Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 46

Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 46
22 4. maí 2009 MÁNUDAGUR Tónlistarmaðurinn, lagahöfundurinn og einn fremsti hljóðmaður þjóðarinnar, Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson, hefur í um hálft ár háð stranga baráttu við hvítblæði þar sem hann hefur lengst af dvalið á Landspítalanum. Vinir Steingríms hafa nú komið á fót fjársöfnun til handa Steingrími og fjölskyldu hans en vart þarf að taka fram hve þungur róður það getur verið að heyja slíka bar- áttu. „Við vildum leggja eitthvað af mörkum en ef allt gengur að óskum í þessari baráttu gæti hann vonandi farið í mergskipti til Svíþjóðar,“ segir Þór- unn Hjartardóttir myndlistarkona og ein þeirra sem stendur að baki fjársöfnun til handa Steingrími. Vinir Steingríms eru úr ýmsum áttum enda hefur Steingrímur komið víða við – verið í hljómsveitum eins og Langa Sela og skuggunum, Hringjum, Júpít- ers og mörgum fleirum. Auk þess hefur hann komið að hljóðsetningu og tónlist í okkar helstu bíómynd- um svo sem Brúðgumanum, Mýrinni, Gargandi snilld og Fálkum svo fátt eitt sé nefnt. „Það er ýmislegt á döfinni og til stendur að halda tónleika honum til styrktar. Okkur fannst nóg að hann hefði áhyggjur af heilsunni þótt ekki bættist við áhyggjur af því sem allir sem lenda í svona veik- indum þurfa að hafa áhyggjur af: peningum. Þetta er það minnsta sem við getum gert,“ segir Þór- unn en ef Steingrímur fer til Svíþjóðar yrði systir hans merggjafi. Reikningsnúmerið sem velunnarar Steingríms geta lagt framlag sitt inn á er 0513-14- 402093, kt. 080160-3139. - jma 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. samsull, 6. samtök, 8. besti árang- ur, 9. þakbrún, 11. fíngerð líkamshár, 12. plata, 14. dvaldist, 16. halló, 17. egna, 18. tunna, 20. 49, 21. eignar- fornafn. LÓÐRÉTT 1. höfuð, 3. kringum, 4. sætuefni, 5. arinn, 7. afsprengi, 10. sigti, 13. útsæði, 15. steintegund, 16. rámur, 19. ólæti. LAUSN LÁRÉTT: 2. gums, 6. aa, 8. met, 9. ufs, 11. ló, 12. skífa, 14. varst, 16. hæ, 17. æsa, 18. áma, 20. il, 21. sitt. LÓÐRÉTT: 1. haus, 3. um, 4. melassi, 5. stó, 7. afkvæmi, 10. sía, 13. fræ, 15. talk, 16. hás, 19. at. Veljum íslenskt GLÆNÝ LÍNUÝSA • FISKRÉTTIR Á GRILLIÐ SIGINN GRÁSLEPPA • SIGINN FISKUR GELLUR OG SALTFISKUR Leikkonan Herdís Þorvaldsdóttir er nýkomin heim úr tíu daga ævin- týraför til Úganda, sem oft hefur verið kölluð perla Afríku. Þangað fór hún ásamt barnabörnum sínum Benedikt og Sylgju Dögg Sigur- jónsbörnum og fjölskyldu hennar. „Ástæðan fyrir því að ég fór þarna út er að dótturdóttir mín [Sylgja] og hennar maður fóru þarna fyrir tólf árum á vegum ABC og voru að byggja þar skóla. Svo komu þau heim en voru alltaf óskaplega hrif- in af Afríku,“ segir Herdís. „Þau sögðu við mig: „Þú verður að koma og sjá skólann,“ og hættu ekki fyrr en þau drifu mig með.“ Í Úganda hittu þau fyrir systur Sylgju, Hörpu Fönn, sem sinnir þar þróunarstarfi á vegum ABC ásamt eiginmanni sínum Vigni A. Guð- mundssyni. „Þetta var allt orðið miklu stærra og fleiri börn í skól- anum en fyrir tólf árum,“ útskýrir Herdís. „Það var mjög ánægjulegt að sjá hvað börnin voru yndisleg og hvað þau áttu gott. Þarna fengu þau hádegismat, sem er óskapleg- ur munur.“ Auk þess að kynna sér þróunar- starfið sá Herdís upptök árinnar Nílar, „þar sem vatnið bókstaf- lega bullar upp úr jörðinni“, og fór í sunnudagsmessu þar sem prest- urinn þrumaði yfir þeim í klukku- tíma. „Maður þurfti að beygja sig til að komast inn og þarna voru trébekkir með engum bökum,“ segir hún og greinilegt að hún hefur notið dvalarinnar til hins ítr- asta. „Ef ég væri yngri myndi ég alveg örugglega fara í svona hjálp- arstarf,“ segir hún og útilokar ekki að snúa aftur til Úganda: „Maður skal aldrei segja aldrei.