Fréttablaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 22
2 föstudagur 24. apríl núna ✽ einstaklega barngóð augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsir eftir au-pair á Facebook Þóra Sigurðardóttir rithöfund- ur auglýsir nú eftir au-pair stúlku á Facebook-síðu sinni. Þóra eign- aðist sitt fyrsta barn, lítinn dreng, síðasta sumar, en hún hefur verið búsett á Bahamaeyjum undan- farin ár þar sem eiginmaður henn- ar, sjónvarpskokkurinn víðfrægi, Völundur Snær, á og rekur eigin veitingastað við strönd- ina á Grand Bahamas. Í auglýsingunni segist Þóra þurfa að finna au-pair hið snar- asta. Hún leitar að áhugasamri og duglegri manneskju, en viðkom- andi mun fá greitt í erlendri mynt og allt borgað, svo ekki sé minnst á góða veðrið. Konur í kreppu Nokkrar hressar konur hafa tekið sig saman um að halda opið hús með spennandi tilboðum í kreppunni. Boðið verður upp á axlanudd, tarot- og sígaunalest- ur, litun og plokkun á frábæru verði. Tarot-spil, saltlampar og steinar verða meðal annars til sölu. Emami-kjóllinn vinsæli verður á sér- stöku tilboðsverði á staðnum. Ekki missa af skemmtilegri stund á opnu húsi á sunnudaginn í Miðgarði í Grafarvogi, milli klukkan 13 og 18. GRÆN Drew Barrymore mætti í sæ- grænum kjól eftir Elle Saab í Leon- ard H. Goldenson-leikhúsið í síðustu viku. Kjóllinn þótti fara einstaklega vel við föla húð leikkonunnar, sem skart- aði grænum augnskugga og rauð- bleikum varalit. É g er komin átta mánuði á leið og á að eiga í lok maí,“ segir Regína Ósk Óskarsdóttir söng- kona sem á von á sínu öðru barni en fyrir á Regína dóttur sem er að verða sjö ára. „Við vitum kynið. Þetta er önnur stelpa,“ segir Reg- ína og spenningurinn í röddinni leynir sér ekki. Eiginmaður Reg- ínu er söngvarinn Sigursveinn Þór Árnason en þetta er hans fyrsta barn. Regína segir Svenna Þór afar spenntan fyrir komu dótturinnar. „Pabbinn er voða- lega spenntur og ég líka. Það er bara eins og ég sé að gera þetta í fyrsta skiptið,“ segir hún hlæj- andi og bætir við að henni hafi liðið vel á meðgöngunni. „Meðgangan hefur gengið eins og í sögu enda hef ég verið dug- leg að hreyfa mig. Ég er búin að vera í jóga og sundi og var í rækt- inni í einkaþjálfun alveg fram að sjöunda mánuði,“ segir hún og bætir við að hreyfingin hafi gert henni rosalega gott. „Það stend- ur svo margt til boða fyrir ófrísk- ar konur í dag og ef maður hefur verið að hreyfa sig eitthvað fyrir er engin ástæða til að hætta því.“ Aðspurð hvort hún upplifi þessa meðgöngu öðruvísi en þá fyrri segir hún að sér líði betur núna. „Ég hreyfði mig ekkert á fyrri meðgöngunni enda þyngd- ist ég mikið. Nú passa ég mig betur og það gengur vel. Hreyf- ing skiptir líka svo miklu máli fyrir andlegu líðanina og eins ef þú ætlar að komast aftur í form.“ Regína segir nánast allt tilbú- ið fyrir komu barnsins svo núna bíður hún spennt á milli þess sem hún vinnur og ræktar sál og líkama. „Þetta verður skemmtilegt sumar og þar sem það hefur verið svolítið mikið að gera hjá mér síð- ustu árin ætla ég bara að njóta þess að vera til í góða veðrinu.“ - iáh Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona er komin átta mánuði á leið: Á VON Á ANNARRI STELPU þetta HELST HJÖRDÍS RUT SIGURJÓNSDÓTTIR RITSTJÓRI Ég ætla að kjósa á laugardaginn og eyða tíma með syni mínum, fara í sund, húsdýra- garðinn eða gera eitthvað annað spennandi sem við mæðginin höfum gaman af. Á laugardagskvöldið verður svo flakkað á milli stöðva til þess að fylgjast með nýjustu tölum í kosningunum eins lengi og ég dugi en úthaldið fer eflaust eftir spennustiginu. helgin MÍN „Hún er yndisleg,“ segir Birta Björnsdóttir, fatahönnuður og eigandi Júniform, sem eignað- ist dóttur hinn 22. mars síðast- liðinn. Fyrir á Birta fjögurra ára son, Storm Björn Jónsson, sem hún segir standa sig vel í hlut- verki stóra bróður. Birta hefur hvergi slakað á í hönnuninni og sat meira að segja við saumavél- ina daginn sem hún átti. „Stund- um koma hugmyndirnar einmitt þegar þær eiga ekki að koma og hlaðast upp þar til ég bara verð að framkvæma þær,“ segir hún hlæjandi og bætir við að Júniform gangi afar vel. „Ég er alltaf að bíða eftir þess- um kreppuskelli en það er bara búið að vera brjálað að gera hjá okkur frá áramótum og við erum mjög þakklátar fyrir hvern góðan mánuð sem við fáum.“ Hún segir sumartískuna hjá Júníform litríka, pönkaða og rómantíska. „Sjálf ætla ég að vera í einhverju þægi- legu og brjóstagjafarvænu án þess þó að tapa alveg „lookinu“ fyrir Birta Björnsdóttir í Júníform: Eignaðist stúlku Hamingjusöm Birta Björnsdóttir eign- aðist dóttur í lok mars en fyrir á hún fjög- urra ára son. Hraust Regína hefur verið hraust á meðgöngunni og segir nánast allt tilbúið fyrir komu barnsins. Spenntur Regína segir eiginmann sinn, Sigursvein Þór Árnason söngvara, vera mjög spenntan fyrir komu dótturinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.