Fréttablaðið - 04.05.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
bylgjublaðiðMÁNUDAGUR 4. MAÍ 2009
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Ódýr ferðamátiVefsíðan husaskipti.is býð-ur upp á ókeypis íbúða- og sumarhúsaskipti innan-lands.
SÍÐA 12
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
LITIR í málningardósum eru ekki alltaf eins á litaspjöldum
og á vegg. Því ættu þeir sem huga að því að mála að fá pruf-
ur. Þannig er hægt að máta nokkra liti á þá veggi sem á að
fríska upp á.
„Segja má að hjónarúmið sé fyrsta mublan á heimilinu,“ segir Eygló þegar hún er beðin að lýsa uppá-haldshlut. „Dýnuna keypti maður-inn minn þegar hann var að flytja heim frá Bandaríkjunum. Það var ekki mikið annað sem hann kom með, fyrir utan tölvuna. En hann lagði á sig að bera saman gæði dýna í nokkrum búðum og var ægilega ánægður að koma meðþessa heim til að le j
Eygló segist þó alltaf hafa dreymt um rómantískt rúm með hvítri grind og hafa leitað að henni árangurslaust, meðal annars á húsagnasíðum á netinu. Allt í einu gerðist undrið.„Við bjuggum í Kópavoginum um tíma en prófuðum að flytja til Vestmannaeyja og leigðum þar íbúð með innbúi til að byrjSvo ák á
tæma okkar gamla. Sé ég þá ekki, á bak við fullt af dóti hjá honum, þessa fínu rúmgafla sem dóttir hans var hætt að nota. Flutninga-bíllinn var alveg að fara úr hlað-inu en ég gat haldið honum þar til búið var að ná sambandi við dótt-urina. Hún seldi okkur grindiná mjög san j
Leitaði gafla á netinu en fann þá í skúr nágranna
Rúmið hennar Eyglóar Harðardóttur alþingismanns á sína sögu enda er það í hvað mestu eftirlæti af
innanstokksmunum heimilisins. Þó sefur hún sjaldan í því eftir að hún komst á þing.
Eygló Harðardóttir með dæturnar Snæfríði Unni og Hrafnhildi Ósk Sigurðardætur.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Síðustu dagarnir
MÁNUDAGUR
4. maí 2009 — 105. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
2
3
VIÐSKIPTI Finnski símarisinn Nokia
mun markaðssetja íslenskan gítar-
stilli á alþjóðavísu. Stillirinn heitir
Tunerific og er hugbúnaðarlausn
sem gerir notendum kleift að stilla
gítar með hjálp farsíma.
Tunerific varð til úr meistara-
verkefni Guðmundar Freys Jóns-
sonar í tölvunarfræði, í samstarfi
við leiðbeinanda hans, Jóhann P.
Malmquist prófessor við Háskóla
Íslands. Stillirinn er þróaður
fyrir Nokia-síma og verður innan
skamms settur á markað á alþjóða-
vísu í nýrri verslun Nokia, OVI-
store. Verkefnið var verðlaunað
af Háskóla Íslands og Jóhann og
Guðmundur Freyr hafa unnið í um
tvö ár að viðskiptaáætlun og mark-
aðssetningu sprotafyrirtækis sem
byggir á hugmyndinni.
Guðmundur segir að þróunar-
vinnan hafi hlotið styrki frá Rann-
ís og Nýsköpunarmiðstöðinni.
„Nokia er með um fimmtíu pró-
sent markaðshlutdeild svo mögu-
leikarnir eru miklir.“ Stillirinn
virkar á langflestar tegundir far-
síma og þarf engan sérstakan vél-
búnað, segir Guðmundur, en í dag
verður hægt að nálgast forritið á
vefsvæði Nova og hlaða því beint
niður í símann. - shá
Meistaranemi í tölvunarfræði hefur hannað nýstárlegan hugbúnað fyrir farsíma:
Nokia selur íslenskan gítarstilli
EYGLÓ HARÐARDÓTTIR
Fann draumarúmgafl í
bílskúr nágrannans
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
BYLGJUBLAÐIÐ
Afþreying, unaðsreitir
og ólíkur ferðamáti
Sérblað Bylgjunnar um ferðir og útivist
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HERDÍS ÞORVALDSDÓTTIR
Kynntist yndislegum
börnum í Úganda
Tíu daga ævintýraför til perlu Afríku
FÓLK 22
Merkileg
uppgötvun
Hákon Hákonarson
læknir hefur fundið
tengsl milli erfða-
fræðilegra þátta
og einhverfu.
TÍMAMÓT 12
Óvænt
yfirlýsing
Söngkonan og
Íslandsvinurinn Pink
segist vera tvíkyn-
hneigð.
FÓLK 16
VÆTUSAMT Í dag verða suðvest-
an 5-13 m/s á suðurhluta landins
en hægari austlæg átt á norður-
hlutanum. Rigning eða skúrir um
mest allt land. Hiti 5-11 stig.
