Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 6

Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 6
6 4. maí 2009 MÁNUDAGUR LÖGREGLUMÁL Fjölskylda fimmtán ára stúlku sem varð fyrir hrotta- legri árás eldri stúlkna í Heið- mörk í síðustu viku mun ekki sætta sig við að dómskerfið fari vægum höndum um gerendurna. „Ef dómurinn verður eitthvert grín þá förum við í einkamál,“ segir systir hennar. Stúlkan var numin á brott af heimili sínu á miðvikudagskvöld og ekið með hana upp í Heið- mörk. Þar réðust þrjár sautján ára stúlkur hrottalega á hana. Fjórar aðrar stóðu hjá og höfðu sig lítt í frammi. Barsmíðunum lauk ekki fyrr en piltur sem var með í för skakkaði leikinn. Fram kom í Morgunblaðinu á laugardag að líklegt sé að stúlk- urnar sleppi með væga dóma, jafnvel frestun ákæru eða skil- orðsbundinn dóm. „Við sættum okkur ekki við neinn málamyndadóm,“ segir Hrönn Óskarsdóttir, systir stúlk- unnar. „Ef það yrði raunin væru það skýr skilaboð um að það sé fínt að vera ofbeldismaður á Íslandi. Við ætlum að gera allt sem við getum til að komi fólki í skilning um að svona eigi ekki að geta gerst hérna - að maður geti ekki rænt manneskju, geng- ið í skrokk á henni, hótað henni og beitt hana fjárkúgun og kom- ist síðan létt upp með það.“ Farið verði í einkamál við stúlkurnar til að sækja bætur ef dómurinn verður vægur. Hrönn segir að fram hafi komið við yfirheyrslur að árásin hafi verið nær algerlega tilefnis- laus. Systir hennar hafi ekki þekkt neina stúlknanna sem réð- ust á hana, aðeins kannast lítil- lega við eina þeirra sem stóð álengdar og horfði á. Árásin hafi verið framin að hennar undirlagi vegna meintra ummæla um ásta- líf hennar. Hrönn segir að farið hafi verið með systur hennar út úr bænum fyrir helgi til að leyfa henni að jafna sig. Hún byrjar í áfallameð- ferð nú í vikunni. Stúlkan er í tíunda bekk og er á leið í framhaldsskóla í haust. Hrönn segir hins vegar að hún treysti sér ekki til að taka loka- prófin á tilsettum tíma, og verið sé að vinna að því með skólayfir- völdum að finna lausn á málinu. Líklega fái hún að þreyta prófin seinna en aðrir. „Hún vildi helst flýja land þegar þetta kom upp,“ segir Hrönn og gagnrýnir það að stúlkurnar skuli ganga lausar á meðan það þurfi að fara með systur hennar logandi hrædda út úr bænum. „Þótt hún hafi sem betur fer sloppið án varanlegra líkamlegra meiðsla þá veldur þetta varanlegum skaða á sál- inni á henni.“ Árásin hefur verið kærð og stúlkunni skipaður réttargæslu- maður. stigur@frettabladid.is Ef dómur- inn verður eitthvert grín þá förum við í einkamál. HRÖNN ÓSKARS- DÓTTIR SYSTIR STÚLKUNNAR Ferðaskrifstofa Nánari upplýsingar og bókanir á www.plusferdir.is Sólarlottó á Marmaris Tyrklandi brottfarir 12. júní og 19. jú ní. Nýtt í sólarlottó: ferð fyrir allt að 6 manns í viku 72.900kr. *verð frá 97.900 tvær v ikur. Miðað við 6 saman í íbúð. Bókað á www.plusferd ir.is Skráðu þig í netklúbb Plúsferða - og þú kemur út í plús Besta verðið bókast fyrst! Í Tyrklandi er notuð tyrknesk líra sem gerir verðlag þar mjög hagstætt. NEPAL, AP Forsætisráðherra Nepals rak í gær yfir- mann hersins eftir að þeir deildu um inngöngu fyrrverandi skæruliða maóista – sem forsætisráð- herrann núverandi fór áður fyrir – í herinn. Brott- vikning yfirhershöfðingjans vakti hörð viðbrögð; næststærsti stjórnarflokkurinn sagði upp stjórnar- samstarfinu og boðað var til fjöldamótmæla. Deilan hefur aukið enn á spennuna milli stjórnar- innar – sem maóistar eru mesta þungavigtaraflið í – og hersins, sem þeir áttu árum saman í höggi við sem uppreisnarmenn. Deilan er mikil