Fréttablaðið - 24.04.2009, Page 16
16 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
Í liðinni viku var hringt í mig og ég beðinn að mæta í myndatöku fyrir þann góða
vef www.sammala.is þar sem fólk úr öllum
áttum lýsir yfir stuðningi við að Ísland
sæki um aðild að Evrópusambandinu.
Myndina átti að nota í auglýsingar fyrir
málstaðinn. Í Fréttablaðinu sl. mánudag
birtist myndin síðan ásamt mynd af Bene-
dikt Jóhannessyni í heilsíðuauglýsingu með
fyrirsögninni „Við erum sammála“.
Benedikt hafði í vikunni áður birt þunga-
vigtargrein í Morgunblaðinu og í kjölfarið
mætt í Silfur Egils þar sem hann á báðum
stöðum reifaði rökin fyrir því að sækja strax um aðild.
Grein hans og sjónvarpsviðtal vöktu mikla athygli og
fengu margan manninn til að hugsa málið betur. Sama
dag og Morgunblaðsgreinin birtist bættust yfir 400
nöfn á www.sammala.is.
En daginn sem við stóðum hlið við hlið á heilsíðu
í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni „Við erum sam-
mála“ birti Benedikt hins vegar nýja grein, nú á vef-
síðu sinni www.heimur.is, þar sem hann reifaði hin
miklu viðbrögð við Morgunblaðsgrein sinni, eink-
um þau sem hann hafði fengið frá flokksbundnum
sjálfstæðismönnum. Það vakti því nokkra furðu að
höfundur skyldi ljúka netpistlinum á því að fullvissa
fólk um að hann myndi ekki breyta út af þeirri venju
sinni að setja X við D í þingkosningunum á morg-
un. En sem kunnugt er telur Sjálfstæðisflokkurinn
„hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusam-
bandsins“.
Semsagt: Þrátt fyrir allan sinn kröft-
uga málflutning um nauðsyn þess að
Ísland sæki um aðild að ESB ætlar Bene-
dikt Jóhannesson að kjósa gegn honum.
Hann ætlar að nota atkvæði sitt gegn
eigin sannfæringu. Hann ætlar að taka
rótgróna flokkshlýðni fram yfir sjálf-
stæða hugsun. Hér er komið skólabókar-
dæmi um það hvers vegna það gengur svo
hægt að breyta hlutum á Íslandi. Þrátt
fyrir að menn tali hraustlega úr göml-
um hjólförum er lítil von til að þeir fáist
upp úr þeim. Íslensk stjórnmálaumræða
skiptir í raun litlu sem engu máli. Íslendingar virð-
ast láta ætterni fremur en málefni ráða þegar í kjör-
klefann kemur og láta sig hafa það aftur og aftur að
kjósa flokkinn sem þeir eru í hjarta sér ósammála,
aðeins vegna þess að þeir hafa alltaf kosið hann.
Það er hárrétt sem stendur í áðurnefndri auglýs-
ingu: Við Benedikt erum „sammála“ um að hags-
munum Íslands sé best borgið innan Evrópusam-
bandsins. En lengra nær það því miður ekki. Þegar
á reynir, á sjálfan kosningadaginn, verðum við
Benedikt alls ekki sammála. Annar kýs framtíðina,
hinn fortíðina.
Af öllu því góða fólki sem hefur lýst sig sammála
okkur í Evrópumálunum vona ég að Benedikt verði
sá eini sem ætlar að kjósa þvert á skoðanir sínar.
Höfundur er rithöfundur.
SPOTTIÐ
skipta um dekk hjá Max1
Umfelgun og ný dekk á góðu verði
Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu
stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði.
Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Skoðaðu www.max1.is
Sparaðu, láttu
Ný sumardekk
Dekkjaskipti
Ekki alveg sammála
HALLGRÍMUR HELGASON
Fái skynsemin að ráða og Íslendingar velji frekar
Fjörðinn en Urðarsel er ekki þar með sagt að vanda-
málin séu að baki.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Þ
að voru falleg sólarlögin í Urðarseli. Svo mælti Bera
í Sjálfstæðu fólki, er Bjartur var að flosna upp frá
Sumarhúsum. Og Bjartur valdi frekar að freista þess
að draga fram lífið þar uppi á heiði en að fara í Fjörðinn,
eins og skynsemin boðaði.
Íslendingar standa nú frammi fyrir hliðstæðu vali.
Annar valkosturinn er þessi: að láta „bjartskt“, skynsemi sneytt
stolt og eðlislæga einangrunarhyggju eyjarskeggjans hafa yfir-
höndina og reyna að láta eins og íslenzka krónan sé enn þá not-
hæf mynt, þótt það kosti að stórdragi úr utanríkisviðskiptum,
hér verði haftabúskapur varanlegur, vextir haldist háir, fyrir-
tæki hafi ekki aðgang að lánsfé og neyðist því ýmist til að hætta
starfsemi eða flytja úr landi. Það myndi fjöldinn allur af fólki
líka gera, ekki sízt það sérhæfðasta og menntaðasta. Eftir stæði
einangrað samfélag sem byggði afkomu sína á hálfgerðum sjálfs-
þurftarbúskap með tilheyrandi rýrnun lífskjara.
