Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 2
2 4. maí 2009 MÁNUDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Fari fólk í greiðslu-
verkfall og hætti að borga fast-
eignalán sín getur það fyrirgert
rétti,“ segir Hákon Stefánsson,
starfandi stjórnarformaður Credit-
info á Íslandi.
Hákon ræður fólki frá því að
fara í greiðsluverkfall. Vanskil geti
fylgt fólki um árabil og staða fólks
orðið mun verri en áður en til verk-
fallsins kom. „Þegar fólk vanefnir
skyldur sínar verða öll úrræði virk.
Menn lenda á vanskilaskrá og öllu
því sem því fylgir, jafnvel fyrir lífs-
tíð,“ segir hann og bendir á að kröf-
ur falli ekki sjálfkrafa niður. Kröfu-
hafar geti haldið þeim lifandi eins
lengi og þeim sýnist.
„Eina vitið er að greiða lán upp
þótt lánstíminn lengist um fleiri ár.
Þegar fólk hættir að borga marg-
faldast vandinn á stuttum tíma,
jafnvel nokkrum mánuðum þegar
vextir bætast við. Líklega tekur það
um tvö ár að tvöfalda vandann,“
segir hann og bætir við að regl-
um samkvæmt geti fjármálafyrir-
tæki yfirtekið eignir vanskilafólks
á átta til tólf mánuðum. Eftir það
verði gengið að öðrum eignum við-
komandi.
Hákon bendir á lög um greiðslu-
aðlögun sem samþykkt voru á
Alþingi í nýliðnum mánuði. Sam-
kvæmt þeim fyrirgerir fólk rétti
sínum til greiðsluaðlögunar greiði
það ekki kröfur sínar.
Þá sé ljóst að greiðendur íbúða-
lána, ef margir taka sig saman,
geta sett lánastofnanir í veru-
leg vandræði með því að hætta að
greiða lán sín. Þetta á sérstaklega
við um íbúðalánasjóð sem reiðir
sig algerlega á íbúðalánin og þarf
að standa undir skuldbindingum
sínum við erlenda lánveitendur, að
sögn Hákonar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra hvatti sömuleiðis til þess
í gær, að fólk færi ekki í greiðslu-
verkfall.
„Samtökin hafa ekki boðað til
slíkra aðgerða,“ segir Þórður B. Sig-
urðsson, formaður samtaka Hags-
munasamtaka heimilanna. Hann
segir fjölmarga, sem íhugi að grípa
til þeirra örþrifaráða að greiða
ekki af lánum sínum til lengri eða
skemmri tíma, hafa sett sig í sam-
band við samtökin. Ekki hefur verið
tekið saman hversu margir þeir eru
sem velta þessu fyrir sér.
„Ég vona sjálfur í lengstu lög að
fjöldahreyfing verði ekki til í kring-
um greiðsluverkfall,“ segir Þórður.
„Það yrði skelfilegt kæmi sú staða
upp. En það er skiljanlegt þegar
þrengt er að fólki að það grípi til
örþrifaráða.“ jonab@frettabladid.is
585-6500 audur.is
Allir velkomnir
Fræðslufundur um séreignarsparnað
í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn
4. maí kl. 17:15
Stattu vörð um viðbótarlífeyris-
sparnaðinn þinn
BRETLAND, AP Breska ríkisstjórn-
in fær ærlegan skammt af gagn-
rýni í pistli í
Lundúnablað-
inu Observer í
gær. Sem þætti
vart fréttnæmt
á þessum „síð-
ustu og verstu
tímum,“ nema
fyrir þær sakir
að höfundur
pistilsins er
sjálfur ráð-
herra í stjórninni.
Hazel Blears, sem er undir-
ráðherra sveitarstjórnarmála og
þingmaður Verkamannaflokks-
ins, kvartar í pistlinum yfir
því að stjórninni hafi „mistek-
ist hörmulega að koma boðskap
okkar til skila“.
