Fréttablaðið - 24.04.2009, Page 1

Fréttablaðið - 24.04.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FÖSTUDAGUR 24. apríl 2009 — 97. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 GRÆN STÖRF - vistvænar áherslur í atvinnuuppbygg- ingu kallast málþing sem haldið verður í Iðnó á morg- un, laugardag, frá klukkan 13 til 15. Umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga standa fyrir málþinginu þar sem fjallað er um nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu í kjölfar efnahagserfiðleika. Margrét Erla Maack, dagskrá-gerðarkona á Rás 2, og liðsfélag-ar hennar þar höfnuðu á dögun-um í öðru sæti í matreiðslukeppni fjölmiðlafólks, sem Gestgjafinn og Turninn í Kópavogi efndu til.„Við vorum montnust með það að hafa verið fyrir ofan Frétta-stofu RÚV,“ nefnir Margrét Erla kát. Ástæðan var sú að fyrir liði Fréttastofu RÚV fór fréttakonan og matreiðslubókahöfundurinn vinsæli, Jóhanna Vigdís Hjalta-dóttir. Í keppni þar sem frumlegheitog áræði skipta k Rífandi humarrétturMargrét Erla Maack, dagskrárgerðarkona á Rás 2, og liðsfélagar hennar þar stóðu sig vel í matreiðslu- keppni fjölmiðlafólks sem Gestgjafinn og Turninn í Kópavogi efndu til á dögunum . Margrét Erla Maack, dagskrárgerðarkona á Rás 2, gefur lesendum Fréttablaðsins bragðgóða uppskrift að humri með kúskús, chili og mangó. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Humar (plokkaður eða með skel) Þurrt hvítvín Engiferrót, rifinSaxaður hvítlaukur (mikill) Kúskús Mangó Búnt af kóríanderSmjör Olía helmningnum af hvít-lauknum. Einnig væri hægt að nota risarækjur eða skötusel í staðinn fyrir humarinn. Skerið mangóið í smáa ten- inga. Undirbúiðkú Setjið síðan restina af engiferinu og hvít-lauknum út í. Steikið humarinn í smjöri á pönnu (eða grillið á útigrilli). Skvettið smá hvítvíni út ROKKHUMAR RÁSAR 2Með kúskús og mangói Nýr A la Carte REYKT ÖNDmeð blönduðu salati, valhnetum og fíkjublönduVið mælum með Pinot Gris, Pully Fumé eða Pouilly Fuisse með þessum rétti. 4ra rétta tilboðsseðill Verð aðeins 6.890 kr.með 4 glösum af sérvöldum vínum aðeins 10 490 k Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf! VEÐRIÐ Í DAG MARGRÉT ERLA MAACK Gefur uppskrift að rokkhumri Rásar 2 • matur • helgi Í MIÐJU BLAÐSINS Blómlegt starf alla tíð Kvenfélag Biskups- tungna er 80 ára. TÍMAMÓT 22 Norrænt velferðarsamfélag ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -0 1 2 3 föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 24. apríl 2009 Vil ala barnið mitt upp á Íslandi Á VON Á Kitty Von Sometime, plötusnúður og forsprakki Weird Girls Project, á von á sínu fyrsta barni með Daníel Ágústi Haraldssyni söngvara. Margir spenntir Einar Tómasson kynnti Ísland sem heppilegan töku- stað fyrir kvikmyndir í Hollywood. FÓLK 34 KITTY VON SOMETIME Brjálæðislega skipulögð Á nú von á sínu fyrsta barni FÖSTUDAGUR FYLGIR Í DAG Með þrjár í takinu Ástamál ástralska stórleikarans Mels Gibson eru farin að taka á sig heldur skrautlega mynd. FÓLK 26 Með kampavín í augum Alfreð Gíslason varð Þýska- landsmeistari í handbolta í fjórða skiptið á ferlinum sem er einstakt. ÍÞRÓTTIR 31 Hvasst við vesturströndina Í dag eru horfur á stífri norðanátt við vesturströndina en hægari vindi annars staðar. Búast má við úrkomu víða, einkum á Vestfjörð- um og við suðausturströndina. VEÐUR 4 2 -2 3 6 6 Fylgi stjórnmálafl okkanna Skoðanakönnun Fréttablaðsins 20.-22. apríl 2009 – fjöldi þingmanna og fylgi (%) 15 25 21,9 4 0 2,6 18 21 31,8 9 16 24,1 7 7 11,3 Ko sn in ga rF jö ld i þ in gs æ ta 25 20 15 10 5 0 SUMRI FAGNAÐ Krakkar úr yngstu deildum Hlíðaskóla, Háteigsskóla og Austurbæjarskóla fögnuðu í gær sumri með réttinda- göngu frá Austurbæjarskóla upp á Klambratún. Það var þó ekki sumarlegt um að litast þar enda rigndi eins og hellt væri úr fötu. FRÉTTABLÐIÐ/DANÍEL. 