Fréttablaðið - 04.05.2009, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2009 9bylgjublaðið ● fréttablaðið ●
Ævintýrið 1939 nefnist sumarsýn-
ing Gunnarsstofnunar á Skriðu-
klaustri sem var opnuð 1. maí. Hún
er sett upp í tilefni af byggingu
hins einstæða húss Gunnars Gunn-
arssonar skálds og þar er fjallað í
máli og myndum um það ævintýri
er hátt í hundrað manns unnu sex
daga vikunnar frá vori og fram að
jólum við að reisa það.
Búið er að vinna líkan sem sýnir
herragarðinn í heild sinni eins og
hann átti að verða með öllum úti-
húsum. Grunnflötur þeirra bygg-
inga sem aldrei risu er yfir 2.000
fermetrar, sem sýnir stórhug
skáldsins.
Teikningar eru sýndar af íbúð-
arhúsi sem Gunnar og Jóhann
Kristjánsson gerðu að íbúðarhúsi
áður en góðvinur Gunnars, þýski
arkitektinn Fritz Höger, bauðst til
að teikna herragarðinn. Þá er fjall-
að um sögusögnina um að sami
arkitekt sé að húsinu og Arnar-
hreiðri Hitlers.
Opið er á Skriðuklaustri alla
daga frá klukkan 12 til 17 þennan
mánuð og 1. júní lengist opnunar-
tíminn í 10 til 18. - gun
Herragarðurinn í heild
Skriðuklaustur hefur yfir sér höfðingjasvip. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tilvalið er að skella sér í hestaferð og
skoða í leiðinni ýmsar náttúruperlur.
Hestaleiga og útreiðartúrar eru
meðal þess sem boðið er upp á að
Steinsholti í Gnúpverjahreppi í Ár-
nessýslu.
Í átta daga hestaferð í Land-
mannalaugar sem hefst og endar
í Reykjavík gefst fólki kostur á að
skoða margar helstu náttúruperlur
Suðurlands; Gullfoss, Geysi, Þjórs-
árdal, Háafoss, Gjána, Heklu og að
sjálfsögðu Landmannalaugar sjálf-
ar. Ferðin er þó aðeins fyrir vant
reiðfólk. Brottfarardagar eru 26.
júní, 6. júlí, 18. júlí og 14. ágúst.
Einnig er boðið upp á tveggja og
þriggja tíma hestaferðir frá Steins-
holti og í dagsferðum er um marg-
ar leiðir að velja.
Á eftir útreiðartúrum er hægt
að setjast inn og nýta sér þær veit-
ingar sem í boði eru. Einnig eru
heitir pottar og gisting á bænum.
Frekari upplýsingar eru á www.
steinsholt.is. - gun
Ferðast um á
fjórum fótum
Sigling er góð leið til að njóta feg-
urðar íslensku fjarðanna. Fjarða-
ferðir bjóða siglingar á milli Nes-
kaupstaðar og Mjóafjarðar. Þeir
sem hafa tímann fyrir sér ættu að
sigla til Mjóafjarðar á föstudegi og
eyða helginni í friðsældinni og feg-
urðinni þar. Útsýnið á siglingaleið-
inni þykir ægifagurt.
Í Mjóafirði er bændagisting í
boði, bæði í Sólbrekku og tveimur
heilsársbústöðum, og þar er opið
allt árið um kring.
Í Neskaupstað er líka nóg að
skoða og njóta. Í kringum bæinn
eru margar skemmtilegar göngu-
leiðir, í bænum er góð sundlaug,
nokkrir veitingastaðir og nokkur
söfn, svo sem náttúrugripasafn,
sjóminjasafn og safn Tryggva Ól-
afssonar. - hhs
Siglingar um
ægifagra firði
Smábátahöfnin í Neskaupstað. Útsýnið
á leiðinni á milli Neskaupstaðar og
Mjóafjarðar er ægifagurt.