Skinfaxi - 01.11.1929, Qupperneq 4
100
SKINFAXÍ
5. Heimilisiðnaðarsýning.
Þvi miður, er ekki fyrirsjáanlegt að neitt ætli að
verða úr landssýningu eða heimilisiönaðarsýningu 1930.
Þó viljum við hvetja ungmennafjelaga að vera við því
búnir til siðustu stundar að til þeirra verði kallað um
hjálp sjerstaklega til sýningar á heimilisiðnaði. Einnig
viljum við geta þess að ef til vill verður útsala á
heimaunnum munum í Reykjavík á næsta sumri og væri
þá æskilegt að ungmennafjeiagar gætu aukið fjölbreytni
og kosti þeirrar útsölu með þátttöku sinni.
6. Framkoma íslendinga 1930.
Seint mun það verða of brýnt fyrir íslendingum að
vanda framkomu sína á mannamótum. Oft hefir legið
mikið við en aldrei meira en nú. Það er viðurkent að
gestsaugað sje glöggt og við getum verið viss um að
næsta vor verða gestaaugun mörg og að okkur verður
ekki hlíft við gagnrýni. Við berum fullt traust tii vor-
manna íslands og vitum að þeim er ijóst hver ábyrgð
fylgir því, að mæta á Þingvöllum á 1000 ára afmæli
Aiþingis. Samt viljum við minna þá á, að best tryggja
þeir framkomu sína með því, að fara hvergi út fyrir
þau takmörk, sem fjelagslög þeirra setja þeim, halda
vel skuidbindingu sína og hafa það hugfast að bera
allstaðar uppi hag og heiður þess fjelagsskapar sem
þeir hafa heigað krafta sína og traust, Verið Vormenn
íslands á Þingvöllum 1930, í þess orðs fylsta skiiningi,
og þá munuð þið verða þjóð ykkar og fjelagsskap tii
sóma. Engir á Þingvöll, sem ekki treysta sjer til þess.
?. Erlendir gestir.
Öæta verða lsiendingar þess, að koma einarðlega
fram gegn erlendum gestum. Sá undirlægjuháttur sem
sem enn ber nokkuð á hjá íslendingum gagnvart út-
lendlngum, má hvergi eiga sjer stað 1930. Einurð og
kurteisi eiga að vera skýrt markaðar i framkomu hvers
einasta íslendings 1930. Prá og með þvl ári á enginn