Fréttablaðið - 04.05.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 04.05.2009, Síða 8
8 4. maí 2009 MÁNUDAGUR Skeifan 11B • 108 Reykjavík Sími 511-3080 • isoft@isoft.is www.isoft.is »Grunnnámskeið 30 kennslustd. tölvunámskeið fyrir algjöra byrjendur 60+. Hæg yf irferð með reglulegum endurtekningum í umsjá þolinmóðra kennara. Ritvinnsla, internetið og tölvupóstur. • Hefst 6. maí. og lýkur 27. maí. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13-16. Verð kr. 20.500,- »Framhald 30 kennslustd. námskeið. Hentar þeim sem lokið hafa grunnnámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu. • Hefst 7. maí. og lýkur 28. maí. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-16. Verð kr. 20.500,- (kennslubók innifalin) »Stafrænar myndavélar 60+ Fyrir þá sem hafa lokið framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu. Þátttakendur nota eigin myndavél og læra notkun og stillingu hennar ásamt meðferð stafrænna ljósmynda í tölvu. M.a. færa myndir úr myndavél í tölvu, flokkun, einfaldar lagfæringar, prentun og sendingar mynda í tölvupósti. • Námskeið hefst 19. maí og lýkur 28. maí (Þrið & f im kl. 13-16) Lengd námskeiðs 18 kennslustd. Verð kr. 15.000,- (Kennsluhefti innifalið) NÝTT Tölvunámskeið fyrir eldriborgara 60+ KENNSLUFUNDUR FIMMTUDAGINN 7. MAÍ KL. 8:15 - 10:00. Opinn fyrirlestur um markaðsfræði ALÞJÓÐLEGT MBA NÁM Dr. Joe Pons, sem kennir markaðsfræði í MBA námi í Háskólanum í Reykjavík, flytur fyrir- lestur í markaðsfræði fyrir alla áhugasama um MBA nám. Besta leiðin til að kynnast MBA náminu í HR er að koma á kennslufund með kennara úr náminu og upplifa stemninguna sem myndast í tíma. KÍKTU Á OKKUR! Kennslufundurinn fer fram í Ofanleiti 2, stofu 336 á 3.hæð Mikilvægt er að skrá sig á mba@ru.is Dr. Joe Pons er stjórnarformaður Axioma Marketing Consultants, auk þess sem hann þjálfar stjórnendur víðsvegar um heiminn í ákvarðanatöku tengdri markaðsmálum. Dr. Pons kenndi markaðsfræði í 14 ár í MBA náminu við IESE háskólann í Barcelona sem í nýlegri úttekt tímaritsins The Economist var valið besta MBA nám í heimi. Prófessorar frá virtustu viðskiptaháskólum heims kenna í MBA náminu. Lögð er jöfn áhersla á framúrskarandi fagþekkingu, færni til að starfa í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi sem og að efla persónulega eiginleika nemenda til að sinna forystuhlutverki. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Á bls. 526 í símaskránni minni – sem að vísu er frá 2006 – eru gefnar upplýsingar um, að Neyt- endastofa sé til heimilis að Borgartúni 26 í Reykjavík og aðalsímanúmer stofnunarinn- ar sé 510 1100. Undir sömu aðal- skráningu þar sem m.a. eru í undirskráningu gefin upp fax- númer stofnunarinnar, númer netfanga, veffangs og brunatil- kynninga er sérstaklega greint frá símanúmeri talsmanns neyt- enda. Það símanúmer er sagt vera hið sama og aðalsímanúmer stofnunarinnar - 510 1100. Þetta leiddi til þess leiða misskilnings af minni hálfu, að yfirlýsingar talsmanns neytenda í Kastljósi sjónvarpsins fimmtudagskvöld- ið 30. maí sl. um hvernig auðvelt væri að afskrifa skuldir skuldara án þess að það kostaði nokkurn nokkuð væru gefnar með stuðn- ingi Neytendastofu. Nú hefur forstjóri þeirrar stofnunar haft samband við mig og mjög einarðlega borið það til baka. Mér þykir mjög leitt að hafa borið hann og hartnær fjörutíu aðra starfsmenn Neyt- endastofu röngum sökum. Hvorki stofnunin né starfsmenn hennar eiga nokkurn hlut að skoðunum talsmanns neytenda né tillög- um hans til ríkisstjórnarinnar í stjórnarmyndunarviðræðunum og bera þar enga ábyrgð. Ég bið þetta góða fólk innilega afsökunar um leið og ég fagna því að það á hér engan hlut að máli. Reykjavík 2. maí 2009. Sighvatur Björgvinsson. Sighvatur leiðréttir og sendir afsökunarbeiðni SÖFN Aðsókn á söfn hefur auk- ist mikið eftir að kreppan skall á. Aðsókn í Hafnarhúsið og á Kjar- valsstaði jókst til dæmis um 25 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. „Við fáum fleiri gesti og fólk dvelur lengur í húsunum, það skoðar meira og er áhugasamara,“ segir Soffía Karlsdóttir, deildar- stjóri markaðs- og kynningarmála hjá Listasafni Reykjavíkur, sem rekur söfnin. „Kannski er fólk farið að gefa sér meiri tíma til þess að rækta sjálft sig, við sjáum mikið af fjölskyldum koma og fólk situr á kaffistofunum og spjallar.