VEÐUR 4
4 8
9
8
6
HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæslan á höfuðborgar-
svæðinu glímir við alvarlega undirmönnun.
Heimilislæknar þurfa að sinna mun fleiri
sjúklingum en talið er viðunandi á Norður-
löndunum sem og vestanhafs. Sparnaðar-
aðgerðir vegna efnahagshrunsins munu auka
á vandann en lítið svigrúm er talið til niður-
skurðar.
Heimilislæknar á höfuðborgarsvæðinu eru
um 120 talsins. Samkvæmt viðmiðum heil-
brigðisyfirvalda hér á landi er talið eðlilegt
að hver heimilislæknir sinni um 1.500 skjól-
stæðingum. Miðað við íbúatölur Hagstofu
Íslands, sem sýna að yfir 200 þúsund manns
búa í Reykjavík og nágrannabyggðum, er ljóst
að hver læknir þarf að sinna um 1.700 skjól-
stæðingum.
Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að þrátt
fyrir að vandi heilsugæslunnar hafi verið við-
fangsefni yfirvalda um árabil hafi lítill árang-
ur náðst. „Ástandið hefur versnað ár frá ári.“
Lúðvík segir að nauðsynlegt sé að setja
marga fyrirvara í samanburði á heilbrigð-
isþjónustu á milli landa en í Danmörku sé
almennt talið ótækt að hver heimilislæknir
sinni fleiri en 1.200 manns. Í Kanada, þar sem
Lúðvík hlaut læknismenntun sína, er yfirlýst
stefna yfirvalda að ekki færri en fimmtíu pró-
sent sérfræðinga í landinu séu heimilislækn-
ar. Það hlutfall hérlendis sé 25 til 30 prósent.
Hann segir erfitt að áætla hversu margir séu
án heimilislæknis en mat manna sé að þeir
séu á milli fimm til tíu þúsund. Lúðvík segir
að langur biðtími eftir lækni sé óviðunandi,
en margir hafa þurft að bregða á það ráð að
nýta kvöld- og helgarþjónustu bráðavakta.
Elínborg Bárðardóttir, formaður Félags
heimilislækna, segir að efnahagshrunið stór-
auki vandann. „Það eina sem við getum gert
til að skera niður er að taka af launum starfs-
fólks. Því er ekki hægt að krefjast eins mikils
vinnuframlags, sem þýðir aðeins eitt og það
er skert þjónusta. Það bætist svo við þann
vanda sem fyrir var.“
Nýlegar sparnaðaraðgerðir yfirstjórnar
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem
námu á fjórða hundrað milljónum og nást
aðallega með launalækkunum, eru taldar
skerða þjónustu um tíu prósent.
- shá
Rúmlega 1.700 sjúklingar
um hvern heimilislækni
Allt að tíu þúsund manns á höfuðborgarsvæðinu eru taldir vera án heimilislæknis. Glímt hefur verið við
vanda heilsugæslunnar um árabil en staðan hefur versnað jafnt og þétt, segir lækningaforstjóri.
ÞRJÚ ÁR Í RÖÐ Stjörnukonur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna í gær og hér hlaupa fyrirliðarnir Elísabet
Gunnarsdóttir og Kristín Jóhanna Clausen, sigurhringinn með bikarinn. Stjarnan vann tvöfalt annað árið í röð og Íslandsmeistara-
bikarinn þriðja árið í röð. Sjá íþróttir á síðu 19 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÍTALÍA, AP Fiat
Group SpA stað-
festi í gær að
fyrirtækið ætti
í viðræðum um
að yfirtaka Evr-
ópudeild GM
(Opel, Vaux-
hall) með það
fyrir augum að
stofna úr því
nýtt sameinað
fyrirtæki sem einnig gæti inni-
falið bandarísku bílasmiðjuna
Chrysler, sem Fiat hefur nú þegar
samið um að kaupa.
Samanlagt myndi þessi nýja
samsteypa hafa um 80 milljarða
evra í ársveltu, að því er segir í
tilkynningu frá Fiat í Torino.
Forstjóri Fiat, Sergio Marchi-
onne, mun í dag eiga fund í Berlín
með þýska viðskiptaráðherranum
Karl-Theodor zu Guttenberg um
hvernig tryggja megi áframhald-
andi rekstur Opel-verksmiðjanna
í Þýskalandi. - aa
Umbrot í bílaframleiðslu:
Fiat vill yfirtaka
GM í Evrópu
SERGIO
MARCHIONNE
Öll topplið-
in unnu
Það breyttist ekkert á
toppi ensku úrvals-
deildarinnar um
helgina.
ÍÞRÓTTIR 18
Markverðustu tíðindin
„Samfylkingin er stærsti flokkur
landsins og er í lykilstöðu í stjórn-
armyndunarviðræðum,“ skrifar
Baldur Þórhallsson.
Í DAG 10