Fréttablaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 34
22 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
GUÐMUNDUR EGGERTSSON
PRÓFESSOR ER FÆDDUR ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1933.
„Hver lífvera býr yfir sínum
sérkennum, sínum sérstöku
lausnum á þeim vanda að
vera lifandi.“
Guðmundur er prófessor í líf-
fræði við Háskóla Íslands.
MERKISATBURÐIR
1840 Sveinn Pálsson, læknir og
náttúrufræðingur, deyr, 77
ára að aldri.
1914 Dauðadómur er kveðinn
upp í síðasta sinn á Ís-
landi en var síðar breytt í
ævilangt fangelsi.
1977 Tékkneski stórmeistarinn í
skák, Vlastimil Hort, setur
heimsmet í fjöltefli á Sel-
tjarnarnesi þegar hann
teflir við 550 manns á
rúmum sólarhring.
1978 Dr. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri skýrir frá
athugun Seðlabankans
á nýjum gjaldmiðli sem
verði hundrað sinnum
verðmeiri en núgildandi
króna.
1982 Jón Páll Sigmarsson setur
tvö Evrópumet á móti í
Sjónvarpinu.
„Þetta er fyrst og fremst líknar- og
menningarfélag,“ segir Margrét Bald-
ursdóttir um Kvenfélag Biskupstungna
sem var stofnað í apríl 1929. Það fyll-
ir því áttunda tuginn í ár og fagnar því
með ýmsum hætti. Margrét telur starf-
ið alla tíð hafa verið blómlegt. „Við
erum 53 í félaginu, þar af sex heið-
ursfélagar. Á tímabili var meðalaldur-
inn að hækka svolítið en undanfarin ár
hafa ungu konurnar verið að skila sér.
Svona félag sem er alltaf lifandi, þró-
ast í takt við tíðarandann en við gleym-
um því ekki að alltaf er þörf fyrir fé-
lagsskap sem styður við góð málefni.“
Talið berst að upphafinu. „Félag-
ið var stofnað mest fyrir forgöngu
Önnu Eggertsdóttur í Laugarási og
hún var formaður fyrstu árin. Stofn-
félagarnir voru tuttugu. Á tíu ára af-
mælinu var tekið saman yfirlit af frú
Sigurlaugu Erlendsdóttur, prestsfrú á
Torfastöðum, sem var formaður í 23 ár.
Þar stendur: „Tilgangurinn var fyrst
og fremst sá að konurnar kynntust
betur, hittust oftar og ræddu sameig-
inleg áhugamál, að láta hvert gott mál
í sveitinni til sín taka og veita því það
lið sem við megnuðum.“ Lög félagsins
hafa staðist ótrúlega vel tímans tönn.
Í þeim segir að hvern fund skuli hefja
með söng eða upplestri og því hefur
verið við haldið,“ lýsir Margrét.
Stuðningur við Sjúkrahús Suður-
lands, skólana í sveitinni og félags-
heimilið Aratungu er meðal þess sem
Margrét telur upp af verkefnum kven-
félagsins. Einnig veitingasala sem í
seinni tíð einskorðast við erfisdrykkj-
ur. Námskeið hafa verið haldin í hinum
ýmsu greinum og áratuga hefð er
fyrir skemmtiferðum, meðal annars
á kvennafrídaginn 19. júní. Ein utan-
landsferð er líka í baksýnisspeglinum.
„Við fórum til Búdapest 2006,“ rifjar
Margrét upp. „Gáfum út uppskrifta-
bók sem heitir Tungnaréttir og er seld
í Bjarnabúð og víðar. Allur ágóði af söl-
unni fer í ferðasjóð. Svo hafa fjáröflun-
arleiðir verið ýmsar, til dæmis köku-
basar á sumrin og jólamarkaður.“
Margrét er í stjórn kvenfélagsins.
Hún býr á Króki í Biskupstungum en
er frá Kirkjuferju í Ölfusi. „Ég flutti
hingað 1977 og gekk í kvenfélagið
1984. Hef sem sagt verið í því í 25 ár og
er ekki á förum!“ segir hún glaðlega.
Spurð hvað það hafi gefið henni svarar
hún: „Það hefur gefið mér mjög mikið.