Stjórnmálaskýrendur hafa
bent á að klaufaleg ummæli af
hálfu Gordon Brown setji hann
og Verkamannaflokkinn í erfiða
stöðu fyrir næstu þingkosningar,
sem verða að fara fram fyrir 3.
júní 2010. - aa
Stjórnmál í Bretlandi:
Ráðherra gagn-
rýnir stjórnina
SLYS Duncan McKnight, söngvara
bandarísku hljómsveitarinnar
The Virgin Tongues, er enn hald-
ið sofandi á gjörgæsludeild Land-
spítalans. Hann féll út um glugga
á fjórðu hæð húss við Skólavörðu-
stíg á föstudagsmorgun. Líðan
hans er stöðug en hann er þó ekki
höfuðkúpubrotinn eins og óttast
var í fyrstu.
Hljómsveitin átti að spila á
tónleikum á Sódómu á laugardag
ásamt Singapore Sling, en þegar
slysið varð var ákveðið að halda
styrktartónleika þar sem Singa-
pore Sling, Kid Twist og Kim-
ono gáfu vinnu sína. Tónleikarnir
voru vel sóttir. - sh
Söngvari The Virgin Tongues:
Enn haldið sof-
andi eftir fallið
Ragnar, verðurðu mjúkur í
dag?
„Nei, ætli ég reyni ekki að halda
mér edrú í tilefni dagsins.“
Ragnar Gunnarsson, gjarnan kenndur
við hljómsveitina Skriðjökla, opnar í dag
fiskbúðina Fiskibryggjuna í Höfðahverfi
við Gullinbrú í Reykjavík en þar verður
boðið upp á heitan mat í hádeginu og
á kvöldin. Hann sagði í Fréttablaðinu á
laugardag stefnt að því að útvega staðn-
um vínveitingaleyfi svo hann þyrfti ekki
að vera edrú alla daga.
Eitraði fyrir fimm
Lögregla í Vín greindi frá því í gær að
hún hefði handtekið mann grunaðan
um að hafa eitrað fyrir fimm manns
með því að byrla þeim görótta drykki
á bar í borginni. Að sögn Iris Seper,
talsmanns lögreglunnar, eru öll
fórnarlömbin fimm – þrír karlar og
tvær konur – í lífshættu.
AUSTURRÍKI
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri var handtekinn í Vestmanna-
eyjum í fyrrinótt í tengslum við
bruna við sorpeyðingarstöðina í
bænum. Maðurinn hefur játað að
hafa lagt eld að bílhræi, sem síðan
barst í nærliggjandi bílhræ og
annað rusl. Málið telst upplýst.
Engin hætta var á ferðum að
sögn lögreglu, en töluverð meng-
un varð þó af brunanum. Bálið
varð aldrei mikið en þó tók þrjár
klukkustundir að slökkva smá-
elda, sem kraumuðu víða. Tölu-
vert hefur verið um íkveikjur í
Vestmannaeyjum undanfarin ár.
Að sögn lögreglu er maðurinn ekki
talinn tengjast fleiri málum. - sh
Vestmannaeyjalögreglan handtekur brennuvarg sem kveikti í á ruslahaugi:
Játar að hafa brennt bílhræ
BRENNANDI BÍLAR Maðurinn var ölvað-
ur og sagðist við yfirheyrslur hafa langað
að prófa að kveikja í bíl.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
KÍNA, MEXÍKÓ, AP Fleiri en sjötíu
ferðamenn frá Mexíkó hafa verið
settir nauðugir í sóttkví á sjúkra-
húsum og hótelum í Kína, án til-
lits til þess hvort ferðamennirn-
ir greindust með svínaflensusmit
eður ei.
Þessar harkalegu aðgerðir kín-
verskra yfirvalda gegn útbreiðslu
svínaflensunnar þar í landi hafa
vakið hörð viðbrögð í Mexíkó.
„Í mörgum tilvikum höfum við
heyrt að fólk sé skikkað í sóttkví á
þeim grundvelli einum að það hafi
mexíkóskt vegabréf,“ tjáði Jorge
Guajardo, sendiherra Mexíkó í
Peking, AP-fréttastofunni.
Svo virðist sem hægt hafi á
útbreiðslu svínaflensunnar. Yfir-
völd í Mexíkó hafa endurskoðað
tölur yfir staðfestan fjölda þess
fólks sem látist hefur af sjúkdómn-
um; sá fjöldi er nú nítján manns í
Mexíkó og einn í Bandaríkjunum,
en þar var um að ræða ungt mex-
íkóskt barn sem nýkomið var frá
Mexíkó.