Hinn valkosturinn er þessi: að sækja um aðild að félagsskap
annarra Evrópuþjóða samkvæmt þeim leikreglum sem þær hafa
komið sér upp og ber nú nafnið Evrópusambandið. Strax með
ákvörðun um að setja stefnuna á aðildarumsókn gæfu Íslendingar
skýr skilaboð til umheimsins um að þeir hygðust ekki láta hina
eðlislægu einangrunarhyggju eyjarskeggjans hafa yfirhöndina,
heldur sýndu þeir metnað til að eiga samleið með næstu grann-
þjóðum sínum og öðrum þjóðum álfunnar í að finna leiðir út úr
kreppunni. Því að finna þær leiðir er viðfangsefni sem á tímum
hnattvæðingar verður ekki leyst með því að hvert og eitt þjóðríki
reyni að loka sig af í þeirri trú að þannig geti þau einangrað sig
frá verstu áhrifum kreppunnar. Heldur einmitt hið gagnstæða;
þjóðir heims, og þá sérstaklega þær sem sameinast hafa um hinn
sameiginlega innri markað Evrópu, verða að taka saman höndum
um vænlegustu leiðirnar út úr kreppunni.
Fái skynsemin að ráða og Íslendingar velji frekar Fjörðinn en
Urðarsel er ekki þar með sagt að vandamálin séu að baki. Það
þarf líka að hafa fyrir hlutunum í Firðinum. En svo fremi sem
Íslendingar hafi þá trú á eigin getu til að gæta hagsmuna sinna
um leið og þeir fara að þeim leikreglum sem þjóðir Evrópu hafa
sameinast um, þá er litlu að kvíða.
„Bjartur og slíkir menn eru þeir frjálsbornu íslendingar sem
íslenskt sjálfstæði og íslenskt þjóðerni bygðist á í fortíðinni og
mun byggjast á í nútíð og framtíð,“ skrifar Nóbelsskáldið um
þessa þekktustu persónu sína. En því „bjartska“ sjálfstæði og
frelsi lýsir hann svo ógleymanlega í næstu setningu, þar sem
Rósa er spurð hvernig hún kunni við sig í heiðardalnum: „Það er
náttúrulega ósköp frjálst, sagði hún og saug uppí nefið.“ Kveðum
Bjart í kútinn. Kjósum evrópsk lífskjör, evrópska framtíð.
Þjóðin stendur frammi fyrir sögulegu vali.
Urðarsel eða
Fjörðurinn
AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR
Netbólan
Stjórnmálamenn margir hverjir ætla
seint að læra inn á Netið og er ekki
örgrannt um að manni finnist stund-
um sem þeir haldi að Netið sé bara
bóla sem springi brátt. Í það minnsta
ætla þeir seint að læra að maður setur
ekki upp heimasíðu rétt á meðan
maður er í prófkjöri eða kosningum
og uppfærir síðan ekki meira. „Það er
margt skemmtilegt við starf stjórn-
málamannsins. Eitt af því er að standa
í kosningabaráttu, maður hittir mikið
af fólki af öllum stærðum og gerðum.
Síðustu daga hef ég gengið
í hús í borginni og fært
þeim sem ég hitti rauða
rós með góðri kveðju frá
okkur í Samfylkingunni.“
Svo heilsar Steinunn
Valdís Óskarsdóttir
lesendum á síðu sinni. Kveðjan á í
raun vel við, en ef rýnt er í dagsetning-
una sést að færslan er skrifuð 26. apríl
2007. Þá voru einmitt líka kosningar.
Steinunn er ekki ein um þetta því í
nýjustu færslu á síðu sinni upplýsir
Árni Þór Sigurðsson að kjörstjórn
Vinstri grænna hafi kynnt tillögu um
framboðslista. Sú færsla er skrifuð á
gamlársdag 2006. Er ekki betra að
loka bara síðunni, fyrst þau eru nú
bæði komin með aðrar bloggsíður?
Í hvert sinn sem við rænum
Í umróti nútímans eru heiðarleiki
og réttsýni það sem kjósendur
virðast helst sækjast eftir. Því
ráku margir upp stór augu
þegar Sjálfstæðisflokkurinn
auglýsti fjölskyldudag í
Laugardalnum. Sérstakir
gestir voru ræningjarnir þrír úr Kardi-
mommubænum. „Við læðumst hægt
og hljótt á tám, í hvert sinn sem við
rænum.“ Er þetta boðskapur dagsins?
Étt ánn sjálfur
Ekki eru allir búnir að gera upp hug
sinn fyrir kosningar og kannski tekst
ekki öllum að finna atkvæði sínu far-
veg. Þeim skal bent á hreyfingu sem
hefur vaxið fiskur um hrygg undanfar-
ið. Um hana má lesa á heimasíðunni
edibaleballot.tao.ca en hún gengur
í sem fæstum orðum út á það að
kjósendur eigi að éta kjörseðilinn í
klefanum. Engu skipti hvað er kosið,
allt sé sama tóbakið og kjörseðill-
inn hafi ekkert gagn umfram þær
hitaeiningar sem í honum eru.
Verði ykkur að góðu.
kolbeinn@frettabladid.is