, Sheik-
ha Mozah bint Nasser al-Missned,
sem er verndari hennar. Hátt í 250
manns úr öllum áttum munu sækja
þessa ráðstefnu, þar á meðal fólk
sem hefur náð langt þrátt fyrir fötl-
un sína og fólk sem hefur unnið að
því að bæta aðstæður fyrir fötl-
uð börn. Í þeim hópi má nefna
Bob og Susanne Wright sem
hafa unnið mikið frumkvöðla-
starf fyrir einhverf börn
og Chris Waddell en hann
komst í skíðalið fatlaðra
hjá Bandaríkjunum aðeins
þremur árum eftir að hafa
hryggbrotnað.
Ítarlega er fjallað um
þessa ráðstefnu í Gulf
Times, sem kemur út á
ensku í Katar. Þar kemur
fram að Dorrit hafi um
árabil unnið að velferð
barna og ungs fólks,
sérstaklega þeirra sem eigi
við líkamlega fötlun að stríða.
Jafnframt kemur fram í blað-
inu að forsetafrúin hafi sjálf
þurft að glíma við fötlun á unga
aldri, hún sé lesblind og hafi því
ekki getað gengið í hefðbundinn
skóla heldur hafi einkakennarar
séð um skólagöngu hennar. - fgg
Dorrit situr ráðstefnu með Carl Lewis
„Ég sendi þessum manni, Jim Beach,
póst fyrir nokkrum árum vegna smá
fyrirspurnar og hlýt að hafa endað
á einhverri skrá hjá honum,“ segir
lagahöfundurinn Hallgrímur Ósk-
arsson, sem fékk nokkuð óvæntan
glaðning fyrir nokkru. Forsag-
an að gjöfinni er nokkuð skond-
in en þannig er málum háttað að
Jim þessi Beach var umboðsmaður
rokksveitarinnar goðsagnakenndu
Queen. Beach býr í Sviss um þess-
ar mundir ásamt konu og hundi en
sá síðarnefndi strauk af heimilinu
og týndist.
Brugðið var á það ráð að senda
öllu nærsveitarfólki póst og lýsa
eftir kvikindinu. Ekki vildi betur til
en svo að fyrir mannleg mistök var
tölvupóstskrá Beach send til allra
sem einhvern tímann höfðu óskað
liðsinnis hans í gegnum tölvupóst.
Og þar á meðal Hallgríms. Meðal
þeirra tölvupóstfanga sem þarna
leyndust má nefna tölvupóst Elton
John, Beyoncé, George Michael,
AC/DC og David Bowie. Og að sjálf-
sögðu eftirlifandi Queen-meðlima.
Ekki amalegur félagsskapur að vera
í.
Hallgrímur viðurkennir að honum
hafi þótt þetta fyndið. Að vera þarna
kominn með, á einu bretti, tölvu-
póstföng frægustu tónlistarmanna
í heimi. Hann segist þó hafa setið á
sér og ákveðið að senda þessu fólki
ekki póst. Nema Brian May, gítar-
leikara Queen. „Enda er hann ann-
álaður fyrir að vera öðlingsdreng-
ur.“ Ekki stóð heldur á svarinu frá
hinum hárprúða May, sem lét sig
ekki muna um að skrifa smá lof-
ræðu um jarðfræði Íslands ásamt
því að biðla til íslenskra stjórn-
valda um að láta af hvalveiði-
áformum sínum. - fgg
Fékk tölvupóstskrá frægra fyrir misskilning
KUMPÁNLEGUR Hallgrímur stóðst ekki
mátið, skrifaði Brian May og fékk svar
samdægurs.
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Forsetafrú Íslendinga er í góðum félagsskap með Cherie Blair
og Carl Lewis í Katar um þessar mundir. Hér eru þær á þessari sömu ráðstefnu í
fyrra.
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Tölvupóstur með
tölvupóstföng þekktustu poppstjarna í
heimi rataði óvart í hendur Hallgríms.
„Þetta eru gleðitíðindi, auðvitað
gleðst maður yfir þessu,“ segir
Guðný Halldórsdóttir, kvikmynda-
gerðarmaður og dóttir nóbels-
skáldsins Halldórs Laxness. Geng-
ið hefur verið frá samningi milli
erfingja Halldórs og Vöku-Helga-
fells um útgáfu verka skáldsins á
næstu árum. Samningurinn verð-
ur undirritaður á Gljúfrasteini á
fimmtudag, fæðingardegi Hall-
dórs.
