Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1914, Side 10

Skinfaxi - 01.08.1914, Side 10
108 SKINFAXl hafa þótt miklar lík.ur til, að Erlingur yrði aðstoðarmaður og eftirmaður föður síns og þá með tímanum aðalsundkennari landsins. Og þar sem maðurinn hafði sýnt ákveðna yfirburði og átti svo þýðingarmikið starf fyrir höndum var síst ástæða til að sjá eftir þessum styrk. Erlingur fór utan síð- astliðinn vetur og iðkaði sund fram á vor í hinum besta sundskóla í Lundúnum. Fann hann þar, og fékk tækifæri að æfa sig við, hina ágætustu meistara, bæði héð- an og úr álfunni og úr hinum enskumæl- andi löndum handan við höf. Þar var meðal annara sundgarpur Svía, sá sem steypt hefir sér 91 fet til sunds og komist lifandi af. Þóttist hann enn eiga nokkuð ólært. Heldur andaði kalt að Erlingi úr hópi Dana, sem hann komst í kynni við í félagi Norðurlandabúa. Situr úvalt fastur í höfði þeirra sá hugsunarháttur, sem ís- lendingar hafa raunar trúlega fylgt, að það sé árás á tign og veldi Danmerkur, ef Is- lendingar fara í önnur lönd en þangað til náms og menningarauka. Engir leituðu jafn ókurteislega og heimskulega frétta af landinu og Danir. Einn spurði Erling, hvort konur hér bæru ekki börnin í pokum á bakinu. Það er gamla sagan að blanda saman Grænlandi og Islandi, Eskimóum og íslendingum. Danskur herforingi, sem verið hafði við mælingar hér sýndi skugga- rnyndir af íslensku lífi. Var þar alt valið sem okkur mátti mest til minkunar verða, og þó Iogið í viðbót í frásögninni. Varð ræðumaður heldur skömmustulegur er Er- lingur siðar um kvöldið benti honum á sumar vitleysurnar. í London æfði Erlingur nú öll algeng- ustu suud: grúfusund, baksund, hliðsund og björgun og tók kennarapróf í þeim öll- um. Ennfremur dýfingar, skriðsund og vatnsleiki ýmsa, svo sem Water Polo. Það er knattleikur leikinn á sundi og mun Erlingur hafa í hyggju að stofna sérstak- an flokk til að æfa þann leik hér í Rvík. Til kapprauna á erlendum mótum, ef til kæmi, ráðlögðu kennarar Erlings honum helst langsund, eigi styttra en mílu enska, og spáðu vel fyrir. Og ekki er það alveg ómögulegt, að Erlingur geti unnið sér og landinu sóma á erlendum mótum með sundfimi sinni, þótt aðstaðan sé ill hér heima. En þó að það verði ekki.þáværi minstu spilt að hyggju þess er þetta ritar. Miklu meira væri vert um, að Erlingi end- ist líf og heilsa til að kenna íslendingum vel að synda, að útbreiða sundmentun inn í hvern fjörð og dal, uns öll þjóðin flýtur, ef á vatn væri kastað. Margir aðrir hafa unnið og munu vinna að því, en langmest áhrif hefir þó sundkennarinn við laugarnar í Reykjavík. Og þeir sem þekkja Erling vænta hins besta af honum í því sem öðru. Jóhann Markússon. IV. Svo var til ætlast, að eigi yrðu hér færð í letur fleiri afreksverk hr. J. M. en orðið var. En sökum þess að hann hefir ný- Iega eyðilagt tvo menn með herfilegu móti, þá þykir rétt að greina frá þeim atvikum. A útmánuðunum í vetur var allmjög tekið að sverfa að Grundarbóndanum; skorti hey, vistir og peninga. Sér hann að eigi má svo búið standa, bregður sér til Ieynivínsala eins (og það er talsvert af þeim í Grundarhverfinu) og hefir þaðan með sér allmiklar vínbirgðir. Þannig vopn- aður þykist Jóh. nú fær í flestan sjó. Ríð- ur hann upp í næstu bygð, og dreypir á bændur úr kútnum. Þar í sveit eru eldri menn lítt hneigðir að bindindi og þótti vænt um að fú sopann ókeypis og heim- fluttan og lofuðu mjög rausn og veglyndi Jóhanns. Á einum bæ þar hittir Jóhann mág sinn, gefur honum vín, og er hann sýnist mjög ósjálfbjarga orðinn, dregur filisteinn úr vasa sínum fullkomið ábyrgð- arskjal, að upphæð 12.000 kr., og skorti

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.