Skinfaxi - 01.04.1914, Side 9
SKINF AXI.
51
Sum árin fengu þau féð í stórdembum,
og svo koma hallærin á milli, þegar þau
hefðu ekkert handa á milli, nema ef eitt-
hvað væri geymt á vöxtum frá góðu ár-
unum. Sé því ekki annara úrræða að
leita til að bæta úr göllum fjórðungssam-
bandsins, með því að láta það standa, þá
finst, mér það einna glegst sönnun þess,
hvert vandræðafyrirkomulag það er.
VI.
Af öllu þessu, og íleiru, sannfærist eg
því betur um jjað, sem og hugsa mál-
ið meira, að skiftingin sé nauðsynleg. En
þá skal eg heldur ekki draga dul á þá
skoðun mína, að langheppilegast sé að fé-
lögin ráði sjálf sem mestu um það, hve stórt
hvert undirsamband er, ofan við eitthvert
ákveðið lágmark. Eg treysti þvi fyllilega,
að þá muni af sjálfu sér smámsaman
myndast sambönd, sem áþreifanleg reynsla
sýnir, að félögunum séu hentust til sam-
vinnu. Og þau sambönd hljóta að verða
varanlegri og gagnlegri en hin, sem mynd-
uð eru af handahófi eftir einhverjum á-
kveðnum landabréfslínum, jafnvel án nokk-
urs tillits til staðhátta og kringumstæða
í hinum einstöku héruðum. Og einnig
mega þeir meðhaldsmenn fjórðungssamb.
vel við una. Þeir halda því fram, að eigi
verði fundin önnur hentugri sambönd; en
ef svo er, þá mega þeir reiða sig á að
íljótt muni sækja í sama horfið, þegar fé-
lögin eru búin að reka sig á hina miklu
galla sem þeir segja vera á smásamböndun-
um, ef þá nokkurntíma verður breylt um.
Og þá er sama hvort sanib. er nefnt fjórð-
ungssamband eða héraðssamband. En eg
geri auðvitað ekki ráð fyrir að reyndin
yrði sú, og ætla eg nú í fám orðum að
lýsa því, hvernig sambandið í heild sinni
horíir við mér i þessum nýja búningi.
Verður það þá eitthvað á þessa leið: Ein-
stök félög, starfandi saman i sniádeildum,
viðsvegar um landið, auðvitað misjafnlega
stórum og misjafnlega öflugum eftir stað-
niiiiiiir *t
=r',y. ...n' "*7~— -r- ———ii[
SKINFAXI
— mánaðarrit U. M. F í. — kemur út í Reykjavík
og kostar 2 kr. árgangurinn, erlendis 3 kr.
RITSTJÓRI:
Jónns Jónsson frá Hrifla.
Skólavöröustig 35. Simi 418.
Afgreiöslumaður:
Bjarni Þ. Magnússon Skólavöröustíg 6 B.
Ritneínd:
Agást Jósefsson, Guðbrondur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
háttum. Aðalstörfin hugsa eg mér: sam-
fundi, fyrirlestrastarfsemi, íþróttakenslu, i~
þróttamót o. tl. — Smádeildirnar svo í
einu allsherjarsamhandi, og senda allar
fulltrúa á sameiginlegt þing, þriðja hvert
ár eins og nú.
Gætu þeir setið þar á nokkurskonar
sjónarhól, og litið þaðan yfir félagsheildina,
rætt um þau mál, er hana varða mestu,
og gert þær ráðstafanir er nauðsynlegar
væru til að halda samræmi og slefnufestu
í störfum hennar. Einnig gætu þeir þar
tekið á móti ráðleggingum og ýmiskonar
áhrifum bver frá öðrum, og borið svo hver
inn á sitt sambandssvæði.
Að lokum úthlutuðu þeir þar hinu sam-
eiginlega fé t. d. til undirsamb. eftir með-
limafjölda eða öðru, og kysu svo stjórn.
(3 menn; ekki 1) til að hafa á höndum með-
ferð hinna sameiginlegu mála þeirra milli
þinga, og sem væri málsvari heildarinnar
út á við. Svo væri Skinfaxi sjálfkjörið
málgagn allra þeirra er eitthvað hafa um
félagsmál að segja, og ekki nægði að fram
væri borið á héraðsfundum og sambands-
þingum, og yrði sambandsstjóri með bjálp
hans að stuðla til að deildirnar gætu búið
málin sem best undir sambandsþing. Ann-
ars á hann að geta verið einn öllugasti
þátturinn í hugsjónasambandi félaganna,.
ef rétt er áhaldið.
Ritað í febr. 1914.
Bjarni Ásgeirsson-