Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 11

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 11
155 þess, að tryggja henni gott álit, ef ullin yrði vönduð að frágangi. Sá siður, er nú viðgengst sumstaðar, að taka ullina frá þeim bændum, er bezt þvo hana, og setja saman við þá, er verst er þvegin, verður til þess, að ekkert af vör- unni fær álit, og bændur missa alla löngun til vöru- vöndunar. Ef þvottastöðvar gætu komizt á fót, rjeðu þær bót á þessu meini. Sjálfsagt er það, að þvottastöðvarnar starfi undir eptir- liti, og að ull þeirra verði flokkuð. Flokkunin. Ekki leggja Ameríkumenn eins mikla áherzlu á það, að ullin sje vendilega flokkuð, sem hitt, að öll meðferð hennar, þvottur og þurkun, sje hið vandvirknislegasta í alla staði, allt frá því rúið er, til þess ullin er pökkuð. Sú flokkun, sem þeir álíta hagkvæmasta á allan hátt, er svo: í fyrsta flokk ber að setja alla hvita vorull, bæði langa og stutta, nema gölluð sje og hún því eigi að vera í öðrum flokki. í öðrum flokki öll gul vorull (vellótt og leirlituð), enn fremur hvít vorull, er kindin hefir dregið á eptir sjer, eða sem gras eða fræ er í, svo sem hagalagðar (upptín- ingur). í þriðja flokki öll mislit ull (grá, svört eða mórauð), og ber að leggja áherzlu á það, að þess sje stranglega gætt, að aðgreina mislita ull hið bezta frá hvítu ullinni, og eins verður að aðgreina vel algula uli frá henni. Alla haustull ber að hafa sjer í flokki, hversu góð og hvít sem hún kann að vera, og má aldrei blanda henni saman við vorullina. Önnur flokkun, er til mála gæti komið og sem einn mikils metandi ullarkaupmaður lagði fyrst til, er jeg átti tal við hann, var að flokka fyrsta flokkinn í tvennt,

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.