Skinfaxi - 01.10.1928, Síða 12
92
SKINFAXI
Iþróttanámsskeið.
Til eru menn sem hafa mjög orð á þvl aö ungmenna-
fél. vinnisl seint að sínum áhugamálum og að jafnvel
ungmennafélagshreyfingunni hafi hrakaö sfðustu árin.
Eg hefi ekki tfma til þess að rökræða þetta í löngu
máli, en eg þykist þess vis að ef vel væri athugað
þá myndi sannast, að oftast hafi verið haldið f horfinu
og að við f mörgu stöndum feti framar en þegar byrjað
var. Það tel eg ungmennafélögin hafa mest afrekað að
nokkurn byr hefir öll líkamsrækt hlotið meðal þjððarinn-
ar og má það hamingja heita að þing og núverandi
stjórn hefir sýnt áhuga fyrir málum þessum.
Aldrei hefir verið veitt jafnmikið fé til Iþrótta úr Sam-
bandssjóði, sem sfðastliðinn vetur.
Fé þessu var varið til námsskeiða vfðsvegar á land-
inu. Alls var veitt úr Sambandssjóði kr. 1600.
Þau námsskeið sem styrks nutu voru haldin f þess-
um sýslum: Vestur-Skaftafellssýslu, (kennari Jón Pálsson)
Árnessýslu, (kennari Sig. Greipsson) Eyjafjarðarsýslu,
(kennari Björn Jónsson) Skagafjarðarsýslu (kennari Stefán
Runólfsson) og Húnavatnssýslu. Fór því fram iþrótta-
kensla í 5 sýslum er nutu styrks frá U. M. F. í., auk
þess voru nemendur vfðar að en úr greindum sýsluni.
Alls voru nemendur 460 þar á meðal stúlkur. Hefir þessi
styrkur dreyfst víðsvegar og efalaust borið góðan ár-
angur. Að jafnaði var fyrrihluti vetrarins notaður til
fþróttanámsins og er það vænlegt, þvf vfðast hvar er þá
minstum störfum að sinna, en þá er vel farið ef tóm-
stundirnar eru notaðar til íþróttaiðkanna. Námsskeiðin
stóðu yfir í 2—4 vikur. Lengst starfaði námsskeið hjá
undirrituðum í 3 mán., er það sfst of langur tími, ef
þess er gætt að nemandinn á að fá einhverja þekkingu
og leikni f þeim greinum, sem iðkaðar eru.
Menn vita það að sjálfsögðu að það getur tekið lang-
an tírna að breyta urðum og melum f iðgræn tún; en