Mikil óvissa hefur verið um
útgáfu á verkum Halldórs Laxness
síðustu misseri. Þegar JPV-útgáfa
og útgáfuhluti Eddu sameinuðust
árið 2007 í Forlagið varð Vaka-
Helgafell hluti af hinu sameinaða
fyrirtæki. Samkeppniseftirlitið
setti Forlaginu ýmis skilyrði fyrir
sameiningunni og meðal þeirra
var að lager og útgáfugögn verka
Halldórs Laxness skyldu seld og
að útgáfusamningur við erfingja
nóbelsskáldsins yrði ekki endur-
nýjaður. Ekkert tilboð barst frá
útgefendum og síðasta sumar rann
útgáfusamningurinn út. Síðan þá
hefur gengið hratt á lagerinn af
verkum Laxness og margir titlar
eru uppseldir.
Erfingjar Laxness leituðu til
Samkeppniseftirlitsins til að leysa
málið og nú hefur sátt náðst milli
erfingjanna, Forlagsins og sam-
keppnisyfirvalda. „Það var auð-
vitað ekkert hægt að stöðva útgáfu
á verkunum, maður trúði því ekki
að þetta gæti gengið í heilt ár. Þeir
sáu að þetta var ekki hægt. Það eru
ýmis önnur vandamál sem steðja
að okkur en að bókaforlög séu of
stór,“ segir Guðný Halldórsdóttir.
„Það virðast margir hafa haldið að
við værum svo stór en við erum
bara 300 þúsund. Samkeppnislög
virka bara ekki í öllum tilvikum.“
hdm@frettabladid.is
GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR: AUÐVITAÐ GLEÐST MAÐUR YFIR ÞESSU
Vaka-Helgafell fær að gefa
út verk Halldórs Laxness
SAMIÐ UM ÚTGÁFU Á VERKUM HALLDÓRS LAXNESS Systurnar Guðný og Sigríður
Halldórsdætur geta glaðst yfir því að samið hefur verið um að Vaka-Helgafell gefi út
bækur föður þeirra, nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Samningar náðust um þetta við
Samkeppniseftirlitið, sem sett hafði ströng skilyrði þegar Vaka-Helgafell varð hluti af
Forlaginu. Óvissa hefur verið um útgáfu á verkum skáldsins síðustu misseri og margir
titlar hafa selst upp. Skrifað verður undir útgáfusamninginn á Gljúfrasteini á fimmtudag-
inn, á fæðingardegi Halldórs Laxness. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL./GVA
Það verður hátíð í bæ á morgun
þegar árshátíð Félags kvikmynda-
gerðarmanna verður haldin á
Hótel Loftleiðum. Ekki er neinn
kreppubragur á árshátíðinni því
þemað er „Hollywood 50‘s Awards
Ceremony“ og glæsileg veisluföng
verða fram reidd. Meðal þess sem
íslenskir bíómógúlar geta gætt
sér á er lambalæri, nautaframfille
með rósmarín og svörtum pipar
og laufsalat með furuhnetum.
Aðgangseyrir er sjö þúsund krónur
og er vín þá ekki innifalið. Meðal
skipuleggjenda er Hannes Frið-
bjarnarson hjá Republik
og munu skemmtiatriði
vera skipulögð af kvik-
myndagerðarmönnun-
um sjálfum. Þó er búist
við að leynigestur
eða heiðursgestur
láti sjá sig.
Íbúar Reykjanesbæjar urðu fyrir
áfalli um helgina þegar Idol-söngv-
arinn Árni Þór féll úr keppni eftir
mikla spennu og dramatík. Alex-
andra þurfti einnig að taka pokann
sinn en Anna Hlín slapp fyrir horn.
Reyknesingar geta þó tekið gleði
sína á ný. Þeir eiga
enn eftir einn fulltrúa
því Guðrún Lísa
Einarsdóttir flutti í
síðustu viku suður
með sjó og hyggst
halda merki
bæjarfélagsins
á lofti.
Helgin gekk ekki þrautalaust fyrir
Suðurnesjamenn því þeir máttu sjá
á eftir Morfís-titlinum í hendurnar
á Versló þegar FS tapaði naum-
lega. Meðal þeirra sem töluðu
fyrir hönd FS var Sigfús Jóhann
Árnason en hann á ekki langt að
sækja ræðulistina; pabbi hans er
Árni Sigfússon bæjarstjóri. Kliður
fór um salinn þegar einn
Verslingurinn fór miður
fögrum orðum um
bæjarstjórahjónin í
ræðu sinni til að koma
höggi á Sigfús, sem lét
það lítið á sig fá og
hélt sínu striki, allt til
enda. - hdm/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Oftast kýs ég nú að lesa í
hljóði, en stundum er gott að
hafa tjillaða tónlist í gangi. Það
er þá til dæmis indversk tónlist
með Zakir Hussain og Alla
Rakha eða Thievery Corporat-
ion: Meistarar „chill-out“-tón-
listarinnar. Svo líka Radio Nova,
frönsk útvarpsstöð með fönkí og
góða tónlist.“
Martin Leifsson háskólanemi
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Til Englands.
2 Þriggja vikna gæsluvarðhald.
3 Frá danska hernum.