Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 20
4. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● bylgjublaðið
Hótel Örk í Hveragerði er tilval-
inn viðkomustaður fyrir þá sem
langar til að hvíla sig á stein-
steypunni og bregða sér út fyrir
borgarmörkin. Hvort sem áhugi
er á að slaka á eða stunda útivist
eða íþróttir er þar gott að vera.
„Við erum með okkar eigin sund-
laug í garðinum, tvo heita potta
og gufubað. Í kringum okkur er
allt fullt af frábærum gönguleið-
um. Svo erum við með níu holu
golfvöll á lóðinni og þeir sem
gista hjá okkur spila frítt á Gufu-
nesvelli,“ segir Sigurður Jón Sig-
urðsson, sölu- og markaðsstjóri á
Hótel Örk.
Á undanförnum árum hefur
Hótel Örk fengið algjöra yfir-
halningu, allt frá smæstu baðflís-
um til innréttinga, og er nú hót-
elið með sínum 85 herbergjum
allt hið glæsilegasta. „Við erum
með tilboð núna í maí til þess að
kynna breytingarnar, svo fólk
geti kynnst möguleikunum sem
hér eru. Það er alveg tilvalið að
koma hingað með alla fjölskyld-
una, það kostar ekki mikið og er
hæfilega stutt frá bænum.“
Tilboðið hljóðar upp á 5.950
krónur á manninn á virkum
dögum og 7.950 krónur um helg-
ar. Inni í verðinu er gisting og
þriggja rétta kvöldverður að
hætti hússins á veitingastað hót-
elsins, sem opinn er allt árið um
kring.
Hvort sem hugurinn stendur til afslöppunar, líkamsræktar eða útivistar kemur
Hótel Örk alltaf vel inn í myndina. MYND/ÚR SAFNI
Afslöppun og afþreying
KYNNING
Hermann Gunnarsson, betur
þekktur sem Hemmi Gunn, á
að baki fjölmargar ferðir með
útvarpsstöðinni Bylgjunni
bæði að vetri og sumri.
„Það hefur alltaf verið forgangs-
atriði hjá okkur á Bylgjunni að
sækja fólk á landsbyggðinni heim.
Við fórum af stað með Bylgjulest
fyrir margt löngu en í fyrra hétum
við Bylgjan á ferðalagi – björt og
brosandi og þannig verður það í
sumar,“ byrjar Hemmi frásögnina.
„Það sem stendur upp úr í öllum
þessum þvælingi er hinar góðu
viðtökur sem við fáum alls stað-
ar. Það er svo margt hæfileikafólk
úti á landi sem sjaldan heyrist í
og við höfum byggt okkar laugar-
dagsþætti upp á því að gefa heima-
mönnum tækifæri, jafnt þekktum
sem óþekktum.“
Fjölmiðlafólk í borginni er oft
bundið af sínu umhverfi, að mati
Hemma, og skilur ekki að það sé
líf utan höfuðborgarsvæðisins.
„Maður lærði það í Sumargleðinni
á sínum tíma af meisturum eins og
Ragga Bjarna, Bessa og Ómari að
bera virðingu fyrir landsbyggðar-
fólki,“ segir hann. „Allt of marg-
ir skemmtikraftar fara bara út á
land til að ná sér í peninga á auð-
veldan hátt.“
Hemmi byrjaði á Bylgjunni á
upphafsvikum hennar árið 1986 og
hefur verið þar síðan – með eðli-
legum brotthvörfum, eins og hann
orðar það. Því er margs að minn-
ast. Hann kveðst oft hafa farið á
undan Bylgjulestinni til að heim-
sækja nágrannabyggðir útsend-
ingarstaðarins. „Ef við ætluðum
að vera á Akureyri á laugardegi
þá fór ég á Siglufjörð, Ólafsfjörð
og Dalvík og tók stutt viðtöl sem
við spiluðum á föstudeginum til
að kynda upp,“ segir hann og rifj-
ar líka upp vetrarútsendingu frá
Ísafirði. „Ég var í fríi vestur í
Haukadal í Dýrafirði og það gerði
vitlaust veður þannig að ég komst
ekki til Ísafjarðar þar sem ég átti
að vera með þátt klukkan eitt. Það
var ekkert útlit fyrir flug svo ég
var búinn að afboða alla viðmæl-
endur en frétti um tíuleytið að
það ætti að fljúga og tæknimaður
væri á leið vestur. Ég fékk jarðýtu
til að ryðja veginn og var mættur
tíu mínútur í eitt. Þá kom sér vel
að Bylgjan er sterk á Ísafirði. Ég
byrjaði þáttinn á að auglýsa eftir
fólkinu sem ég hafði haft samband
