Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 42
186
að. Um saltfisk get eg síður sagt, hvort mikill markaður
er fyrir hann vestra. En þó er líklegt að mikið mætti
selja Bandaríkjamönnum, sem flyttu hann svo til suð-
lægari staða. Af vörum sem þið þarfnist, og fást beztar
hjá Ameríkumönnum, má nefna: járnvörur (landbúnaðar-
áhöld o. fl.) og ýmsar korntegundir, einkum hveiti. Skip-
in, sem með ullina færu, gætu flutt amerísku vörurnar
til baka.«
»Hvernig lízt þjer á að samgöngur milli íslands og
Kanada gefizt?«
»Sem stendur er ekki um aðrar leiðir til Kanada að
gera en til austurstrandarinnar, sunnarlega, og þangað
er svipuð leið og til Bandaríkjanna, og sömu vörur að
flytja frá báðum stöðunum. En nú skal eg segja þjer
frá fyrirtæki, sem verið er að framkvæma hjá okkur, og
eg álít að sje mikilsvert fyrir alla Norðurlandamenn, þar
á meðal fyrir íslendinga. Pað er járnbrautarlagning frá
Vestur-Kanada (Manitoba) norður að Hudsonsflóa. Eins
og þú veizt, gengur flói mikill inn í Ameríku, norðan-
verða, sem heitir Hudsonsflói (kenndur við Henry Hud-
son, þann sem fyrstur kom þangað til rannsókna), og
er miklu skemmra þangað til sjóar, úr beztu hveitilönd-
um Kanada, en austur að hafi. Enn fremur er sjóleiðin
styttri þaðan til Norður-Evrópu, en frá Queebec. Þegar
þessi járnbraut er fullgerð, getið þið, íslendingar, komizt
að beztum kjörum á vörum Kanadamanna með því að
sækja þær sjálfir til York við Hudsonsflóa. Með því móti
gætu sparast margir milliliðir og minna yrði kostað til
landflutnings; farmgjald ætti líka að verða langt um
lægra, beina leið, heldur en þegar varan fer fyrst til
Englands eða Danmerkur, og síðan til íslands.«
»Með hvaða vörum getum við helzt borgað ykkur,
Kanadamönnum? þurfið þið að kaupa saltfisk, síld, ull
eða þess háttar, sem við flytjum mest út?«
»Af ull er mikið framleitt í Kanada og lítið er hún
unnin þar, heldur mest seld til Bandaríkjanna. þessvegna