“ - fb Kynntist yndislegum börnum í Úganda EINN OKKAR FREMSTI HLJÓÐMAÐUR Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson hefur unnið við allar okkar helstu bíómyndir auk þess að hafa spilað með hljómsveitum eins og Langa Sela og skuggunum og Hringjum. HERDÍS Í ÚGANDA Herdís fyrir utan kirkj- una í bænum Lale að hlusta á tónlist sem var flutt tileinkuð henni. GLÖÐ BÖRN Herdís segir að börnin sem hún kynntist í Úganda hafi verið yndis- leg í alla staði. Heyr baráttu við hvítblæði „Já, þetta er loksins að verða að veruleika, eftir fjögurra ára bið,“ segir Logi Geirsson, silfurdrengur og leikmaður Lemgo í Þýskalandi. Hann hyggst ásamt félaga sínum úr íslenska landsliðinu, Björgvini Páli Gústavssyni, setja á markað hið margumrædda og víðfræga gel í sumar. Nánar tiltekið þann 1. júní. Gelinu hefur verið gefið nafnið The Silver, glöggir lesend- ur Fréttablaðsins ættu að vera vel meðvitaðir um til hvers það vísar; silfursins á Ólympíuleikunum í Peking. Logi hefur verið meira og minna meiddur þetta tímabil með Lemgo og því hefur honum gefist kærkomið tækifæri til að vinna að framleiðslu gelsins. „Þetta er bara svona, þegar ein hurðin lok- ast þá opnast einhver önnur,“ segir Logi. Gelið mun fást í tveim útgáf- um, önnur verður fyrir þá sem vilja hafa hárið stíft og fastmótað að hætti Loga og hin fyrir þá sem vilja hafa hárið aðeins lausara líkt og Björgvin Páll er orðinn lands- þekktur fyrir. Gelið verður selt á Netinu og mun heimasíða vör- unnar, thesilver.is, verða opnuð 1. júní. Þar að auki hafa Björgvin og Logi náð samkomulagi við verslan- ir 10/11 og Hagkaupa auk fremstu hágreiðslustofa landsins um að selja gelið. Logi þakkar félaga sínum Björg- vini það að senn hyllir undir lok þessa mikla ævintýris sem hófst árið 2005. Og markvörðurinn tekur að einhverju leyti undir það. „Ég er svona framkvæmdamaðurinn í fyrirtækinu en Logi hugsuðurinn. Saman myndum við þó hættulegt tvíeyki,“ útskýrir Björgvin sem hefur unnið baki brotnu undan- farna þrjá mánuði, nótt sem nýtan dag, við að koma þessu á legg. „Gelið er fyrir alla, bæði konur og karla, og við erum ekki í þessu til að verða ríkir heldur bara til að hafa gaman af þessu,“ segir Björgvin. Og að sjálfsögðu verður mikið húllumhæ í kringum markaðssetn- ingu gelsins. Blásið verður til mik- illar veislu í Smáralindinni í byrj- un júní þar sem hágreiðslustofur etja kappi í óhefðbundinni hár- greiðslukeppni, auglýsing verður frumsýnd í Sambíóunum 8. júní, á undan frumsýningu á myndinni Star Trek og að sjálfsögðu verður risa kynningarpartí að hætti Holly- wood með rauðum dregli og öllu til- heyrandi. Hvorki Logi né Björgvin vildu þó tjá sig í smáatriðum um þá samkomu, töldu þó rétt að árétta að þetta yrði ein af veislum ársins. freyrgigja@frettabladid.is LOGI OG BJÖRGVIN PÁLL: ÆTLA AÐ YFIRTAKA HÁRTÍSKU ÍSLENDINGA Silfurdrengir setja Silver- gel á markað í sumar „Ég er bara mjög stolt af honum og mér finnst hann standa sig rosalega vel. Hann er búinn að vera með þessa dellu frá ferm- ingaraldri. Ég ætla að vona að hann drífi sig í nám í sambandi við þetta.“ Ingibjörg Guðmundsdóttir, móðir Arnars Más Brynjarssonar sem keppir á Cannes- kvikmyndahátíðinni ásamt félögum sínum. Þeir eru nokkrir sem setið hafa við skriftir undanfarna mánuði og ætla sér að gera upp góðæristím- ann og hrunið á Íslandi í bókum. Einna forvitnilegust verður eflaust bók Ármanns Þorvaldssonar sem var forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander í London. Ármann komst reglulega í fréttirnar á góðæristímanum fyrir veglegar áramótaveisl- ur sínar í London þar sem skemmtikraftar á borð við söngvar- ann Tom Jones og hljómsveitina Duran Duran tróðu upp. Hann ætti því að hafa frá ýmsu að segja. Við skrif bókarinnar nýtur Ármann liðsinnis Jónasar Sigurgeirssonar sem starfaði við fjárfestingatengsl hjá Kaupþingi. Þeir félagar hafa þegar tryggt sér risasamning við breskt útgáfufyrirtæki sem sérhæfir sig í bókum tengdum viðskipta- lífinu. Bókin kemur út í Bretlandi með haustinu og ku vera skrifuð á léttum nótum eftir því sem það á við. Það skýrir kannski vinnuheiti hennar; „The Accidental Billionaires“. Tveir umtöluðustu blaðamenn Íslands, Gunnar Smári Egilsson og Mikael Torfason, hafa látið lítið fyrir sér fara á fjölmiðlamark- aði að undanförnu. En hafa þó ekki gefið fagið alveg frá sér. Þeir vinna nú að næsta blaði sem SÁÁ gefur út í tengsl- um við árlega álfasölu sína. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI GÓÐIR SAMAN Logi Geirsson og Björgvin Páll Gúst- afsson setja á markað gelið The Silver í sumar. Um er að ræða tvær gerðir, önnur er fyrir þá sem vilja hafa hárið í föstum skorðum, líkt og Logi, og hitt er fyrir hina sem vilja hafa hárið aðeins lausara.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.