Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1929, Page 10

Skinfaxi - 01.11.1929, Page 10
106 SKINPAXI henni því eðlilega starsýnt á það sem tnest er áberandi og mestum vandræðum veldur. Og hún byrjar með tþví, að taka saman höndum við þær stefnur sem vinna á móti vandræða ástandinu og reyna að hnekkja þvi. Þegar Ungmennafjelagsskapurinn hóf göngu slna hjer á landi, voru mjög áberandi vandræði sem hiutust af því, hvað landsmenn fóru gálauslega með áfenga drykki. Þau vandræði gátu ekki farið fram hjá þeim unglingum sem gerðust brautryðjendur ungmennafjelags* skaparins. Og þeir tóku bindindisheit upp i iög fjelags- skaparins til þess að vinna á móti vandræðunum sem áfengisnotkunin olli og sem tákn þess anda, sem fjelagsskapurinn ætlaði að vinna f. Æskan sýndi sinn óspilta hug og vilja, að vinna gegn öllu því, sem gæti orðið þjóðinni og einstaklingum hennar til skaða og vangæmdar. Þetta er höfuðástæðan fyrir því, að biudindisheit er tekið upp í lög ungmennafjelagsskaparins strax i byrjun. Og ef þið viljið, ungmennafjelar góðir, viður- kenna að stofnendur fjelagsskaparins hafi haft á rjettu að standa, þá verðið þið lika að viðurkenna, að þeir menri allir hafa enn á rjettu að standa, sem vilja ekki afmá bindindisheitið úr lögum ungmennafjelaganna. Binbindisheiti ungmennafjelaga er fundið aðallega tvent til foráttu. Fyrst það, að utan fjelagsskaparins standi margir mætir menn, sem ekki vilja leggja þann kross á sig, að gerast bindindismenn og annað þaö að bindindissheitið sje brotið innan fjelaganna. Hvorutveggja hefir efalaust við gild rök að styðjast og skal þvi hjer athugað nokkuð. Fyrst kemur þá til greina hvað sje bindindi. Jeg vil halda því fram, að biridindi sje ekkert annað en sjálfsafneitun. Maður sem geríst bindindismaður, hann neitar sjer um þá nautn, að neyta víns þegar hann kann að langa til þess, eða er boðið það. Jeg geng nú út frá því, að það sje rjett, að fátt þroski manninn meira en sjálfsafneitun, og þá verður það jafnframt

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.