Fréttablaðið - 04.05.2009, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 04.05.2009, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 4. maí 2009 19 www.urvalutsyn.is Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Úrval-Útsýn – Lágmúla 4 – Reykjavík – Sími 585 4000 Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. F ít o n /S ÍA Það er afskaplega auðvelt að komast í gott frí á sólarströnd með fjölskylduna með því að skipta kostnaðinum í fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur á greiðslukort. Áratuga reynsla Úrvals-Útsýnar og þaulreyndir fararstjórar tryggja farþegum okkar ljúft og þægilegt frí á frábærum kjörum. Marmaris í Tyrklandi og Albufeira í Portúgal hafa laðað Íslendinga til sín sumar eftir sumar. „...og nú allir af stað með Úrval-Útsýn“. F ít o n /S ÍA Skiptu kostnaðinum í fjórar vaxtalausar og jafnar greiðslur á www.urvalutsyn.is. Miðað við að greitt sé með greiðslukorti eða bókað á netinu. Færslugjald leggst ofan á uppgefið verð, frá 2%. Fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur Við greiðum þér leið í sólina MARMARIS MARMARIS Grand Cettia Brottför 3. júlí Fallegt fjölskylduhótel með bæði herbergi og íbúðir. Allt innifalið til kl. 23 á kvöldin; máltíðir, innlendir drykkir með mat, drykkir að degi eða kvöldi og skemmtidagskrá. VERÐDÆMI 104.280 kr. á mann miðað við 2 með 2 börn í viku með öllu inniföldu. 2 fullorðnir í viku, allt innifalið, verð 122.440 Allt innifalið! Tyrkland F í t o n / S Í A 23. – 25. maí 15. – 17. maí Verð á mann í tvíbýli: 86.900 kr. 104.900 kr. Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Man. Utd. Arsenal Arsenal Stoke Verð á mann í tvíbýli: Boltinn er hjá okkur! Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með morgunverði og miði á leikinn. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með morgunverði og miði á leikinn. HANDBOLTI „Þetta er stór- kostlegt og miklu betra en maður getur ímynd- að sér,“ sagði Florent- ina Stanciu eftir fjórða Íslandsmeistaratitill henn- ar á fjórum árum. „Þetta voru ekki léttir leikir en við gerðum þá auð- veldari með því að mæta vel einbeittar og tilbúnar í þá alla,“ sagði Florentina. „Við misstum kannski sterka leikmenn en við misstum aldrei trúna á það að við værum með liðið til að fara alla leið og vinna titilinn. Það er sterk liðsheild hjá Stjörn- unni og við hjálpum hver ann- arri,“ sagði Florentina. „Stelpurnar í liðinu trúa á mig og ég gef þeim kannski meira sjálfstraust. Ég fæ líka mikið sjálfstraust við að spila með þeim,“ segir Florentina. En hvað með næsta tímabil? „Það eru áttatíu prósent líkur á því að ég verði áfram með Stjörnunni.“ - óój Florentina Stanciu Íslandsmeistari fjórða árið í röð: 80 prósent líkur á að ég verði áfram HANDBOLTI Stjarnan vann 28-26 sigur í þriðja úrslitaleiknum á Fram í gær og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna. Lokatölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum þar sem Stjarnan var með örugga forystu allan leikinn og Framliðið náði að bjarga andlitinu með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins. Stjörnukonur hafa heldur betur sýnt að þær kunna að vinna enda annað árið í röð sem liðið verð- ur tvöfaldur meistari. Þrátt fyrir áfall og miklar mannabreytingar þá er og verður Íslandsmeistara- bikarinn áfram í Garðabænum. Lokaúrslitaeinvígið í N1 deild kvenna varð í raun aldrei spenn- andi, eftir átta og sjö marka sigra í fyrstu tveimur leikjunum náði Stjörnuliðið öruggu forskoti í upp- hafi leiksins í gær og það var ljóst strax frá byrjun að Íslandsmeist- aratitillinn væri tryggður. Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunn- ar, er þar með búinn að gera bæði karla og kvennalið að Íslands- meisturum. „Þetta er búið að vera öruggt í allan vetur á móti þeim. Við unnum örugga sigra í öllum þrem- ur leikjum í deildinni og svo aftur í úrslitakeppninni. Einhvern veg- inn þá liggja þær vel fyrir okkur,” sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar en fagnaði hann þá þegar Fram komst í úrslitin? „Ég held að við hefðum unnið Hauka líka. Mesta afrekið var að vinna Val í þessum framlengda leik hérna í Mýrinni þar sem við misstum Florentinu útaf. Það var frábært afrek,“ sagði Atli. „Við erum bikarmeistarar, við erum deildarbikarmeistarar, við erum meistarar meistaranna og svo Íslandsmeistarar. Helming- urinn af þessu liði er í líka í ungl- ingaflokki sem varð líka Íslands- meistari þannig að þetta er búinn að vera frábært vetur,“ sagði Atli. Atli vann Íslandsmeistaratit- ilinn með syni sínum Arnóri á sínum tíma hjá KA og í gær vann hann titilinn með Þorgerði Önnu dóttur sinni. „Við gerðum okkur þetta mjög erfitt fyrir. Það tók okkur tvo og hálfan leik að átta okkur á því að við ætluðum að gera eitthvað í þessari keppni,“ sagði Einar Jóns- son, þjálfari Fram. „Það náðist ekki upp sú einbeit- ing og sá vilji sem þarf til að klára svona leiki eins og Stjarnan hefur. Þær eru ekki með betra lið en við, með allir virðingu fyrir þeim. Þær eiga heiður skilinn og ég óska þeim til hamingju með titilinn en ég er verulega ósáttur við annað sætið því mér finnst við hafa lið til þess að klára þetta,“ sagði Einar. Kristín Jóhanna Clausen, fyrir- liði Stjörnunnar og sambýliskona Einars var með skýringuna á hreinu. „Svona er þetta bara, ég kem heim með gullið og hann með silfrið. Þetta er bara vaninn og við förum ekkert að breyta því,“ sagði Kristín. ooj@frettabladid.is Stjarnan er Íslandsmeistari þriðja árið í röð eftir 3-0 sigur á Fram í úrslitunum: Búinn að vera frábær vetur BIKAR Á LOFT Elísabet Gunnarsdóttir og Kristín Jóhanna Clausen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÞJÁLFARINN Á LOFT Atli Hilmarsson var að sjálfsögðu tolleraður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.