Til dæmis hef ég kynnst fólkinu í sveit-
inni mun betur en ella. Það sem stend-
ur upp úr er þó að hafa getað tekið þátt
í að styrkja fólk sem hefur lent í erf-
iðleikum eða áföllum. Þá hef ég verið
hvað stoltust af því að vera kvenfélags-
kona.“ gun@frettabladid.is
KVENFÉLAG BISKUPSTUNGNA: ER ÁTTATÍU ÁRA
Þróast í takt við tíðarandann
KVENFÉLAGSKONA Í 25 ÁR Margrét Baldursdóttir á Króki. MYND/FANNEY ÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR
Um 90 ung-
menni lögðu undir
sig ganga fram-
an við skrifstof-
ur menntamála-
ráðuneytisins þenn-
an dag árið 1970.
Þau voru að lýsa
stuðningi sínum
við námslaunakröf-
ur íslenskra náms-
manna erlendis en
ellefu þeirra höfðu
nokkrum dögum
fyrr ráðist inn í
sendiráð Íslands í
Stokkhólmi til að mótmæla bágum kjörum.
Unga fólkið í menntamálaráðuneytinu var úr
nokkrum framhaldsskólum og sat sem fastast á
göngum þannig
að starfsfólk
komst ekki milli
herbergja og þeir
sem áttu erindi í
ráðuneytið kom-
ust ekki inn.
Ekkert var að
gert fyrst í stað en
þar kom að lög-
reglan bar fólk
út úr húsinu eftir
að hafa beðið
það að fara með
góðu. Urðu þá
miklar stimping-
ar og voru sex piltar og ein stúlka flutt í fanga-
geymslu en var sleppt eftir stutta viðdvöl. Þrír
piltar og ein stúlka þurftu á Slysavarðstofuna.
ÞETTA GERÐIST: 24. APRÍL 1970
Umsátur í menntamálaráðuneyti
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu, hlýhug og styrk vegna andláts og
útfarar ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Margrétar Ögmundsdóttur
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun.
Guðrún Jónsdóttir Oddur Þórðarson
Jóna Jónsdóttir Pétur Eiríksson
Guðlaugur G. Jónsson Sigríður I. Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Steingrímur Ólason fisksali,
sem gerði garðinn frægan í
Fiskbúðinni við Sundlauga-
veg um árabil, er kominn
þangað aftur. Hann mætir til
starfa snemma á morgnana
eins og hann var vanur og
opnar búðina klukkan níu.
Verslunin hefur síðustu ár
verið rekin undir merkjum
Fiskisögu en nú hefur Stein-
grímur keypt hana og á ör-
ugglega eftir að bæta geð
viðskiptavina sinna bæði
með ferskum fiski og brönd-
urum.
Kominn á sitt
gamla horn
MÆTTUR TIL LEIKS Fisksalinn góðkunni, Steingrímur, rogast með
risahlýra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFMÆLI
JÓN ÍSBERG,
fyrrverandi
sýslumaður,
er 85 ára.
RÓBERT
TRAUSTI
ÁRNASON,
fyrrverandi
forsetaritari,
er 58 ára.
FRIÐRIK
KARLSSON
gítarleikari er
49 ára.
BÁRA
GRÍMSDÓTT-
IR tónskáld
er 49 ára.
Forvarnir er besta leiðin, ráðstefna um
forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á
börnum fer fram í Háskólanum í Reykja-
vík dagana 19. til 20. maí.
Hugmyndin með ráðstefnunni er að sýna
fram á mikilvægi þess að einstaklingar
sem hafa orðið fyrir ofbeldi leiti sér hjálp-
ar og mikilvægi þess að fagfólk sé vel upp-
lýst um hvernig best er að hjálpa hverjum
einstakling fyrir sig.
Fjöldi fræðimanna flytur fyrirlestra á
ráðstefnunni. Þeirra á meðal verður David
Burton, MSW, Ph.D, sem fjallar um rann-
sóknir og samanburð á meðferðarúrræð-
um fyrir unga gerendur, en sá hópur sem
fer ört vaxandi í kynferðisbrotum eru ung-
menni sem gera sig sek um kynferðislega
misnotkun.
Þá fjallar Linn Getz læknir um hvaða
áhrif áföll í æsku geta haft á heilsuna
síðar. „Áföll í æsku geta haft mjög alvar-
legar afleiðingar í för með sér á bæði lík-
amlega og andlega heilsu, síðar á lífsleið-
inni. Því þarf að tryggja að öll börn fái ör-
uggt uppeldi. Þá myndum við spara mikla
fjármuni í öllu heilbrigðiskerfinu,“ segir
Linn. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna á
vefsíðunni www.blattafram.is.
Alvarleg áhrif áfalla í æsku
GILDI FORVARNA Linn telur að tryggja verði öruggt
uppeldi barna. Áföll í æsku geti haft alvarleg áföll
síðar meir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR