Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1929, Síða 2

Skinfaxi - 01.11.1929, Síða 2
98 SKINFAXI á Þingvöllum 1930. Eins og gefur að skilja, er fyrsta skilyrðið til þess að hátíðahöldin takist vel, og komi að tilætluðum notum, að islendingar fjölmenni til þeirra, og. taki þátt i þeim. Ungmennafjelagar ættu öðrum fremur að skilja tilgang hátíðahaldanna og fjölmenna til þeirra. Allir ungmennafjelagar, sem nokkur tök hafa á, eiga að mæta á Þingvölium næsta vor, og engan þeirra má vanta í skrúðgönguna. 2. íþróttif. Þær eru þess eðlis, að æskan hlýtur altaf að hafa þær með því fremsta á sinni stefnuskrá. Með tilliti til andlegs og líkamlegs atgjörfis hljóta ungmenni hverrar þjóðar að skipa sjer undir þann fána, sem dreginn-er að hún til eflingar andlegum og líkamlegum þroaka einstaklinga og þjóða. Ungmennafjelögin hafa skilið og skilja nytsemi íþrótta, og við treystum fjelagsskap vor- um til að fylkja sjer undir merki íþrótta, einhuga og óhikandi. Qert er ráð fyrir, að Iþróttasamband íslands hafi forgöngu íþrótta á Þingvöllum næsta vor. Enn fremur er gert ráð fyrir, að U.' M. F. í. gangist fyrir og stjórni bændaglímu, sem fari fram á hátíðinni. Við vonum ungmennafjelagar, að þið verðið við því búnir, að kallað verði til ykkar, og þið beðnir lið- veitslu við íþróttasýningar á Wngvöllum 1930. Vonum við að þið verðið jafnvel við bón beggja sambandanna, og látið ekkert utidir höfuð leggjast, sem miðar að því, að þið sjeuð sem best viðbúnir þegar kallað verður. Sjerstaklega viljum við brýna fyrir ungmennafjelögum, að leggja kapp á íslenska glímu. Það getur ekki talist vansalaust fytir þjóð vora, ef ísl. gliman skipar ekki öndvegis-sess íþróttanna 1930. Að forfallalausu verður sendur maður til fjelaganna seinnihluta vetrar til þess að kynna sjer ástand fþrótta meðal fjelaganna, og þá um ieið velja úr þá, sem hæfastir þykja til þátttöku í ijjróttum á Alþingishótlð- inni.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.