Fréttablaðið - 04.05.2009, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er mánudagurinn 4. maí,
124. dagur ársins.
4.49 13.24 22.05
4.21 13.09 22.01
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.icelandexpress.is
Heimsborg
Nú höfum við flutt okkur yfir á Gatwick flugvöll (South Terminal).
Gatwick er þægilega staðsettur suður af London og þaðan fljúga
flugfélög á borð við easyJet, British Airways og US Airways til allra átta.
Einnig er stutt til Brighton sem er huggulegur og vinsæll strandbær.
Skelltu þér til London, hvort sem þú vilt versla, borða góðan mat, kíkja
á söfn eða bara sitja á kaffihúsi og virða fyrir þér fjölskrúðugt mannlíf!
Bókaðu núna á www.icelandexpress.is!
London kallar!
Það er skylda
að heimsækja Tate
Modern nýlistasafnið.
Þar eru alltaf fram-
sæknar og umtalaðar
sýningar í boði.
GATWICK EXPRESS
Frá
1. maí
2009
Það tekur aðeins 25 mín.
að skutlast niður í bæ
25 mín.
www.gatwickairport.com
Bókaðu
tengiflug!
Gatwick
Bandaríkin
Ísland
Mið-Ameríka
Karíbahafið Afríka
Asía
Evrópa
London
Alveg frá því ég var barn hefur köttur verið á heimilinu. Sé
kisi vel heppnað eintak er nærvera
hans notaleg, þátttakan í heimilis-
lífinu skemmtileg og ekki of uppá-
þrengjandi viðbót. Einkum hefur
mér þó sýnst mikilvægi kattarins
felast í því að á honum er hægt að
fá útrás fyrir knýjandi þörf fyrir
að dekra einhvern linnulaust, án
þess að sitja að lokum uppi með
harðsvíraða frekjudós. Á meðan
er hægt að beita börnin og mak-
ann hóflegum og hollum aga, því
bara forhert gæludýr hafa gott af
of miklu eftirlæti.
EFTIR hörmulegt fráfall síðustu
kisunnar á bænum, bálför, virðu-
lega útför og langan sorgartíma
var staða dekurdýrs auglýst laus
til umsóknar. Kom þá flærð heim-
ilisföðurins í ljós, því mánuðum
áður – á meðan ég sjálf var enn
með ekkasog yfir framliðna kett-
inum – hafði hann í leyni lagt drög
að nýjum heimilismeðlim. Áður en
við var litið var sá mættur á heim-
ilið, mjög móttækilegur fyrir öllu
uppsöfnuðu dekrinu. Ekki köttur í
þetta sinnið heldur þvert á móti.
HUNDUR hefur fáa eðliskosti sem
köttur býr yfir og er þannig hvorki
sjálfstæður né þóttafullur. Kemst
hvorki einn út að pissa né hlaupa
og elskar sjálfkrafa hvern þann
sem ræður yfir lifrarpylsu. Fljót-
lega kom í ljós að þótt umræddur
hundur hefði hlotið fyrirtaks þjálf-
un og brygðist snöfurlega við alls
kyns skipunum var hann engin
undantekning. Og mér sem þykir
einmitt fátt skemmtilegra en að
fóðra dýr og láta þau komast upp
með hvað sem er, var gerð ræki-
lega grein fyrir því að ólíkt góðum
ketti gengi hundspott fljótt á lagið
og tæki sér þá stöðu á heimilinu
sem hann kæmist upp með. Ef ég
léti eftir löngunum mínum til að
dekra kvikindið myndi hann fljótt
og vel endurraða sjálfum sér í stól
stjórnarformanns heimilisins. Yrði
sannkallaður frekjuhundur sem
liti á okkur hin sem þegna sína og
tæki að lokum yfir bæði sófann og
hjónarúmið.
ÞETTA þýðir í stuttu máli að í
stað þess að hafa fengið í hend-
urnar kræsilegt fórnarlamb ofdek-
urs þarf ég nú stanslaust að halda
aftur af mér. Hunsa djúpstæða
þörf til að reiða fram fyrir hund-
inn ótakmarkaðan harðfisk og
nautalundir með bernaise. Horfa
svellköld í biðjandi brún augun
og éta framan í hann án þess að
blikna. Svo tárumst við bæði yfir
óréttlæti heimsins.
Fjölskyldan fer
í hundana