Staðfest smittilfelli voru í gær
orðin 903 alls; 506 í Mexíkó, 226
í Bandaríkjunum, 85 í Kanada,
fjörutíu á Spáni, átján í Bretlandi,
átta í Þýskalandi, fjögur á Nýja-
Sjálandi, tvö á Ítalíu, í Frakklandi,
Ísrael og Suður-Kóreu og eitt í
hverju þessara landa: Kólumbíu,
Kosta Ríka, Írlandi, Sviss, Aust-
urríki, Hong Kong, Danmörku og
Hollandi. - aa
Hægir á útbreiðslu svínaflensu í heiminum en fólk frá Mexíkó líður fyrir hana:
Harkalegar flensuvarnir í Kína
ÚTBREIÐSLUVARNIR Eldri borgarar í
Bogota, höfuðborg Kólumbíu, fá inflú-
ensusprautu í gær. Fyrsta svínaflensu-
tilfellið þar í landi greindist í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
HAZEL BLEARS
STJÓRNMÁL Stjórnarmyndunar-
viðræður Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna héldu áfram í
gær. Formenn og varaformenn
flokkanna hittust í Stjórnarráð-
inu og fóru meðal annars yfir
gang mála innan sérnefnda um
Evrópumál, stjórnskipunarmál
og ríkisfjármál.
Ekkert var gefið upp um vinn-
una að öðru leyti en því að hún
gengur vel að sögn Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra,
sem telur að nýr stjórnarsáttmáli
muni liggja fyrir um næstu helgi.
Ekkert er gefið upp um hugsan-
lega ráðherraskipan.
- shá
Stjórnarmyndunarviðræður:
Sáttmáli um
næstu helgi
INNHEIMTUAÐGERÐIR
Aðfarabeiðni
Fyrirtaka
Sýslumaður
Gjaldþrotaskiptabeiðni
Gjaldþrota úrskurður
Héraðsdómur
Innköllun
Kröfulýsing
Nauðungarsölubeiðni
Fyrsta fyrirtaka
Sýslumaður
Byrjun uppboðs
Sýslumaður
Framhaldssala
Fer fram á eigninni
Kröfulýsing
Fjarnám í eign
Árangurslaust
Fjarnám
Áritaðar stefnur /
dómar
Stefnur / Sáttir
Héraðsdómur Greiðsluáskorun
Innheimtubréf
FASTEIGNIR Í REYKJAVÍK Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir greiðslu-
verkfall örþrifaráð fólks í vanda. Samtökin hvorki hvetji né letji til aðgerða sem
þessara. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Vanskilin geta fylgt
fólki um alla framtíð
Greiðsluverkfall getur haft víðtæk áhrif bæði fyrir fólk og fjármálafyrirtæki.
Eina vitið að greiða lán upp þótt lánstíminn lengist um mörg ár. Örþrifaráð
þegar þrengt er að fólki, segir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.
ÍHUGUN „Margir eru búnir að skrá
sig á námskeið. Ég hef ekki tekið
fjöldann saman, en þeir eru tals-
vert margir,“ segir Ari Halldórs-
son, formaður Íslenska íhugunar-
félagsins, sem síðastliðin 34 ár
hefur kennt innhverfa íhugun (e.
transcendental meditation).
Hann neitar því ekki að spreng-
ing hafi orðið í umsóknum á nám-
skeið félagsins eftir kynningu
bandaríska leikstjórans David
Lynch hér á iðkuninni um helg-
ina.
Margir settu fyrir sig verðið,
hundrað þúsund krónur. Lynch
auglýsti krepputilboð sem á að
hvetja ákveðið hlutfall þjóðarinn-
ar til iðkunar. Það hljóðar nú upp
á tíu þúsund krónur. Ari bætir við
að námskeið á lága verðinu verði
kennt eins fljótt og auðið er, eða
þegar búið verði að stofna sjóð
sem greiði með hverjum nem-
anda. - jab
DAVID LYNCH Fjölmargir vilja nema inn-
hverfa íhugun eftir kynningu leikstjórans
David Lynch um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Sprenging í innhverfri íhugun:
Kennd bráðlega
á lága verðinu
SPURNING DAGSINS