prófraun fyrir stjórnina, sem á auk þess í miklum vanda með að sjá þessari fátæku Himalajaþjóð fyrir nauðsynlegri grunnþjónustu. Kjarninn í deilu forsætisráðherrans, fyrrverandi skæruliðaforingjans Pushpa Kamal Dahal, og yfir- hershöfðingjans Rookmangud Katawal, beinist að þeirri vandasömu spurningu hvernig fyrrverandi uppreisnarmenn eru teknir inn í herinn, en um það var samið í friðarsamkomulagi sem Sameinuðu þjóðirnar áttu milligöngu um árið 2006. - aa Spenna í Nepal eftir að forsætisráðherrann rak æðsta yfirmann hersins: Ríkisstjórn maóista í vanda ÓLGA Stórnarandstæðingar kveikja í hjólbörðum og hrópa slagorð í Katmandú í gær. NORDICPHOTOS/AFP Sættum okkur ekki við málamyndadóm Stúlkan sem varð fyrir hrottafenginni árás í Heiðmörk í síðustu viku getur ekki þreytt lokapróf úr grunnskóla á tilsettum tíma. Til þess er hún í of miklu and- legu ójafnvægi. Fjölskyldan ætlar í einkamál fái árásarmennirnir vægan dóm. HEIÐMÖRK Stúlkunni var ekið upp í Heiðmörk þar sem gengið var í skrokk á henni. Þrjár stúlkur hafa viðurkennt að hafa haft sig mest í frammi. FRÉTTABLAÐIÐ / ÞÖK SVEITARSTJÓRNIR Minnihluti og meirihluti bæjarstjórnar Hvera- gerðis deila hart um sölu á fyrrver- andi bæjarskrifstofum í Hverahlíð 24 til Dvalar- og hjúkrunarheimil- isins Grundar. Grund hefur keypt Hverahlíð 24 fyrir rúmar 20 milljónir króna auk þess sem fimm ára þjónusta sem veitt verður á Dvalarheimilinu Ási þar í húsinu er metin á sex milljónir. Minnihluti A-listans segir að sam- kvæmt kaupréttarsamningi hafi söluverðið átt að vera rúmlega 32 milljónir. Þá samrýmist ekki jafn- ræðisreglu stjórnarskrár að kaupa óskilgreinda þjónustu til fimm ára. „Þessi endurteknu vinnubrögð sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu, að veita sérvöldum aðilum afslætti af eignum bæjarins, eru með öllu óásættanleg. Í ljósi ofangreinds áskilja bæjarfulltrúar A-listans sér allan rétt til að leita lögformlegra leiða til að vernda hagsmuni bæjar- búa,“ segir í bókun minnihlutans í bæjarstjórn. Fulltrúar meirihlutans segja að til verði fimm til sjö ný störf í Hvera- gerði. Samkomulagið spari bænum minnst 20 milljónir króna. „Hvað varðar aðdróttanir um lögleysu þá er rétt að benda bæjar- fulltrúanum á að enn sem komið er ríkir sem betur fer samningafrelsi á Íslandi og því er heimilt að semja um allt það sem ekki er andstætt lögum eða brot gegn almennu sið- ferði. Hvorugt er til staðar hér en ef bæjarfulltrúarnir gætu bent á laga- greinar sem verið er að brjóta væri það ágætt,“ segir í bókun meirihlut- ans. - gar Hart deilt um sölu fyrrverandi bæjarskrifstofa í Hveragerði undir dvalarheimili: Minnihlutinn boðar aðgerðir HVERAGERÐI Innrétta á Dvalarheim- ilið Ás í gömlu bæjarskrifstofunum. Söluverð hússins vekur harðar deilur í bæjarstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL. Ert þú félagi í golfklúbbi? JÁ 8,9% NEI 91,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Taka viðræður um stjórnar- myndun of langan tíma? Segðu skoðun þína á Vísir.is VIÐSKIPTI VMF (Verðbréfamark- aður Færeyja) hefur gert samn- ing við IFS Ráðgjöf um grein- ingu á hlutabréfum þeirra færeysku hlutafélaga sem skráð eru í Kauphöllina hér. Félögin eru bankarnir Føroya Banki og Eik Banki auk flug- félagsins Atlantic Airways og olíuleitarfélagsins Atlantic Petr- oleum. Tilgangur samningsins er að veita fjárfestum betra innsæi og þekkingu á fjárfestingu í félög- unum með óháðri og faglegri greiningu, að því er segir í til- kynningu. - jab IFS greinir færeysku félögin: Betra innsæi fyrir fjárfesta KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.