“ segir Soffía. Ókeypis hefur verið inn á þessi söfn síðan 1. janúar 2008 og fjölgaði gestum gríðarlega eftir að sú varð raunin að sögn Soffíu en frekari fjölgun varð eftir efnahagshrunið. Sömu sögu hefur Bryndís Sverrisdóttir, sviðstjóri miðlunar- sviðs hjá Þjóðminjasafni Íslands, að segja en rúmlega þrjú þúsund sóttu safnið heim fyrstu þrjá mánuði árs- ins 2008 en þeir er rúmlega fimm þúsund í ár sem er næstum sjötíu prósenta fjölgun gesta. Bryndís segir það sína tilfinningu að áhugi á safninu hafi aukist eftir hrunið. „Þetta er kannski afturhvarf til for- tíðar, fólk leitar í gömlu gildin.“ Fólk leitar líka meira á bókasöfn- in. Að sögn Þorbjargar Karlsdótt- ur, verkefnastjóra hjá Borgarbóka- safni Reykjavíkur, hafa verið miklu fleiri gestir á söfnunum í vetur. „Við finnum fyrir því að fólk notar húsið miklu meira. Borgarbókasafnið er auðvitað miklu meira en bókasafn, hér eru blöð til að skoða og hing- að kemur fólk til að vinna verkefni. Þess má líka geta að barnadagskrá sem við bjóðum upp á sunnudög- um yfir vetrartímann hefur verið miklu betur sótt í vetur en áður.“ Aðsóknartölurnar tala sínu máli hér, gestir Borgarbókasafnsins fyrstu þrjá mánuði ársins voru rúmlega 150 þúsund árið 2008 en þrjátíu þúsund fleiri á sama tíma á þessu ári. Þessir gestir tóku sér fimmtíu þúsund fleiri bækur en á sama tíma í fyrra, útlánin voru rúmlega 300 þúsund í stað 250 þús- und í fyrra. sigridur@frettabladid.is Gestum listasafna fjölgar í kreppunni Mikil fjölgun hefur orðið á gestum safna síðan kreppan skall á. Fólk gefur sér meiri tíma til að skoða sig um. Útlán á bókum hafa einnig aukist til muna. Á KJARVALSSTÖÐUM Svo virðist sem kreppan hafi þau áhrif að fólk þyrpist á söfn og gefi sér jafnframt góðan tíma til að skoða og spjalla við starfsfólk. HEILBRIGÐISMÁL Fyrirhuguð sam- eining á bráðamóttökum Landspít- ala mun að öllum líkindum leiða til skertrar þjónustu við sjúklinga og stefna öryggi ákveðinna hópa þeirra í hættu. Svo segir í ályktun hjúkrunar- ráðs spítalans vegna fyrirhugaðr- ar sameiningar á bráðamóttökun- um. Stjórn hjúkrunarráðs lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þessara fyrirhuguðu breytinga og telur hætt við að þeim árangri sem náðst hefur í meðferð ákveð- inna hópa sjúklinga sé ógnað, verði þær að veruleika. Í ályktuninni segir enn frem- ur að hópar fagfólks á Landspít- ala hafi nýverið unnið áhættumat vegna fyrirhugaðra breytinga. Niðurstöður allra hópanna voru að við sameininguna skapist mik- ill kostnaður sem leggist á önnur svið spítalans en slysa og bráða- svið ef tryggja á öryggi og við- halda sömu þjónustu. Fjárhagsleg- ur ávinningur af sameiningunni liggur því ekki fyrir. Stjórn hjúkrunarráðs skorar á framkvæmdastjórn spítalans að endurskoða þessa ákvörðun. Ekki náðist í Huldu Gunnlaugs- dóttur forstjóra framkvæmda- stjórnar spítalans við vinnslu fréttarinnar. - jss BRÁÐAMÓTTAKA Hjúkrunarráð Land- spítalans mælir gegn sameiningu á bráðamóttökum hans. Hjúkrunarráð Landspítalans andvígt sameiningu á bráðamóttökum: Þjónusta skert og öryggi ógnað GESTIR JANÚAR TIL MARS 2008 2009 Aukning Hafnarhús: 23.614 29.464 25% Kjarvalsstaðir: 13.789 16.889 23% Þjóðminjasafnið: 3000 5000 67% Borgarbókasafnið: 153.927 186.587 21%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.