við áður og það var að tínast í hús
til klukkan fjögur þannig að allir
fengu sitt.“
Fram undan er ferðasumar og
heimsóknir í alla landshluta. „Í
fyrra vorum við búin að skipu-
leggja allar helgar nema eina og þá
bjuggum við til okkar eigin útihá-
tíð á Flúðum. Fengum garðyrkju-
bændur í lið með okkur og 3-4000
manns mættu á staðinn í 25 stiga
hita. Þetta varð eiginlega hápunkt-
ur sumarsins.“
Stundum koma upp tæknivanda-
mál á ferðalögunum en Hemmi
segir þau bara gera lífið skemmti-
legra. „Aðalatriðið er að hitta allt
þetta frábæra fólk sem við rek-
umst á hvarvetna. Við reynum
líka að standa undir því slagorði
að vera björt og brosandi og hafi
einhvern tíma verið þörf á slíku
þá er það núna. Í atvinnuleysi og
óáran er alltaf hætta á að dofni
yfir þjóðarsálinni en við vinnum
að því að lyfta henni upp.“
- gun
Ávallt bjartur og brosandi
„Það sem stendur upp úr í öllum þessum þvælingi er hinar góðu viðtökur sem við fáum alls staðar,“ segir Hemmi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er engum blöðum um það að
fletta hversu mikilvæg reglu-
leg hreyfing er okkur öllum, sér-
staklega utan dyra. Sú hreyfing
þarf ekki alltaf að tengjast hoppi
og skoppi, keppni og klifri. Sjálf-
ur hef ég tekið þátt og reynt hinar
ýmsu íþróttagreinar, ekki síst
boltagreinarnar, sem vissulega
eru allar af hinu góða, en engin
þeirra kemst nærri golfíþróttinni
í dag hvað mig varðar.
Golfið hefur marga góða kosti. Að
ganga undir berum himni í heil-
næmu lofti, í góðum félagsskap í
fallegu umhverfi, þar sem leikið
og spilað er á algjörum jafnréttis-
grundvelli í afslöppuðu andrúms-
lofti (oftast), er nokkuð sem ekki
margar íþróttagreinar bjóða upp
á. Og þegar leik er lokið er sest
niður í golfskálanum, sötrað kaffi
og með því og spjallað um allt
milli himins og
jarðar.
Fyrir hinn
almenna
kylfing sem vill alvöru keppni eru
fjölmörg golfmót opin yfir sumar-
tímann. Þau mót eru tilvalin fyrir
gamla íþróttamenn til að fá útrás
fyrir keppnisandann.
Hreyfing úti í hreinu lofti léttir
ekki bara lund heldur léttir einnig
á líkamanum. Golfið er nefnilega
tilvalin leið fyrir þá sem þurfa
og vilja missa kíló. Einn hringur
í golfi tekur milli fjórar og fimm
klukkustundir og má reikna með
að gangan sé á bilinu fimm til
sjö kílómetrar. Haldi kylfing-
urinn sig frá óhollustunni og
drekki vatn og borði banana á
meðan á hring stendur og leiki
um það bil þrisvar sinnum í
viku, má reikna með því að
kílóin falli af eitt af öðru
yfir sumartímann.
Golf er gulli betra!
Heimir Karlsson.
Hreyfing í hreinu lofti
og góðum félagsskap
Heimir Karlsson
Frábært tækifæri fyrir alla ölskylduna
l að skipuleggja sumarið!
Íþró a- og sýningarhöllinni
í Laugardal 8.-10. maí 2009
Framkvæmd: Samstarfsaðilar:
Pú löt, æfi ngasvæði
(driving range) og krakkagolf
Gol lúbbar landsins kynna sig
Golff erðir og golfvellir
Atvinnukylfi ngar leiðbeina
leikmönnum og lengra komnum
Ferðamálasamtök og markaðsstofur
landshlutanna kynna ferðaþjónustu
á sínu svæði
Vesturland • Ves irðir • Norðurland
Austurland • Suðurland • Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Matreiðslumaður ársins 8. maí
Delicato vínþjónn ársins 8. maí
Matreiðslumeistari Norðurlanda 9. maí
Landshlutakeppnin Íslenskt eldhús 10. maí
Kynntu þér ölbrey a dagskrá
www.ferdalogogfristundir.is
Hvað ætlar þú
að gera í sumar?
PO
RT
hönnun
Verð aðgöngumiða
Almennir ges r: Kr. 750
Námsmenn, e irlaunaþegar og öryrkjar: Kr. 500
Frí fyrir börn yngri en 14 ára í fylgd með fullorðnum
Sýningar mi
Föstudagur 8.maí 16.30 - 19.00
Laugardagur 9. maí 11.00 - 18.00
Sunnudagur 10. maí 11.00 - 17.00