Fréttablaðið - 04.05.2009, Side 30

Fréttablaðið - 04.05.2009, Side 30
 4. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR14 ● fréttablaðið ● bylgjublaðið Á ferð um landið eru sjoppur víðs vegar vinsælir viðkomu- staðir og oftar en ekki nauð- synlegir. Við fengum nokkra reynda poppara til að segja okkur aðeins frá uppáhalds sjoppunum sínum en þegar túrað er um landið og spilað á sveitaböllum er nauðsynlegt að næra sig og safna kröftum á leiðinni. Popparasjoppur á landsbyggðinni BIRGITTA HAUKDAL „Mín uppá- haldssjoppa er Staðarskáli í Hrútafirði. Kjötsúpan þar er frábær en í Staðarskála er hægt að fá heimatilbúinn sveitamat eins og gúllas, kjöt- súpu og fleira sem er ekkert endilega í öðrum sjoppum á land- inu. Fyrir ári síðan var sjoppan gerð upp og henni breytt og hafði ég þá smá áhyggjur af að hún myndi missa sjarmann en kjöt- súpan er enn til staðar og ég mun halda áfram að stoppa þar þó svo að búið sé að breyta henni.“ MAGNI ÁSGEIRSSON „Það er nú af mörgu að taka, sérstaklega þar sem ég keyri um það bil þúsund kílómetra á viku. Uppáhaldssjoppan mín var Staðarskáli en er það ekki lengur. Eftir breytingarnar hvarf svolítið sjarminn og er þetta orðin „enn ein“ bensínstöðin. En annars er og hefur Söluskáli KHB á Egilsstöðum alltaf verið ein af mínum uppáhalds sjoppum. Þegar ég var í menntaskóla á Eiðum fórum við alltaf inn á Egilsstaði með rútu og héngum þar allan daginn, starfsfólkinu til ákaflega lítillar ánægju. Þetta er allavega sú sjoppa sem ég hef eytt mestum tíma í. Síðan er alltaf gott að stoppa í Varmahlíð og starfsfólkið á Blönduósi er reyndar mjög skemmtilegt.“ JÓNSI Í SVÖRTUM FÖTUM „Ein sjoppa er öðrum betri að mínu mati og það er flugkaffið á Flugvell- inum á Akureyri. Það er svo rosa- lega gott flatbrauð með hangikjöti þar. Mín venja undanfarin fjögur ár er að kaupa alltaf tvær sneiðar af flatbrauði með hangikjöti og eina kókómjólk þegar ég er í flugstöð- inni á Akureyri. Þetta er sú sjoppa sem hefur orðið hvað reglubundnust hjá mér. Þetta er klárlega mín uppá- haldssjoppa.“ PÉTUR ÖRN GUÐMUNDSSON „Einhvers staðar nálægt Vík í Mýrdal er sjoppa sem er dálítið ein á báti. Því miður man ég ekki hvað hún heitir né hvar hún er nákvæmlega en þar fékk ég svo fínar heimaprjónaðar lopahúf- ur fyrir nokkrum árum. Húfurnar hafa nýst mér vel og hafa bjargað heyrn minni og heila. Síðan fékk ég afbragðsgóðar veitingar og svala- drykki. Eitthvert bílaverkstæði er þarna rétt hjá en hins vegar er alveg stolið úr mér hvað sjoppan heitir! Hún er ekki inni í neinum bæ heldur stendur bara ein og sér á einhvers konar krossgötum, kannski mig hafi bara dreymt þetta á leiðinni? En ef ég á að nefna aðrar sjoppur þá kunni ég nú alltaf vel við Brú í Hrútafirði en svo stoppa ég oft í Borgarfirði. Þó að Hyrnan sé stór og mikil fer ég yfirleitt í þessa minni þar sem hún minnir meira á æskudagana. Það er alltaf voða gott að fá sér kaffi og frostpinna þar, þó ekki endilega í þeirri röð.“ GUNNAR ÓLASON „Staðarskáli er uppáhalds sjoppan mín. Hann er án- ingarstað- ur poppara sem ferð- ast á rútum og ef hann væri ekki til værum við löngu dauðir. Hamborgararnir þar eru búnir að ala af sér kynslóð popp- ara. Alltaf er stoppað í Staðar- skála. Breytingarnar á honum eru að mínu mati bara til hins betra. Aðgengið er betra og snyrtilegra þó svo að sá gamli sé alltaf góður í minningunni. Ég hef nú í seinni tíð farið þarna sjaldnar í gegn en ef ég er á ferðinni um Hrútafjörð- inn stoppa ég alltaf þarna. Síðan er alltaf gaman að stoppa í Víkur- skála í Vík í Mýrdal en þar fæ ég mér alltaf krembrauð og kók. Veit- ingavalið fylgir svolítið þeim stað sem stoppað er á, eitthvað eitt er betra þarna en annars staðar. Allt hefur þetta sinn sjarma.“ Hamborgarar eru sígilt sjoppufæði á löngum og strembnum ferðum um landið. Mörgum þykir óhugsandi að ferð- ast án þess að hafa með sér iPod, leikjatölvur, myndavélar eða far- síma. Ýmsir kostir fylgja því að hafa slík tæki við hönd, en einn helsti ókosturinn er sá að þeim fylgir oft fjöldi aukahluta, eins og hleðslutæki. Philips hefur séð við því með framleiðslu á hleðslutæki með innbyggðri rafhlöðu, Philips Power2Charge, sem hentar í ferða- lög og hefur hlotið góðar viðtök- ur. Það hleður jafnt síma, iPod og önnur 5V tæki, þar sem því fylgja sex ólík milli- stykki. Því þarf ekki að halda utan um fjölda hleðslu- tækja á ferða- lagi. Rafhlaðan endist í allt að fimmt- án tíma. Tækinu er stung- ið í samband við Power2Charge og við það hleður það af rafhlöð- unni í hleðslu- tæki. Sérstakt ljós sýnir hvort það er að hlaða sig. Prufu- takki og díóðu-ljós sýna hversu mikil hleðsla er á því. Tækið fæst í verslunum Handhægt og einfalt í notkun KYNNING Rúðuþurrkur NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico af rúðuþurrkum frá NÝ ÚTGÁFA bílaperur frá Quarts bílaperur NÝJAR allt að 80% meira ljós Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.