4 7,1 0 1,2 SKOÐANAKÖNNUN Útlit er fyrir öruggan sigur vinstri flokkanna samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Það stefnir í að Sjálfstæðisflokkurinn fái verstu útkomu frá stofnun, en 21,9 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú. Samkvæmt því fengi flokkurinn fimmtán þingmenn, tíu færri en hann hefur nú. Mikill kynjamunur er á stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn, 25,8 pró- sent meðal karla en 16,6 prósent meðal kvenna. Sjálfstæðisflokkurinn mælist oft með hærra fylgi í könnunum, miðað við úrslit kosninga, en þar sem óvenjustór hluti fyrrverandi sjálfstæð- ismanna segist í könnunum ekki ætla að kjósa, eða skila auðu, gæti orðið breyting þar á. Samfylkingin yrði samkvæmt þessari könn- un stærsti flokkurinn á Alþingi með 21 þing- mann en 31,8 prósent segjast myndu kjósa flokkinn. Bætir flokkurinn við sig þremur mönnum frá síðustu kosningum þegar hann fékk átján þingmenn kjörna. Vinstri græn bæta mestu við sig frá síðustu kosningum. 24,1 prósent styður flokkinn nú og myndi hann samkvæmt því fá 16 þingmenn og bæta við sig sjö frá núverandi þingmönnum. Vinstri græn hafa mun meiri stuðning meðal kvenna en karla. Flokkurinn hefur 20,2 prósent meðal karla, en 29,3 prósent meðal kvenna. Framsóknarflokkurinn myndi halda sínum sjö þingmönnum, en 11,3 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins úr Reykjavík norður nær Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokks- ins, kjöri. Borgarahreyfingin fengi fjóra menn kjörna, samkvæmt könnuninni en fylgi hreyfingar- innar er nú 7,1 prósent. Flokkurinn hefur mest fylgi á höfuðborgarsvæðinu og því líklegast að þingmenn flokksins komi þaðan. Hvorki Frjálslyndi flokkurinn né Lýðræðis- hreyfingin myndu ná manni á þing. 2,6 prósent styðja Frjálslynda flokkinn nú, en 1,2 prósent segjast myndu kjósa Lýðræðishreyfinguna. Könnunin var gerð 20.-22. apríl og hringt var í 3.600 manns. -ss/ sjá síður 4 og 6 Ríkisstjórnin með meirihluta Samfylking og Vinstri græn fá 37 þingmenn af 63, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 15 þingmenn, Framsóknarflokkurinn sjö og Borgarahreyfingin fjóra. EFNAHAGSMÁL Utanríkismálanefnd mun í dag skoða minnisblöð um samtöl þáverandi forsætisráðherra við breska ráðamenn í byrjun okt- óber á síðasta ári. Fundurinn er haldinn í kjölfar fyrirspurnar Siv- jar Friðleifsdóttur sem spurði um gögn um samtöl sem átt hefðu sér stað dagana 3. til 6. október. Siv segist hafa beðið um gögn- in til að fá það á hreint hvort til séu gögn sem varpi ljósi á það af hverju Icesave-ábyrgðirnar fóru ekki í breska lögsögu, sé rétt að svo hafi verið unnt. Björgólfur Thor Björgólfsson hafi fullyrt að slíkir samningar hafi verið tilbún- ir og Tryggvi Þór Herbertsson hafi sagt opinberlega að hann hafi tjáð forsætisráðherra það. Af svari for- sætisráðherra megi skilja að sam- töl hafi átt sér stað á milli ráða- manna þjóðanna á þessum tíma. Siv segir mikilvægt að upplýsa þessi mál. Hafi verið hægt að leysa þjóðina undan Icesave-ábyrgðum fyrir 200 milljónir breskra punda hefði það verið margfalt ódýrari leið. Upplýsingar um þessi mál eigi að vera uppi á borðinu, séu gögnin fyrir hendi. Forsætisráðuneytið hefur afhent rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið gögnin. Gögnin verða kynnt utanríkismálanefnd í trún- aði í dag. - kóp Utanríkismálanefnd fundar um samskipti íslenskra og breskra ráðamanna: Samtöl í byrjun október rædd ÍÞRÓTTIR Haukar og Valur munu leika til úrslita á Íslandsmótinu í handknattleik karla. Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum með stórsigri á Fram, 30-21. Fyrir leikinn í gær höfðu bæði lið unnið einn leik. Haukar náðu strax yfirhöndinni í leikn- um, komust í 5-2 og 12-7. Eftir það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Ögn meiri spenna var í viðureign Vals og HK að Hlíðar- enda. Valsmenn höfðu þó alltaf yfirhöndina og leiddu með sex mörkum í hálfleik. HK-menn náði að minnka muninn niður í þrjú mörk en lengra komust þeir ekki. Valsmenn sigruðu 28-25 og eru enn ósigraðir á heimavelli. Fyrsta viðureignin í úrslitum fer fram að Ásvöllum í Hafnar- firði á mánudaginn kemur. - Sjá síðu 30 Íslandsmótið í handknattleik: Valur og Haukar leika til úrslita

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.